Golf

Sjálfvirku sláttuvélarnar á íslenskum golfvelli vöktu athygli CNN
Íslenskt golf hefur fengið mikla umfjöllun á CNN að undanförnu og í nýjustu greininni má finna umfjöllun um hvernig Íslendingar eru að fara nýjar leiðir í nálgun sinni sem gæti haft áhrif á golfíþróttina fyrir utan landsteinana.

Haukur hættir eftir átta ár sem forseti
Eftir átta ár sem forseti Golfsambands Íslands hefur Haukur Örn Birgisson ákveðið að láta gott heita. Nýr forseti mun því taka við í næsta mánuði.

Rory McIlroy með PGA-titil númer tuttugu: Þetta var risastórt
Norður-írski kylfingurinn Rory McIlroy reif sig upp eftir vonbrigði Ryderbikarsins á dögunum með því að vinna CJ Cup mótið í Las Vegas um helgina.

Jordan við Curry: Golfið er erfiðara en körfuboltinn
Afreksmennirnir Michael Jordan og Stephen Curry eiga það ekki aðeins sameiginlegt að vera einstakir leikmenn í NBA körfuboltanum heldur eru þeir líka báðir miklir golfáhugamenn.

Faðmlag helgarinnar kom eftir sigur Bandaríkjamanna í Ryderbikarnum
Bandaríkjamenn unnu Ryderbikarinn í golfi í fyrsta sinn síðan 2016 eftir öruggan 19-9 sigur á Evrópuúrvalinu um helgina.

Nýbakaða mamman Ólafía Þórunn tók aftur fram kylfurnar sínar fyrir CNN
Það þurfti eina af þekktustu sjónvarpsstöðvum heims til að koma íslenska kylfingnum Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur aftur út á golfvöllinn.

Öruggur sigur Bandaríkjanna í Ryder bikarnum
Bandríkin eru sigurvegari í Ryder bikarnum eftir að hafa unnið öruggan sigur á evrópska liðinu 19-9. Sigurinn var í raun aldrei í hættu en Bandaríkin leiddu frá upphafi til enda.

Lokadagur Ryder-bikarsins fer fram í dag | Rástímarnir klárir
Evrópska liðið þarf á kraftaverki að halda á lokadegi Ryder-bikarsins í golfi sem fram fer í dag. Liðið þarf að sækja níu vinninga af tólf mögulegum.

Evrópumenn þurfa kraftaverk til að vinna Ryder-bikarinn
Kraftaverk þarf að eiga sér stað til að Evrópa eigi möguleika á því að vinna Ryder-bikarinn. Staðan fyrir lokadaginn er 11-5, Bandaríkjamönnum í vil og þurfa Evrópumenn að tryggja sér níu stig á morgun til að halda bikarnum.

Bandaríkin sterkari á fyrsta degi Ryder bikarsins
Bandaríkin eru yfir í Ryder bikarnum eftir fyrsta daginn með sex vinninga gegn tveimur vinningum Evrópu. Leikið var í fjórmenningi og fjórleik í gær.

Bandaríkin leiða í Ryder-bikarnum eftir að lenda undir
Evrópa tók fyrsta slag dagsins er Jon Rahm og Sergio Garcia unnu sigur á Jordan Spieth og Justin Thomas. Bandaríkin létu það ekki slá sig út af laginu og unnu hina þrjá leiki dagsins og leiða því 3-1 sem stendur.

Ryderbikarinn byrjar á svakalegum leik í hádeginu í dag
Það er óhætt að segja að stóru byssurnar verði dregnar fram þegar 43. Ryderbikarinn hefst í dag í Wisconsin fylki í Bandaríkjunum.

Ryder Cup hefst á morgun: „Ég hvet alla íþróttaáhugamenn að horfa á þetta mót“
Golfsérfræðingurinn Þorsteinn Hallgrímsson ræddi við Stöð 2 í dag í aðdraganda Ryder Cup sem hefst á morgun. Hann segir að mikil eftirvænting sé fyrir mótinu og hvetur alla íþróttaáhugamenn að fylgjast vel með.

Ostahattar Ryderliðs Evrópu vöktu mikla athygli
Evrópsku kylfingarnir eru alveg til í smá fíflalæti nú þegar þeir byggja upp stemmninguna innan síns liðs fyrir keppnina á móti öflugu bandarísku Ryderliði.

