Innlent „
306 307 308 309 310 311 312 313 314 … 334 ›
„Nú er biðstaða“ Lögreglan á Suðurnesjum og aðrir viðbragðsaðilar eru nú í biðstöðu. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir nóttina hafa verið viðburðarlitla en viðbragðsaðilar munu funda klukkan 11:00. Innlent 12.11.2023 10:24
Sprengisandur: Fjölmiðlar, Gasa, heilbrigðismál og Reykjanesið Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og hér á Vísi frá klukkan tíu til tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni. Innlent 12.11.2023 09:40
Ríkisstjórnin fundar í hádeginu Ríkisstjórn Íslands mun funda í dag í Ráðherrabústaðnum klukkan 12:00. Þar verður farið yfir stöðuna á Reykjanesskaganum. Innlent 12.11.2023 09:29
Hundruð hafa boðið fram húsnæði fyrir Grindvíkinga Mikill fjöldi hefur skráð húsnæði sitt í boði fyrir Grindvíkinga. Teymisstjóri Rauða krossins segir húsnæðið verða metið í dag. Um 120 gistu í fjöldahjálparstöðvum Rauða krossins í nótt. Innlent 12.11.2023 09:19
Vonast til þess að geta hleypt Grindvíkingum heim í stutta stund Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi almannavarna, segir að á fundi almannavarna og sérfræðinga Veðurstofunnar klukkan 9.30 verði farið yfir stöðuna, hættumatið og það endurmetið hvort að íbúar fái að fara inn á hættusvæðið. Innlent 12.11.2023 08:48
Vaktin: Meta áhættuna á verðmætabjörgun í Grindavík Sérfræðingar hjá almannavörnum, aðgerðastjórnum og Veðurstofunni hittust á fundi um stöðuna í Grindavík í morgun. Þeir telja tímabundið svigrúm fyrir aðgerðir almannavarna til að sækja nauðsynjar. Lögreglan á Suðurnesjum hefur veitt íbúum í einu hverfi heimild til þess. Innlent 12.11.2023 07:22
Auknar líkur á að kvika geti komið upp á hafsbotni Auknar líkur eru á að kvika geti komið upp á hafsbotni, en verulegar líkur eru á að kvikan nái að brjóta sér leið til yfirborðs. Þá er ekki hægt að gera ráð fyrir því að gosórói sjáist á mælum áður en eldgos hefst. Innlent 12.11.2023 05:53
Ók ölvaður á gangandi vegfaranda Einn var handtekinn og vistaður í fangaklefa eftir að hafa ekið ölvaður á gangandi vegfaranda í miðbæ Reykjavíkur. Vegfarandinn hlaut minniháttar meiðsl en ekki er nánar greint frá áverkum hans. Innlent 12.11.2023 05:28
„Við erum í nokkurs konar biðstöðu“ Lítil breyting er á stöðunni í Grindavík að sögn vettvangsstjóra lögreglunnar á suðurnesjum. Hann fundaði ásamt almannavörnum og aðgerðastjórnum klukkan fjögur í nótt. Innlent 12.11.2023 04:31
Dvínandi virkni geti þýtt að stutt sé í gos Jarðskjálfti yfir þremur að stærð mældist síðast klukkan 18:20. Náttúruvársérfræðingur segir ýmislegt geta úrskýrt dvínandi virkni, reynslan sýni að skjálftavirkni falli niður rétt fyrir gos. Innlent 12.11.2023 02:29
Um 250 gæludýr enn í Grindavík Dýraverndarsamtökin Dýrfinna hafa safnað lista með tæplega 250 dýrum sem eru enn í Grindavík. Sjálfboðaliði segir samtökin tilbúin að fara inn í bæinn til að bjarga dýrum um leið og aðstæður leyfa. Samtökin geri sér grein fyrir því að ekki muni öll dýrin koma heil út úr ástandinu. Innlent 12.11.2023 00:01
Saknar 67 gæludýra sinna sem urðu eftir í Grindavík Hafliði Hjaltalín yfirgaf Grindavík áður en bærinn var rýmdur í gær. Hann ætlaði að snúa aftur í dag en nú er það ekki lengur hægt. Eftir eru 40 dúfur, tíu páfagaukar, fjórtán hænur og þrír kalkúnar. Miðað við nýjustu fréttir er óljóst hvað verður um dýrin. Innlent 11.11.2023 21:55
Stél vélar Icelandair straukst við flugbraut í Indlandi Flugvél Icelandair, sem var í leiguverkefni í Indlandi, lenti í óhappi á á Lal Bahadur Shastri-flugvellinum, sem er í nágrenni við borgina Varanasi. Innlent 11.11.2023 21:30
Erfitt að horfa á draugabæ sem á að vera fullur að lífi Grindavík er orðin algjörlega mannlaus. Ekki einu sinni lögregla eða björgunarsveitir eru í bænum þessa stundina. Innlent 11.11.2023 21:14
Það skásta og það versta sem gæti gerst fari að gjósa Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, skoðaði verstu og skástu sviðsmyndirnar kæmi til goss á Reykjanesskaga í kvöldfréttum Stöðvar 2. Í verstu sviðsmyndinni myndi hraun renna í Grindavíkurbæ. Innlent 11.11.2023 19:50
