Erlent
329 330 331 332 333 334 … 334 ›
Vínlandskortið reyndist falsað Allt frá því það var opinberað í Yale háskólanum í Bandaríkjunum árið 1965 hefur vínlandskortið svokallaða verið umdeilt. Kortið átti að vera frá 1440 og sýna meðal annars hluta Norður-Ameríku og það að víkingar hefðu kannað vesturhluta Atlantshafsins. Erlent 1.10.2021 15:50
Vilja einangra 29 milljónir húsa á næstu árum Allt að þrjátíu hafa verið handteknir á síðustu vikum vegna mótmæla í Bretlandi. Samtökin Einangrum Bretland standa fyrir mótmælunum en helsta baráttumál þeirra er að einangra 29 milljón hús á næstu níu árum. Erlent 1.10.2021 15:49
Alex Jones ábyrgur vegna samsæriskenninga sinna um árásina í Sandy Hook Alex Jones er lagalega ábyrgur gagnvart samsæriskenningum um fjöldamorðið í Sandy Hook árið 2012. Hann mun því þurfa að borga skaðabætur til foreldra barna sem voru myrt í árásinni. Hann hefur ítrekað verið sakaður um að valda foreldrum skaða með áróðri sínum og samsæriskenningum um fjöldamorðið sem spanna árabil. Erlent 1.10.2021 12:08
Veirulyf í pilluformi virðist draga mjög úr innlögnum og dauðsföllum af völdum Covid-19 Veirulyfið molnupiravir virðist draga verulega úr sjúkrahúslinnlögnum og dauðsföllum meðal nýgreindra Covid-sjúklinga. Lyfjafyrirtækin á bak við lyfið hyggjast sækja um markaðsleyfi sem allra fyrst. Erlent 1.10.2021 12:03
Gerðu tilraun með nýja eldflaug Ráðamenn í Norður-Kóreu segjast hafa gert tilraun með nýja tegund eldflauga sem hafi verið þróaðar til að skjóta niður flugvélar og aðrar eldflaugar. Nýju eldflauginni var skotið á loft í gær og var það í fjórða sinn á nokkrum vikum sem Kóreumenn skjóta eldflaug á loft. Erlent 1.10.2021 09:46
Dómari segir ekki glæpsamlegt að deila nærmyndum af kynfærum kvenna á klámsíðum Ákvörðun dómara í bænum Cervo á Spáni hefur vakið mikla reiði en hann hefur nú í annað sinn vísað frá máli er varðaði konur sem voru myndaðar án þeirrar vitundar þegar þær pissuðu á útihátíð. Myndskeiðunum var deilt á klámsíðum. Erlent 1.10.2021 08:11
Ástralir opna landamærin og hleypa landsmönnum út Yfirvöld í Ástralíu hafa ákveðið að opna landamæri ríkisins í nóvember næstkomandi en frá því í mars á síðasta ári hafa landsmenn búið við einar ströngustu reglur í heimi þegar kemur að ferðatakmörkunum vegna kórónuveirufaraldursins. Erlent 1.10.2021 06:49
Hrauntanginn á La Palma tvöfaldaðist á einum degi Hrauntanginn undan ströndum La Palma á Kanaríeyjum tvöfaldaðist að stærð í dag og er nú á stærð við 25 fótboltavelli að flatarmáli. Erlent 1.10.2021 00:12
Afstýrðu lokunum hjá alríkinu um stundarsakir Bandaríska þingið samþykkti fyrir stundu lög sem tryggja alríkisstjórninni fjármögnun útgjalda fram til 3. desember. Ekki mátti mikið tæpara standa þar sem núverandi fjárlagaári lýkur á miðnætti í kvöld. Erlent 30.9.2021 22:48
Rússneskur ritstjóri sem flúði land eftirlýstur Yfirvöld í Rússlandi hafa lýst eftir þekktum rússneskum rannsóknarblaðamanni sem hefur tekið þátt í umfangsmiklum rannsóknum sem beinast gegn ríkisstjórn Vladimírs Pútín, forseta Rússlands. Roman Dobrokhotov, stofnandi og ritstjóri Insider, er eftirlýstur fyrir að hafa laumað sér yfir landamæri Rússlands og Úkraínu. Erlent 30.9.2021 17:01
