Erlent

Ekkert saknæmt við dauða Lars Vilks
Lögregla í Svíþjóð hefur lokið við rannsókn á dauða listamannsins Lars Vilks og tveggja lögreglumanna sem fórust í bílslysi skammt frá Markaryd í Smálöndunum á síðasta ári. Niðurstaðan er sú að ekkert saknæmt hafi átt sér stað.

Fundu líkamsleifar í Amasonfrumskóginum og játning sögð liggja fyrir
Dómsmálaráðherra Brasilíu segir að lögregla hafi fundið líkamsleifar í Amasonfrumskóginum á þeim slóðum þar sem breskur blaðamaður og brasilískur fræðimaður hurfu fyrir meira en viku. Tveir bræður eru sagðir hafa játað að hafa myrt þá.

Hraðasta hlýnun á jörðinni yfir Norður-Barentshafi
Norður-Barentshaf og eyjarnar þess eru sá staður á jörðinni þar sem loftslag hlýnar hraðast svo vitað sé samkvæmt rannsóknum norrænna veðurfræðinga. Hlýnunin þar er allt að sjöfalt hraðari en annars staðar á jörðinni.

Siðaráðgjafi Johnson segir af sér
Ráðgjafi Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, í siðfræðilegum efnum sagði af sér í dag. Hann segir gildar spurningar enn á lofti um hvort að Johnson hafi brotið siðareglur með ítrekuðu veisluhaldi í kórónuveirufaraldrinum.

Fjöldamorðinginn í Buffalo ákærður fyrir hatursglæpi
Bandarískri alríkissaksóknarar ákærðu átján ára gamlan karlmann sem myrti tíu manns í stórverslun í Buffalo í síðasta mánuði fyrir hatursglæpi í dag. Yfirvöld telja að kynþáttahatur hafi verið tilefni fjöldamorðsins.

Tilræðismaður Reagan endanlega frjáls og heldur uppselda tónleika í Brooklyn
John Hinckley Jr. sem reyndi að skjóta Ronald Reagan Bandaríkjaforseta til bana árið 1981 verður í dag endanlega frjáls allra sinna ferða. Hann var úrskurðaður ósakhæfur í réttarhöldunum 1982 og hefur verið undir ströngu eftirliti sálfræðinga síðan. Þann 8. júlí næstkomandi heldur hann tónleika í Brooklyn sem er uppselt á.

Íslendingur dæmdur í átta og hálfs árs fangelsi fyrir barnaníð á Spáni
Dómstóll á Spáni hefur dæmt íslenskan karlmann um sextugt í átta og hálfs árs skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa brotið kynferðislega gegn að minnsta kosti sex börnum í Torre-Pachecho í Múrsíu á suðausturhluta Spánar. Brotin voru framin á árunum 2020 til 2021.

Fordæmalaus flóð í Yellowstone
Fordæmalaus flóð í Yellowstone þjóðgarði hafa tætt í sig norðurhluta þjóðgarðsins og skolað burt brúm, vegum og húsum. Enginn hefur slasast eða látist í flóðunum en meira en 10.000 gestir hafa þurft að yfirgefa þjóðgarðinn.

49 ára kona ákærð fyrir að þvætta 540 milljarða króna
Lögregla í Danmörku hefur ákært 49 ára konu fyrir að hafa reynt að þvætta 29 milljarða danskra króna, um 540 milljarða íslenskra, meðal annars fyrir rússneska auðmenn.

Óánægja með Joe Biden eykst
Óánægja Bandaríkjamanna með Joe Biden Bandaríkjaforseta eykst þriðju vikuna í röð. Aðeins 39% kjósenda eru ánægð með forsetann en 56% segjast óánægð. Þetta ánægjuhlutfall er með því lægsta sem hefur mælst í forsetatíð Biden.

Handtaka annan mann vegna hvarfs breska blaðamannsins
Bróðir mannsins sem handtekinn var á dögunum vegna hvarfsins á breskum blaðamanni og brasilískum samferðamanni hans, var einnig handtekinn í gær.

Svisslendingar loka lofthelginni vegna tölvubilunar
Flugmálayfirvöld í Sviss lokuðu lofthelgi landsins tímabundið vegna tölvubilunar í nótt og hefur flugferðum til og frá flugvöllum í landinu verið aflýst.

Vaktin: Putin og Xi Jinping semja um frekara samstarf
Rússar ákváðu í morgun að opna svokallaðan mannúðargang frá úkraínsku borginni Severodonetsk en þeir hafa nú náð stærstum hluta borgarinnar á sitt vald. Gangurinn á vera opinn í tólf klukkutíma en þeir sem kjósa að forða sér frá borginni þurfa þó að fara í norður, þar sem Rússar ráða ríkjum.

Binda enda á áratugalangt vinalegt „stríð“
Dönsk og kanadísk stjórnvöld hafa náð samkomulagi sem bindur enda á áratugalangar en góðlátlegar deilur ríkjanna um yfirráð yfir lítilli eyju fyrir norðan Grænland. Þau hafa nú ákveðið að skipta eyjunni til helminga á milli sín.

Navalní skyndilega færður í annað hámarksöryggisfangelsi
Rússnesk yfirvöld færðu Alexei Navalní, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í landinu, skyndilega úr fangelsinu þar sem hann hefur verið vistaður í hámarksöryggisfanganýlendu enn fjær Moskvu.

