Innlent
315 316 317 318 319 320 321 322 323 … 334 ›
Gert að breyta sólpallinum í takt við teikningar frá 2006 Kærunefnd húsamála hefur úrskurðað að eiganda kjallaraíbúðar sem reisti sólpall út frá íbúð sinni verði að breyta sólpallinum í samræmi við teikningar frá árinu 2006. Sólpallurinn sé stærri en teikningar geri ráð fyrir og að breytingarnar verði gerðar á kostnað hans. Innlent 21.12.2023 08:00
Krefjast þess að Edda Björk verði dæmd í sautján mánaða fangelsi Ákæruvaldið í Noregi krefst þess að Edda Björk Arnardóttir verði dæmd í sautján mánaða fangelsi fyrir að hafa numið börn sín á brott frá Noregi. Þeir segja málið hafa verið föður barnanna afar þungbært. Innlent 21.12.2023 06:44
Vaktin: Engin gosvirkni sýnileg Vísindamenn á flugi yfir gosstöðvunum á Reykjanesskaga í morgun sáu enga gosvirkni. Virðist sem slokknað sé í gígum en glóð eru enn sjáanleg í hraunbreiðunni. Enn er þó of snemmt að lýsa yfir goslokum þar sem hraun gæti flætt í lokuðum rásum. Innlent 21.12.2023 06:28
Bæjarstjórn tekur fyrir altjónslista í næstu viku Altjónslisti frá Náttúrutryggingum Íslands (NTÍ) yfir hús í Grindavík verður tekinn fyrir af bæjarstjórn Grindavíkurbæjar á milli jóla og ný árs. Íbúi segist hafa fengið þau svör að ekki verði hægt að bæta tjón fyrr en afstaða liggi fyrir í málinu. Innlent 20.12.2023 23:00
Ríkið greiði borginni rúmlega 3,3 milljarða Ríkið hefur verið dæmt til að greiða Reykjavíkurborg tæplega 3,4 milljarða króna vegna ógreiddra framlaga þess fyrrnefnda úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Innlent 20.12.2023 21:14
Undrandi á tillögum Bjarna sem gangi gegn öllum hefðum Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði kveðst undrandi yfir tillögum Bjarna Benediktssonar um að Svanhildur Hólm Valsdóttir og Guðmundur Árnason verði skipuð sendiherrar. Innlent 20.12.2023 21:01
„Ég var dofinn bæði andlega og líkamlega“ Grindvíkingur segir fregnir af eldgosinu hafa slegið íbúa afar illa. Hann segist hafa verið dofinn líkamlega og andlega fyrst um sinn og að það sé erfitt að lifa í svona óvissu. Innlent 20.12.2023 20:01
Bjarni segir væntanlega sendiherra mikinn feng fyrir utanríkisþjónustuna Utanríkisráðherra segir mikinn feng fyrir utanríkisþjónustuna að fá fyrrverandi aðstoðarmann hans og ráðuneytisstjóra til starfa í utanríkisþjónustunni. Þingflokksformaður Pírata segir ráðherra nýta glufu í lögum til að skipa vini og gamla samstarfsmenn í sendiherrastöður. Innlent 20.12.2023 19:20
„Það eina sem við getum gert er bara að fylgjast með“ Uppfært hættumat Veðurstofunnar gerir ráð fyrir töluverðri hættu á gosopnun í Grindavík. Áður var hættan talin mikil. Náttúruvársérfræðingur segir stöðuna geta breyst hratt, eins og hún hafi þegar gert. Því sé ómögulegt að segja til um framhaldið. Innlent 20.12.2023 18:45
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Áfram dregur úr krafti eldgossins í Sundhnúkagígum. Afar skammur tími leið frá fyrstu merkjum um gos og þar til gosið sjálft hófst. Almannavarnir segja Grindvíkinga ekki fá að gista heima í það minnsta fyrr en gosinu lýkur. Innlent 20.12.2023 18:01
Mjög ósátt við samgöngur í Eyjum Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, segir Eyjamenn mjög ósátta við samgöngur sínar þessa dagana. Hún segir flug alltof stopult ásama tíma og Landeyjarhöfn er lokuð. Innlent 20.12.2023 17:34
Tíu þúsund króna dagsektir lögmætar að mati ráðuneytis Matvælaráðuneytið hefur staðfest lögmæti dagsekta Matvælastofnunar (MAST) á bónda vegna alvarlegra brota í búrekstri hans á lögum um dýravelferð og reglugerð um velferð nautgripa. Dagsektirnar voru tíu þúsund krónur á dag. Innlent 20.12.2023 17:11
Spurði „er þetta hann?“ og stakk hann fyrirvaralaust í brjóstið Candido Alberto Ferral Abreu hefur hlotið fjögurra ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir tilraun til manndráps. Honum var gefið að sök að stinga annan mann tvisvar sinnum með hnífi í brjósthol við bílastæði í Breiðholti að kvöldi til í mars árið 2021. Innlent 20.12.2023 17:09
Grindvíkingar gisti ekki meðan hraunið flæði Víðir Reynisson, sviðsstjóri Almannavarna, segir að á meðan gosið sé í gangi sé ekki öruggt að gista í Grindavík. Áhersluna sé að tryggja öryggi og velferð þeirra en aðbúnaður fyrir ferðamenn og þá sem vilja bera gosið augum sé aftarlega á listanum. Því segir hann göngustíg að gosstöðvunum ekki í forgangi, en seinna meir gæti það verið sett í skoðun. Innlent 20.12.2023 16:08
Flytja fólkið til Íslands frá Egyptalandi þegar það kemst frá Gasa Vinnumálastofnun hefur sent beiðni til Alþjóðlegu fólksflutningastofnunarinnar (IOM) vegna þeirra rúmlega hundrað einstaklinga sem eru á Gasa og eru komin með dvalarleyfi á Íslandi vegna fjölskyldusameiningar. Innlent 20.12.2023 15:54