Leita enn að íslenskum manni í Svíþjóð Til stóð að halda áfram leit að íslenskum karlmanni á fimmtugsaldri sem hefur verið saknað frá því að hann hélt frá landi á sæþotu í Svíþjóð á laugardag. Frændi mannsins segist standa fyrir leit að honum. Erlent 30.9.2021 15:16
Vonarstjarna repúblikana í kröppum dansi Ríkisstjóri Suður-Dakóta sem hefur verið talin rísandi stjarna innan Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum er nú í töluverðu klandri eftir að upp komst að hann hefði beitt sér á óeðlilegan hátt í þágu dóttur sinnar. Erlent 30.9.2021 15:13
Hefja tökur í geimnum í næstu viku Þriðjudaginn í næstu viku (5. október) veður geimfara, leikkonu og leikstjóra skotið út í geim frá Baikonur í Kasakstan. Þau munu svo koma sér fyrir í alþjóðlegu geimstöðinni og taka upp kvikmynd. Þá fyrstu sem tekin verður upp í geimnum. Erlent 30.9.2021 13:29
Rannsókn á sprengingunni í Beirút stöðvuð Fjölskyldur fórnarlamba sem féllu í sprengingunni, sem varð í Beirút höfuðborg Líbanon í fyrra, mótmæla því harðlega að rannsókn á sprengingunni hafi verið stöðvuð. Hundruð söfnuðust saman í gær til að mótmæla ákvörðun stjórnvalda og til að krefjast að aðalrannsakandinn, dómarinn Tarek Bitar, fengi að hefja rannsókn sína að nýju. Erlent 30.9.2021 11:41
Breskir ökumenn pirraðir en ráðherra segir lausn í sjónmáli Breskur ráðherra telur lausn í sjónmáli í bensínvanda sem Bretar standa frammi fyrir. Pirraðir Bretar skilja ekkert í því hvers vegna vandinn sé kominn upp. Erlent 30.9.2021 11:22
Tíræð kona á flótta vegna ákæru um aðild að hroðaverkum nasista Irmgard Furchner, 96 ára gömul þýsk kona, er nú á flótta en til stóð að hefja réttarhöld yfir henni í dag, þar sem hún hefur verið sökuð um aðild að fjöldamorðum í útrýmingarbúðum nasista í seinni heimstyrjöldinni. Erlent 30.9.2021 11:12
Sagði óbærilegt að hugsa um síðustu stundir dóttur sinnar: Morðingi Söruh Everard dæmdur í lífstíðarfangelsi Fyrrverandi lögregluþjónninn Wayne Couzens hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða Söruh Everard. Hinn 48 ára gamli Couzens játaði í sumar að hafa rænt, nauðgað og myrt Everard í mars. Erlent 30.9.2021 11:07
Leita karlmanns á sextugsaldri vegna sprengingarinnar í Gautaborg Lögreglan í Gautaborg leitar nú karlmanns á sextugsaldri í tengslum við öfluga sprengingu í fjölbýlishúsi í miðborginni á þriðjudag. Til stóð að bera manninn út úr íbúð sinni í húsinu sama dag. Erlent 30.9.2021 10:30
Á þriðja tug tegunda bætast við lista útdauðra dýra Bandaríkin hafa lýst 23 dýrategundir útdauðar, þar á meðal timburdólinn. Vísindamenn segjast hafa gert allt til að reyna að finna fleiri dýr þessara tegunda en ekkert hafi gengið. Ekkert annað sé því í stöðunni en að lýsa þær útdauðar. Erlent 30.9.2021 10:28
Trúðaskortur leikur Norður-Íra grátt „Það felst mun meira í því að vera trúður en að setja á sig rautt nef og klæða sig í stórar pokabuxur.“ Erlent 30.9.2021 10:07