Eldgos geti brotist út á næstu klukkutímum Sviðsstjóri almannavarna segir að staðan í Grindavík sé alvarlegri en hún var fyrr í dag. Ljóst sé að það verði eldgos og að það gæti gerst hvenær sem er á næstu klukkustundum. Þá muni eldgosið ekki gera vart við sig áður en það brýst út. Innlent 11.11.2023 19:36
Búa heima hjá manni sem þau hafa aldrei hitt Heilt bæjarfélag þurfti að gista fjarri heimilum sínum í nótt. Einhverjir leituðu til ættingja og vina og aðrir til fjöldahjálparstöðva Rauða krossins. Þegar fréttastofu bar þar að garði á ellefta tímanum í morgun var ansi þungt yfir fólki sem virtist þó gera það besta úr stöðunni. Flestir voru af erlendu bergi brotnir, margir með börn. Innlent 11.11.2023 19:26
Kvika á 800 metra dýpi og auknar líkur á eldgosi Veðurstofan greinir frá því að samkvæmt nýjustu gögnum hafa líkur á eldgosi aukist frá því í morgun og gæti það hafist hvenær sem er á næstu dögum. Þá liggur kvika á 800 metra dýpi þar sem hún er grynnst. Einnig eru auknar líkur á eldgosi á hafsbotni og því þurfi að búa sig undir möguleika á sprengigosi. Innlent 11.11.2023 18:50
Mikið álag á bráðamóttökunni Mikið álag er á bráðamóttökunni í Fossvogi stundina. Þar bíða margir eftir þjónustu. Innlent 11.11.2023 18:28
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Jörð hefur haldið áfram að skjálfa á Reykjanesi í dag en virknin færst norður. Enn eru taldar miklar líkur á eldgosi. Við setjumst niður með Magnúsi Tuma Guðmundssyni prófessor í jarðeðlisfræði í myndveri í beinni útsendingu og förum yfir stöðuna. Innlent 11.11.2023 18:20
Varð fyrir voðaskoti á rjúpnaveiðum Landhelgisgæslan vinnur nú að því að sækja mann sem varð fyrir voðaskoti á rjúpnaveiðum við Leggjabrjót. Skotið hæfði manninn í fótinn. Innlent 11.11.2023 17:44
„Verður hægt að fara heim aftur?“ Grindvíkingarnir Ögn Þórarinsdóttir og Hildur Fjóla Bridde eru í nokkru áfalli eftir að hafa yfirgefið heimili sín í gær. Óvissan er algjör. Innlent 11.11.2023 16:39
Segir Landsrétt þagga niður í konum með því að dæma sér í óvil Sindri Þór Sigríðarson, hvers ummæli í garð Ingólfs Þórarinssonar voru dæmd dauð og ómerk í Landsrétti í gær, segir dómstólinn hafa með niðurstöðu sinni þaggað niður í konum. Innlent 11.11.2023 16:23
Harkalegur árekstur við Skeiðarvogsbrú Árekstur var við Skeiðarvogsbrú um þrjúleytið í dag. Sjónarvottur telur að tveir bílar hafi lent í árekstri og segir að hann valdi einhverri umferðarteppu. Innlent 11.11.2023 15:23
Neyðarsöfnun hafin vegna jarðhræringa við Grindavík Rauði krossinn á Íslandi hefur sett í gang neyðarsöfnun vegna jarðhræringanna við Grindavík. Þetta kemur fram í tilkynningu. Innlent 11.11.2023 15:16
Virkja viðbragðsáætlun stjórnvalda og ferðaþjónustunnar Í ljósi þróunar jarðhræringa á Reykjanesi hefur viðbragðsáætlun stjórnvalda og ferðaþjónustunnar verið virkjuð. Markmið hennar er að tryggja skipulögð og samhæfð viðbrögð allra aðila á neyðartímum. Innlent 11.11.2023 15:07
Ekki nógu margir Grindvíkingar búnir að tilkynna sig Ekki hafa nógu margir Grindvíkingar tilkynnt verustað sinn í síma 1717. Slíkt er forsenda þess að hægt sé að skipuleggja skólahald. Innlent 11.11.2023 14:58
„Hugur minn er allur hjá fólkinu mínu“ Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkurbæjar, segir að hugur sinn sé fyrst og fremst hjá fólkinu sínu í Grindavík vegna atburða gærkvöldsins. Hann segir um að ræða ofboðslegt áfall og er þakklátur fyrir aðstoðina. Innlent 11.11.2023 13:04
Grindvíkingar fá ekki að fara heim næstu daga Fram kom á upplýsingafundi almannavarna að miklar líkur væru á eldgosi. Líkur væru á stærra eldgosi en við höfum séð síðustu ár. Íbúar munu ekki fá að fara heim næstu daga. Unnið er að því að koma börnum í skóla og finna þeim húsnæði sem ekki geta verið hjá ættingjum, vinum eða vandamönnum. Innlent 11.11.2023 12:30
Hádegisfréttir Bylgjunnar Upplýsingafundur almannavarna vegna eldhræringa á Reykjanesi og rýmingar í Grindavík verður fyrirferðarmikill í hádegisfréttum Bylgjunnar sem hefjast kl. 12:00. Innlent 11.11.2023 11:50