Vilja ná tali af manni sem ók á barn á Selfossi Lögreglan á Suðurlandi vill komast í samband við ökumann bifreiðar sem ók utan í barn á Selfossi í morgun. Innlent 20.12.2023 15:02
Húsnæðisstuðningur framlengdur út veturinn Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ríkisstjórnina munu leggja til að húsnæðisstuðningur ríkisins við Grindvíkinga verði framlengdur út veturinn. Hann átti að renna sitt skeið í lok febrúar. Innlent 20.12.2023 14:43
Óttast að þjóðin fái leiða á Grindvíkingum og fjari undan hjálpseminni Fjölskyldufaðir sem býr í Grindavík óttast að þjóðin muni fá leið á Grindvíkingum og að fjara muni undan hjálpseminni sem var svo mikil í upphafi. Nú sé ljóst að Grindvíkingar muni þurfa á stuðningi og skilningi að halda lengur en áður var talið. Margir viti ekki einu sinni hvar þeir muni búa á nýju ári. Innlent 20.12.2023 14:22
Myndasyrpa: Glóandi jarðeldur í næturrökkri Eldgosið við Sundhnúksgíga hefur verið mikið sjónarspil þó nokkuð hafi dregið úr krafti þess síðan það hófst á mánudagskvöld. Ragnar Axelsson ljósmyndari, betur þekktur sem RAX, var við gosstöðvarnar í gærkvöldi og náði mögnuðum myndum af nýrri jörð myndast. Innlent 20.12.2023 13:52
Fagnar því um jólin að fá loksins lífsnauðsynleg lyf Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, listfræðingur og aðgerðasinni, fagnar því um þessar mundir að lyfið Evrysdi sé komið í kerfið og aðgengilegt þeim sem þjást af taugahrörnunarsjúkdóminum SMA. Lyfið á að geta stöðvað framvindu sjúkdómsins alveg. Innlent 20.12.2023 13:51
Bein útsending: Upplýsingafundur almannavarna vegna eldgoss Upplýsingafundur almannavarna vegna eldgossins við Sundhnúksgíga hefst klukkan 14. Innlent 20.12.2023 13:29
Reyndi að fá fjórtán ára stúlku með sér á hótelherbergi í Reykjanesbæ Karlmaður um fertugt hlaut á dögunum átta mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundin til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að tæla fjórtán ára stúlku og peningafals árið 2021. Maðurinn var sýknaður af kröfu ákæruvaldsins sem var á þá leið að maðurinn yrði dæmdur fyrir tilraun til nauðgunar á stúlkunni. Innlent 20.12.2023 13:08
Bjarni gengur fram af fólki með klíkuráðningum Bjarni Benediktsson var varla sestur í stól utanríkisráðherra þegar hann tók til við að skipa samherjum sínum á mikilvæga pósta í utanríkisþjónustunni. Ýmsir hafa þetta til marks um að Bjarni sé á útleið úr pólitík, jafnvel að ríkisstjórnin sé á síðustu metrunum og það sé verið að hafa það úr húsinu sem nýtilegt er. Innlent 20.12.2023 12:35
Síbrotamaður í fjögurra mánaða fangelsi fyrir hnéspark Karlmanni, sem hefur langan sakaferil að baki, hefur verið dæmdur fjögurra mánaða hegningarauki við fyrri dóm. Hann var sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, með því að hafa veitt manni hnéspark í höfuðið í verslunarmiðstöð í Reykjavík. Innlent 20.12.2023 12:14
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar höldum við áfram að fjalla um eldgosið í Sundhnúksgígum. Eldfjallafræðingur segist telja eldgosið í Sundhnúksgígum vera komið á lokastig. Það þurfi stóran atburð til að krafturinn í gosinu aukist á ný. Flæðið var áttatíu sinnum meira við upphaf goss en það er núna. Innlent 20.12.2023 12:03
Breiðfylking að myndast til að ná niður vöxtum og verðbólgu Formaður VR er bjartsýnn á að breiðfylking stéttarfélaga nái að gera sögulega kjarasamninga í janúar sem stuðli að verðbólguhjöðnun og vaxtalækkunum. Það skipti meira máli en nokkrir þúsundkallar til eða frá í launahækkunum. Innlent 20.12.2023 11:54
Fjölsóttar bænastundir vegna alvarlegs bílslyss Fjölmennar bænastundir voru haldnar á þremur stöðum í gær vegna alvarlegs bílslyss fyrir tæpri viku síðan. Kona á sjötugsaldri lést í slysinu. Tvö liggja enn þungt haldin á spítala. Innlent 20.12.2023 11:22
Valur felur Friðrik Knattspyrnufélagið Valur hefur ákveðið að fjarlægja styttu af séra Friðriki Friðrikssyni, stofnanda félagsins, sem hefur staðið á lóð félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herði Gunnarssyni, formanni Vals. Innlent 20.12.2023 11:04
„Sárt að horfa á fólk skemmta sér meðan maður sat með tárin í augunum“ Íbúi í Grindavík segir sárt að sjá landsmenn horfa á eldgosið við Sundhnúksgíga sem afþreyingu á meðan Grindvíkingar glíma við erfiðar tilfinningar. Grindvíkingar þurfi meiri vissu um hvað taki við á komandi mánuðum. Innlent 20.12.2023 11:00
Öll umferð bönnuð í Grindavík Eftir fund aðgerðastjórnar og vettvangsstjórnar nú í morgun hefur Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákveðið að banna alla umferð og viðveru í Grindavíkurbæ á meðan nýtt hættumatskort er í gildi. Innlent 20.12.2023 10:59