Erlent

Dóttir „heila Pútíns“ talin hafa látist í bílasprengju
Öflug bílasprenging varð í nágrenni Moskvu í kvöld með þeim afleiðingum að ökumaður bílsins lést. Talið er að ökumaðurinn hafi verið Daria Dugina, þrítug dóttir hins umdeilda heimspekings Alexanders Dugin. Myndband af vettvangi sýnir Dugin í miklu áfalli.

Rússar og Úkraínumaður reyndu að brjótast inn í vopnaverksmiðju í Albaníu
Tveir rússneskir ríkisborgarar og einn Úkraínumaður voru handteknir í vopnaverksmiðju í Gramsh í Albaníu í kvöld eftir að hafa reynt að brjótast þangað inn.

Minnst 32 létust þegar ekið var inn á vettvang tveggja slysa
Sextán eru látnir og 21 slasaður eftir að rútu var ekið inn á vettvang fyrra umferðarslyss í Tyrklandi í dag. Meðal látinna eru slökkviliðsmenn, sjúkraflutningamenn og fréttamenn sem sendir höfðu verið á vettvang. Fyrr í dag létust aðrir sextán og 29 slösuðust í sambærilegu atviki í Tyrklandi

Snekkja ólígarka boðin upp
Yfirvöld í Gíbraltar haldlögðu snekkjuna Axioma, sem er í eigu rússneska ólígarkans Dmitrievich Pumpyansky, í mars síðastliðnum. Nú stendur til að bjóða hana upp á þriðjudaginn.

Placido Domingo viðriðinn mansalshring í Argentínu
Argentínska lögreglan hefur handtekið rúmlega 20 manns sem eru grunaðir um að reka mansalshring, sem rændi konur aleigu þeirra og seldi þær í vændi. Fullyrt er að spænski óperusöngvarinn Placido Domingo sé á meðal viðskiptavina samtakanna.

Sá sem var drepinn í skotárásinni í Malmö hátt settur í glæpagengi
Karlmaður sem lést í skotárás í verslunarmiðstöð í Malmö í gær er talinn hafa verið skotmark árásarinnar. Samkvæmt sænskum miðlum er maðurinn mikilvægur í glæpagenginu Satudarah.

Minnst tólf hafa verið myrtir í gíslatöku á hóteli
Minnst tólf hafa verið drepnir af gíslatökumönnum á hóteli í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu. Árásarmennirnir eru sagðir tengjast hryðjuverkahópnum al Qaeda en þeir hafa haldið hótelgestum í gíslingu í meira en tuttugu klukkustundir.

Telja manninn sem lést hafa verið skotmark árásarmannsins
Kona sem liggur þungt haldin á sjúkrahúsi í Malmö eftir að hafa verið skotin í verslunarmiðstöðinni Emporia í gær var almennur vegfarandi að sögn lögreglu. Konan er enn á sjúkrahúsi en ástand hennar sagt stöðugt og hún ekki lengur talin í lífshættu. Maður sem lést af sárum sínum í gær er talinn hafa verið skotmark árásarmannsins.

Fyrrverandi ríkissaksóknari Mexíkó handtekinn vegna hvarfs stúdenta
Fyrrverandi ríkissaksóknari Mexíkó hefur verið handtekinn í tengslum við hvarf 43 stúdenta árið 2014. Saksóknarinn er sakaður um mannrán, pyntingar og að hafa hindrað framgang réttvísinnar.

Draumadrengur bandarísks fjármálaheims sakaður um kynferðisofbeldi
Dan Price forstjóri Gravity Payments í Bandaríkjunum hefur verið kærður fyrir kynferðisofbeldi. Price hefur lengi vel verið andlit hins andkapítalíska forstjóra í bandarísku samfélagi og vinsæll meðal margra. Hann hefur nú stigið til hliðar vegna ásakana um kynferðisofbeldi.

Einn Bítla ISIS dæmdur í lífstíðarfangelsi
El Shafee Elsheikh var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi í Bandaríkjunum fyrir að hafa komið að dauða fjögurra bandarískra gísla. Hann var hluti alræmds hóps vígamanna Íslamska ríkisins sem gekk undir nafninu Bítlarnir.

Ætla að grafa hægt og rólega undan Rússum
Dregið hefur úr stórskotaliðsárásum Rússa í suðurhluta Úkraínu samhliða auknum árásum Úkraínumanna á skotfærageymslur, birgðastöðvar, brýr og aðra innviði á Krímskaga og í suðurhluta Kherson. Her Úkraínu virðist hafa breytt um stefnu og vinnur nú með langvarandi átök í huga.

Einn er látinn eftir skotárásina
Karlmaður lést af sárum sínum sem hann hlaut þegar árásarmaður, sem sagður er vera aðeins fimmtán ára gamall, hóf skothríð í verslunarmiðstöð í Malmö síðdegis.

Flugmenn sofnuðu og gleymdu að lenda
Tveir flugmenn þotu flugfélagsins Ethiopia Airlines sofnuðu og gleymdu að lenda þotunni á flugvellinum í Addis Ababa í Eþíópíu á dögunum.

Tveir alvarlega særðir eftir skotárás í miðbæ Malmö
Lögreglan í Malmö var með mikinn viðbúnað við verslunarmiðstöðina Emporia, eftir að tilkynning barst um vopnaðan mann þar síðdegis.