Apabólan fær nýtt nafn
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin vinnur nú að því að finna nýtt nafn á apabóluna. Fáir höfðu heyrt minnst á bólu þessa fyrr en fyrir nokkrum vikum þegar hún fór að dreifa sér í auknum mæli. Nú hafa um 1600 tilfelli verið greind í 20 löndum á síðustu vikum.

Fá grænt ljós á frekari geimskot frá Texas
Verkfræðingar og vísindamenn SpaceX mega halda áfram tilraunum sínum með geimfarið Starship í Suður-Flórída. Tilraunirnar voru stöðvaðar á meðan umhverfismat fór fram. Framkvæmd matsins dróst verulega á langinn.

Bandamenn deila um hvað eigi að gerast næst
Sprungur virðast vera að myndast í samstöðu Vesturlanda gegn innrás Rússa í Úkraínu og eru ráðamenn sagðir deila um hvaða leiðir eigi að fara til að binda enda á átökin. Meðal þeirra spurninga sem eru til skoðunar eru hvort halda eigi áfram að einangra Rússlands og senda fleiri vopn til Úkraínu eða það hvort Úkraínumenn þurfi mögulega að sætta sig við að tapa landsvæði.

Í lífstíðarfangelsi eftir að hún lét skáldsögu sína verða að veruleika
Höfundur sögu sem titluð er Hvernig á að myrða eiginmann þinn var í gær dæmd í lífstíðarfangelsi með möguleika á reynslulausn fyrir að drepa eiginmann sinn í Portland í Bandaríkjunum fyrir fjórum árum.

Telja að fimmtán þúsund auðkýfingar muni flýja Rússland
Talið er að um fimmtán þúsund auðkýfingar með auðæfi metin á yfir milljón dollara, 130 milljónir íslenskra króna, muni flýja Rússland á þessu ári. Um hundrað þúsund einstaklingar í Rússlandi eru milljónamæringar.

Vaktin: Segja Pútín enn vilja meira af Úkraínu
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, vill enn ná tökum á meirihluta Úkraínu, ef ekki öllu ríkinu, þá þær áætlanir hafi misheppnast í upphafi innrásar Rússa. Þetta telja Bandaríkjamenn stöðuna en þeir segja ólíklegt að Rússar hafi burði til að ná þessum markmiðum.

Trump hunsaði ráðgjafa og var „aftengdur raunveruleikanum“
Nokkrir af nánustu ráðgjöfum Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sögðu að hann hefði hunsað ráð þeirra um að játa ósigur í forsetakosningunum árið 2020. Fyrrverandi dómsmálaráðherra Trump sagði hann hafa verið „aftengdan raunveruleikanum“.

Fjöldamorðinginn í Toronto í lífstíðarfangelsi
Karlmaður sem ók sendiferðabíl inn í mannþröng og drap ellefu manns í Toronto árið 2018 var dæmdur í lífstíðarfangelsi í dag. Hann getur þó óskað eftir reynslulausn eftir aldarfjórðung.

Spacey fyrir dómara á fimmtudag
Bandaríski leikarinn Kevin Spacey á að mæta fyrir dómara í Westminster í Bretlandi á fimmtudag. Þar á hann að svara til saka fyrir fjórar ákærur vegna kynferðisbrota gegn þremur karlmönnum.

Bresk stjórnvöld eyddu háum fjárhæðum í gallaðan hlífðarbúnað
Bresk stjórnvöld ætluðu að brenna hlífðarbúnað að andvirði fjögurra milljarða punda sem var ýmist gallaður eða stóðst ekki kröfur stjórnvalda. Þetta segir eftirlitsnefnd breska þingsins um ríkisútgjöld sem kannar nú hvernig stendur á því að ríkið hafi eytt eins miklu og raun ber vitni í ónothæfan búnað.

Segir umræðuna á samfélagsmiðlum ósanngjarna
Leikkonan Amber Heard segir að samfélagsmiðlar hafi leikið sig grátt varðandi réttarhöld í meiðyrðamáli Johnny Depps, fyrrverandi eiginmanns hennar, gegn henni. Hún var nýverið dæmd til að greiða Depp tæpa tvo milljarða króna í skaðabætur.

Volkswagen sótt til saka fyrir þrælahald í Brasilíu
Stjórnvöld í Brasilíu hafa gefið út ákæru á hendur þýska bílaframleiðandandum Volkswagen fyrir að hafa um langt árabil haldið fólki í þrælkun á stórum búgarði sem fyrirtækið átti og rak í Brasilíu. Þeir sem reyndu að flýja þrælkunina voru oft og iðulega drepnir.

Bolsonaro fetar slóðir Trumps
Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, hefur ítrekað mælst með minna fylgi en mótframbjóðandi sinn í komandi kosningum. Þrátt fyrir það hefur hann ítrekað haldið því fram að muni hann tapa kosningunum í október, verði það vegna umfangsmikils kosningasvindls. Nú virðist forsetinn hafa fengið herinn með sér í lið.

Skima milljónir eftir hópsmit á skemmtistað
Allir íbúar Chaoyang-hverfisins í Peking verða skimaðir eftir að Covid-19 hópsmit kom upp á skemmtistað í hverfinu. Íbúar hverfisins eru rúmlega þrjár milljónir talsins.

Vilja stöðva Rússa í Donbas
Baráttan um Donbas gæti haft gífurleg áhrif á framvindu innrásar Rússa í Úkraínu. Harðir bardagar hafa geisað þar frá því innrásin hófst í febrúar en Rússar vonast til að brjóta varnir Úkraínumanna á bak aftur og Úkraínumenn reyna að draga máttinn úr hermönnum Rússlands.