
Innlent

Hagnast um hálfan milljarð og reiknar með þrefalt meira á næsta ári
Útkomuspá A-hluta Reykjavíkurborgar sýnir rekstrarafgang upp á ríflega hálfan milljarð króna á þessu ári og áætlanir gera ráð fyrir að rekstur borgarinnar batni enn frekar næstu fimm árin. Á næsta ári er gert ráð fyrir 1,7 milljarða króna hagnaði.

Bein útsending: Kosningafundur með formönnum flokkanna
Samtök iðnaðarins hafa boðað til kosningafundar með formönnum þeirra stjórnmálaflokka sem eiga fulltrúa á Alþingi. Samtök iðnaðarins vilja með fundinum leggja sitt af mörkum til uppbyggilegrar umræðu í aðdraganda kosninga og vekja athygli á þeim málefnum sem brýnust eru fyrir samkeppnishæfni Íslands.

Fjárhagsáætlun borgarinnar kynnt og Kanar ganga að kjörborðinu
Í hádegisfréttum verða bandarísku forsetakosningarnar að sjálfsögðu fyrirferðarmiklar en þær eru nú hafnar og afar mjótt á munum, ef marka má kannanir.

Aukin hætta á skriðuföllum vegna rigningar
Veðurstofa Íslands varar við aukinni hættu á skriðuföllum næstu viku vegna mikillar rigningar. Mikilli úrkomu er spáð næstu daga.

Sakfelldur fyrir þátt í banaslysi en annar ökumaður aldrei fundist
Karlmaður hefur verið sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að aka bíl á 49 ára gamlan mann við Höfðabakka í Reykjavík í desember 2022, en ákvörðun um refsingu ökumannsins er frestað. Maðurinn sem varð fyrir bílnum lést á Landspítalanum skömmu eftir áreksturinn.

Bein útsending: Kynna fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar
Reykjavíkurborg hefur boðað til blaðamannafundar til að kynna fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2025 og áætlun fyrir fimm ára tímabilið til 2029.

„Ég var barnið sem vildi ekki taka í höndina á kennaranum sínum“
Fida Abu Libdeh, framkvæmdastjóri GeoSilica sem fluttist á unglingsárum til Íslands frá Palestínu, segist vera dæmi um barn sem tók ekki í höndina á kvenkennara sínum. Sé rétt staðið að málum gæti barn sem ekki taki í höndina á kennara sínum einn daginn náð langt, jafnvel orðið formaður Sjálfstæðisflokksins.

Flugslysið sem skók þjóðina og aldrei munu fást svör við
„Viðmót flugmálayfirvalda olli okkur verulegum vonbrigðum. Kannski eru þetta mannleg viðbrögð. En þetta sýnir að þetta getur rist djúpt, að einhverjir almennir borgarar geti farið að veita kerfinu aðhald, spyrja spurninga og efast um vinnubrögð þeirra,“ segir Friðrik Þór Guðmundsson.

Umboðsmaður barna segir verkföll kennara mismuna börnum
Umboðsmaður barna segir verkfallið mismuna börnum hvað varðar rétt þeirra til menntunar. Verkfallsrétturinn sé óumdeildur en á sama tíma sé skólaskylda og börn eigi stjórnarskrárvarinn rétt til menntunar og fræðslu. Hún segir embættinu hafa borist fjöldi erinda vegna verkfalls kennara.

Segja verkfall kennara skapa ójafnræði og óréttlæti
Foreldrafélag Áslandsskóla telur verkfallsaðgerðir Kennarasambands Íslands brjóta gegn grunngildum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna með því að mismuna börnum og skerða nám þeirra barna sem eru í verkfallsskólum.

Gera nú ráð fyrir 43 prósent meiri halla á ríkissjóði
Nú er gert ráð fyrir 58,6 milljarða króna halla á heildarafkomu ríkissjóðs árið 2025 en hann var áætlaður 41,0 milljarður þegar fjárlagafrumvarp var fyrst kynnt í september. Nemur aukningin 17,6 milljörðum króna.

Stjórnarliðið freistar þess að rjúfa útboðsstopp í vegagerð
Núna er orðið ljóst að samgönguáætlun til næstu fjögurra ára verður ekki lögð fyrir yfirstandandi þing. Við fjárlagagerðina stefnir ríkisstjórnin þó að því að tilgreina nokkur verkefni sem bjóða megi út.

Einn fluttur á sjúkrahús eftir árekstur
Einn var fluttur á sjúkrahús eftir að tveir bílar skullu saman á gatnamótum Borgartúns og Kringlumýrarbrautar í Reykjavík. Slysið varð á níunda tímanum í kvöld.

Grasrótin að styrkjast eftir samstarf sem mögulega var of dýrkeypt
Ákvörðun Vinstri grænna um áframhaldandi samstarf með Sjálfstæðisflokki og Framsókn árið 2021 var afdrifarík og orkar tvímælis. Þetta segir Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, í kosningapallborðinu í dag.