Nýju myndbandi af Sönnu Marin lekið
Nýju myndbandi af Sönnu Marin, forsætisráðherra Finnlands, hefur verið lekið á netið. Í myndbandinu sést hún dansa þétt upp við finnsku rokkstjörnuna Olavi Uusivirta. Talið er að myndbandið hafi verið tekið sama kvöld og hin myndböndin sem lekið var fyrr í vikunni

Sanna Marin fór í fíkniefnapróf
Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, hefur farið í fíkniefnapróf til þess að sanna að hún hafi ekki verið á eiturlyfjum í myndbandi sem fór í dreifingu á samfélagsmiðlum fyrr í vikunni.

Hafa aldrei mælt meiri hita utan eyðimerkur
Ekki hefur rignt minna í Kína að sumri til í um sextíu ár. verksmiðjum víða um landið hefur verið gert að loka dyrum sínum samhliða því að mikið vatn vantar í vatnsból orkuvera og Kínverjar kveikja á loftkælingum sínum í massavís.

Selur braust inn á heimili og áreitti heimilisköttinn
Selur braust inn á heimili íbúa úthverfisins Mount Maunganui í Nýja-Sjálandi á miðvikudaginn og dvaldi þar í tvær klukkustundir. Áður en hann kom sér fyrir inni í húsinu hafði hann hrellt heimilisköttinn.

Apple segir notendum að uppfæra tæki vegna öryggisbrests
Tæknirisinn Apple hefur ráðlagt notendum sínum að uppfæra Apple tækin sín þar sem öryggisbrestur hafi komið upp. Öryggisbresturinn leyfi tölvuþrjótum að ná stjórn á tækjum notenda.

Fundu „hið spænska Stonehenge“ aftur eftir mikla þurrka
Nokkrar hitabylgjur hafa riðið yfir Spán í sumar og miklir þurrkar orðið í kjölfar þeirra. Regnfall hefur verið í lágmarki og hafa hin ýmsu vötn þornað upp eða minnkað verulega, þar á meðal Valdecanas-vatnsbólið í Cacares-héraði. Þar sést nú aftur í steina sem eru kallaðir „hið spænska Stonehenge“ en þeir hafa verið undir vatni síðan árið 1963.

Kim sagði „einföldum“ forseta Suður-Kóreu að halda kjafti
Kim Yo Jong, systir Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, segir að forseti Suður-Kóreu sé einfaldur og barnalegur og hann eigi að halda kjafti. Þetta sagði hún í yfirlýsingu vegna ummæla Yoon Suk Yeol, forseta Suður-Kóreu, um að Norður-Kórea gæti fengið efnahagslega aðstoð í skiptum fyrir að láta kjarnorkuvopn sína af hendi.

Kínverskur milljarðamæringur dæmdur í þrettán ára fangelsi
Kínversk-kanadíski milljarðamæringurinn Xiao Jianhua var í dag dæmdur í þrettán ára fangelsi af dómara í Shanghæ. Samkvæmt dómnum gerðist Jianhua sekur um að hafa dregið sér almannafé og mútað opinberum aðilum í Kína.

Særðu sjö þegar þeir skutu á mann með hendur á lofti
Saksóknarar í Denver í Bandaríkjunum hafa stofnað til rannsóknar á atviki frá því í júlí þar sem þrír lögregluþjónar særðu sex óbreytta borgara í skothríð fyrir utan skemmtistað. Skothríðin hófst þegar maðurinn kastaði frá sér skammbyssu og rétti upp hendurnar.

Tangarhald Trumps á flokknum aldrei þéttara
Ef það er einn lærdómur sem draga má af úrslitum í forvali Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum á undanförnum dögum, er það að Donald Trump ræður þar ríkjum. Honum er að takast að bola öllum helstu andstæðingum úr flokknum. Frambjóðendur flokksins til áhrifamikilla embætta víðs vegar um Bandaríkin hafa tekið undir lygar Trumps um að kosningasvindl hafi kostað hann sigur í forsetakosningunum 2020.

Þrír fangar ákærðir vegna morðsins á James „Whitey“ Bulger
Þrír hafa verið ákærðir vegna morðsins á hinum alræmda bandaríska glæpaforingja, James „Whitey“ Bulger. Hinn 89 ára Bulger fannst meðvitundarlaus í öryggisfangelsi í Vestur-Virginíu í október 2018 þar sem hann afplánaði dóm og var hann úrskurðaður látinn skömmu síðar.

Indónesar staðfesta að hafa boðið bæði Pútín og Xi á fund G20
Ráðgjafi forseta Indónesíu segir Xi Jinping, forseta Kína, og Vladimir Pútín Rússlandsforseta munu sækja ráðstefnu G20 ríkjanna á Bali í nóvember.

Hálfur sigur fjölmiðla í deilu um eldfimar upplýsingar um húsleitina sögulegu
Alríkisdómari í Bandaríkjunum hefur skipað Alríkislögreglu Bandaríkjanna, FBI, að koma með tillögu að útstrikunum svo opinbera megi eiðsvarna yfirlýsingu sem lögreglan nýtti til að réttlæta húsleit í húsnæði Donald Trump á dögunum.

Meintur árásarmaður Rushdie dreginn fyrir dóm
Maðurinn sem sagður er hafa ráðist á rithöfundinn Salman Rushdie fyrir stuttu, Hadi Matar, neitaði sök fyrr í dag. Hann muni ekki eiga möguleika á því að vera látinn laus gegn tryggingu.

Hringir í Pútín eftir leiðtogaviðræður
Takmarkaður árangur virðist hafa náðst í viðræðum leiðtoga Tyrklands, Úkraínu og Sameinuðu þjóðanna í dag. Tyrklandsforseti hyggst ræða efni fundarins við Vladímir Pútín, forseta Rússlands.