Sarkozy dæmdur í eins árs stofufangelsi Franskur dómstóll dæmdi Nicolas Sarkozy, fyrrverandi forseta Frakklands, í eins árs stofufangelsi fyrir brot á lögum um fjármál stjórnmálaframboða þegar hann barðist fyrir endurkjöri árið 2012. Hann fær að afplána refsinguna heima hjá sér undir rafrænu eftirliti. Erlent 30.9.2021 10:04
Að minnsta kosti 116 látnir í fangaóeirðum í Ekvador Að minnsta kosti 116 eru látnir eftir bardaga glæpagengja í Litoral-fangelsinu í borginni Guayaquil í Ekvador. Að minnsta kosti fimm fangar voru afhöfðaðir en aðrir skotnir. Talið er að gengin hafi tengsl við mexíkósk glæpasamtök. Erlent 30.9.2021 08:34
Sakar Bandaríkin um leikaraskap en vill opna aftur á samskiptin við Suður-Kóreu Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, segir tilboð Bandaríkjamanna um viðræður og sættir leikrit en hann hafi fyrirskipað embættismönnum að opna aftur fyrir samskiptalínur við Suður-Kóreu til að „stuðla að friði“. Erlent 30.9.2021 07:35
Pabbi Britney ekki lengur við stýrið Jamie Spears, faðir poppstjörnunnar Britney Spears, er ekki lengur fjárhaldsmaður hennar eftir að dómari í Los Angeles kvað upp úrskurð sinn í nótt. Erlent 30.9.2021 06:55
Kennir stjórn Donald Trump um yfirtöku talíbana í Afganistan Einn af æðstu hershöfðingjum Bandaríkjahers sagði þingnefnd sem rannsakar nú brottflutning herliðsins frá Afganistan, að yfirtaka landsins af talíbönum og fall stjórnarhersins sé bein afleiðing af samkomulagi sem Trump stjórnin gerði í Doha í febrúar 2020. Erlent 30.9.2021 06:45
YouTube í hart gegn andstæðingum bólusetninga Forsvarsmenn myndbandaveitunnar YouTube hafa ákveðið að fara í hart gegn andstæðingum bólusetninga. Fólk sem dreifir efni þar sem farið er með fleipur um bóluefni og bólusetningar verður bannað og rásum þeirra lokað. Þá verður öllu slíku efni eytt af veitunni. Erlent 29.9.2021 16:25
Vara við hörmulegum afleiðingum ef skuldaþakið brestur Fjármálaráðherra Bandaríkjanna varar við því að það hafi hörmulegar afleiðingar í för með sér samþykki Bandaríkjaþing ekki að hækka svonefnt skuldaþak ríkissjóðs. Enn liggur ekkert samkomulag fyrir um hækkun þaksins eða ný fjárlög sem eiga að taka gildi á föstudag. Erlent 29.9.2021 15:44
Stofnandi stórs netöryggisfyrirtækis handtekinn fyrir landráð Stofnandi eins stærsta netöryggisfyrirtækis Rússlands var handtekinn í gær vegna gruns um hann hafi framið landráð. Hann hefur verið úrskurðaður í tveggja mánaða gæsluvarðhald en gæti átt yfir höfði sér allt að tuttugu ára fangelsi. Erlent 29.9.2021 15:16
Tilnefna Andersson sem nýjan formann sænskra Jafnaðarmanna Undirbúningsnefnd á vegum sænskra Jafnaðarmanna hefur tilnefnt fjármálaráðherrann Magdalenu Andersson til að verða næsti formaður flokksins. Framundan er landsþing flokksins í byrjun nóvember þar sem arftaki Stefans Löfven forsætisráðherra verður kjörinn. Erlent 29.9.2021 12:54
Rússar heita hefndum gegn YouTube og þýskum fjölmiðlum Utanríkisráðuneyti Rússlands ætlar að leita leiða til að koma höggi á bandaríska fyrirtækið YouTube og þýska fjölmiðla. Það er eftir að YouTube lokaði þýskum YouTube-rásum rússneska ríkismiðilsins RT. Erlent 29.9.2021 11:29