Haustið 2008 að einhverju leyti „reyfarakennt“
Ævisaga Geirs H. Haarde, fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra, kom út í dag. Geir segist hafa talið það hálfgerða skyldu sína að skrifa bók um viðburðaríka ævi sína.

Sex kílómetrar urðu átta í straumhörðum og ísköldum sjónum
Maður sem synti milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar með eiginkonu sína í eftirdragi segist hafa þurft að hundsa eigin efasemdir allan tímann. Sundið tók um sex tíma, og sjórinn var aðeins tveggja gráðu heitur þegar verst lét.

„Þetta var hræðilegt slys“
Karlmaðurinn sem lést við Tungufljót nærri Geysi í Haukadal í gær var á björgunarsveitaræfingu ásamt félögum. Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar segir um hræðilegt slys að ræða.

Hræðilegt slys og sögulegar kosningar
Karlmaðurinn sem lést við Tungufljót nærri Geysi í Haukadal í gær var á björgunarsveitaræfingu ásamt félögum. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við formann Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem segir að um hræðilegt slys sé að ræða.

Mögulega merki um að lítið magn kviku hafi verið á ferð
Kvikusöfnun heldur áfram á Reykjanesskaga en síðdegis í dag höfðu engir skjálftar mælst frá því að smáskjálftahrina varð á milli Sýlingarfells og Stóra-Skógfells í nótt.

Læknar boða miklu harðari aðgerðir
Læknar boða til vikulegra verkfalla samtímis á öllum vinnustöðvum lækna sem verkfall nær til frá 25. nóvember og fram að páskum. Aðra vikuna eru allir vinnustaðir lækna í verkfalli frá miðnætti til tólf á hádegi frá mánudegi til fimmtudags. Hina vikuna eru verkföll ýmist mánudag og miðvikudag eða þriðjudag og fimmtudag með sama fyrirkomulagi.

Sigurður Ingi þögull um búsetuúrræðin
Svandís Svavarsdóttir segir að Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins hafi ekki látið í ljósi neinar mótbárur þegar Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra talaði fyrir máli sem varðar lokuð búsetuúrræði hælisleitenda.

Formaður Kyndils lést í slysinu við Tungufljót
Karlmaðurinn sem lést við Tungufljót nærri Geysi í Haukadal í gær var á björgunarsveitaræfingu. Maðurinn hét Sigurður Kristófer McQuillan Óskarsson en hann var formaður björgunarsveitarinnar Kyndils í Mosfellsbæ. Hann var 36 ára.

Leituðu áfram undir ís vegna misræmis milli lista og leiðsögumanna
Óvissa leiðsögumanna um hversu margir lentu undir ís þegar banaslys varð í Breiðamerkurjökli í sumar varð til þess að leit var haldið áfram þrátt fyrir að enginn hefði reynst þar undir. Skráningarlisti ferðaþjónustufyrirtækisins reyndist réttur.

Yfirbuguðu konu með lítið barn og hníf í hendi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit ríkislögreglustjóra voru með mikinn viðbúnað í Sólheimum í Reykjavík í hádeginu eftir að tilkynning barst um konu þar í miklu ójafnvægi fyrir utan hús við götuna.

Sjálfstæðismenn vilja taka upp samræmd próf
Meðal aðgerða í menntamálum sem Sjálfstæðisflokkurinn kynnti í dag er að taka upp samræmd próf í grunnskólum á ný. Markmiðið með aðgerðunum er einfalt, að allir nemendur eigi að geta lesið og skilið texta við hæfi eftir yngsta stig grunnskólans í stað þess að stór hluti ráði ekki við það.

Sjónum beint til vinstri í kosningapallborðinu
Forystukonur hjá Vinstri grænum, Sósíalistum og Pírötum mæta í beina útsendingu í kosningapallborð fréttastofunnar klukkan 14.

Ríkið þrýsti læknum út í harðari verkfallsaðgerðir
Formaður Læknafélags Íslands segir ríkið þrýsta læknum út í harðari verkfallsaðgerðir en lagt var upp með, með því að lýsa því yfir að boðaðar aðgerðir séu ólöglegar. Stefnt er að því að hefja nýja atkvæðagreiðslu um verkföll lækna í dag, sem myndu hefjast seint í nóvember.

Aukaþingmaður leikur enn lausum hala
Prófessor í stjórnmálafræði segir hneyksli að enn einu sinni hafi Alþingi trassað að gera augljósar breytingar á kosningalögum til að tryggja að flokkar fái þingmenn í samræmi við atkvæðafjölda. Starfandi forsætisráðherra segir ekki hægt að gera þessar breytingar svo skömmu fyrir kosningar.

Baráttan í Bandaríkjunum á lokametrunum
Í hádegisfréttum okkar fjöllum við um bandarísku forsetakosningarnar sem haldnar verða á morgun.

Málið komið á „endastöð“ og rannsókn lokið
Rannsókn lögreglu á falsboði sem þeim barst í sumar, þegar tilkynnt var um að tveir ferðamenn væru fasti í helli, er nú lokið og er málið óupplýst. Lögreglan ræddi við nokkra einstaklinga í Bretlandi í tengslum við rannsókn málsins.