Vill grafa stríðsöxina eftir leiðindi á milli liðsfélaga
Þjálfari Brysons DeChambeau segir að kylfingurinn vilji sættast við Brooks Koepka, liðsfélaga sinn í bandaríska landsliðinu sem mætir úrvalsliði Evrópu í Ryder-bikarnum í golfi um helgina.

Curry tilbúinn að fórna tönnum og fleiru viðkvæmu fyrir brelluhögg Mickelson
Körfuboltastjarnan Steph Curry er einn af mikilvægustu og verðmætustu leikmönnum NBA-deildarinnar og eigendur og þjálfarar Golden State Warriors hafi örugglega svitnað aðeins þegar þeir sáu nýtt myndband með kappanum.

Patrick Cantlay leiðir fyrir lokadaginn
Bandaríkjamaðurinn Patrick Cantlay er enn í forystu fyrir lokahringinn á Tour Championship, lokamóti PGA-mótaraðarinnar, sem fram fer á East Lake-vellinum í Georgíuríki í Bandaríkjunum.

Óttaðist um líf sitt: Hélt ég myndi aldrei sjá konu mína og börn aftur
Bandaríski kylfingurinn Patrick Reed segist hafa farið niður dimman dal er hann barðist fyrir lífi sínu vegna tvöfaldrar lungnabólgu í síðasta mánuði. Hann er mættur aftur á völlinn á Tour Championship-mótið sem stendur yfir.

Rahm bestur báða dagana en Cantley í forystu
Bandaríkjamaðurinn Patrick Cantley er enn í forystu að tveimur hringjum loknum á Tour Championship, lokamóti PGA-mótaraðarinnar, sem fram fer á East Lake-vellinum í Georgíuríki í Bandaríkjunum.

Besti árangur Haraldar á Áskorendamótaröðinni
Kylfingurinn Haraldur Magnús Franklín átti gott mót í Hollandi um helgina þar sem hann tók þatt í Áskorendamótaröðinni í golfi.

J. R. Smith fær leyfi til að keppa með skólaliðinu
J. R. Smith, fyrrum leikmaður NBA-deildarinnar í körfubolta, skráði sig nýverið í háskóla og ákvað að skrá sig í golflið skólans í leiðinni. Hann hefur nú fengið keppnisleyfi og mun því spila með skólaliðinu, NC A&T Aggies, á meðan námi stendur.

Stóðst pressuna í bráðabananum og fór með sigur af hólmi
Tony Finau fékk örn og þrjá fugla er hann fór í bráðabana gegn Cameron Smith um hver myndi fara með sigur af hólmi í Northern Trust-golfmótinu um helgina. Fimm ára bið Finau eftir sigri á PGA-mótaröðinni er því loks lokið.

Fyrrum NBA-stjarna sest aftur á skólabekk og stefnir á að spila golf
Hinn 35 ára gamli J.R. Smith er sestur aftur á skólabekk og stefnir á að spila með golfliði skólans samhliða námi. Smith varð tvívegis NBA-meistari á ferli sínum en virðist hafa fundið sér ný áhugamál eftir að skórnir fóru upp í hillu.

Anna Nordqvist fann loks styrkinn sem hafði vantað svo lengi og sigraði Opna breska
Sænski kylfingurinn Anna Nordqvist vann sitt þriðja risamót er hún landaði sigri á Opna breska meistaramótinu í golfi. Nordqvist hefur átt erfitt uppdráttar undanfarin ár og því var sigurinn einkar kærkominn.

Norðurlandabarátta fyrir lokahringinn á Opna breska
Hin sænska Anna Nordqvist lék besta hring mótsins á Opna breska meistaramótinu í golfi á Carnoustie-vellinum í Skotlandi í gær. Hún deilir forystunni með hinni dönsku Nönnu Koertz Madsen á afar jöfnu móti. Lokahringurinn fer fram í dag.

Lokahring The Northern Trust-mótsins frestað vegna slæmrar veðurspár
Lokahring The Northern Trust-mótsins, sem fara átti fram á morgun, hefur verið frestað fram á mánudag vegna slæmrar veðurspár. Hitabeltisstormurinn Henri setur strik í reikninginn.

Tvær í forystu þegar keppni er hálfnuð - þeirri bestu fataðist flugið
Spennan er mikil á toppnum á Opna breska mótinu í golfi sem fram fer á Carnoustie-vellinum í Skotlandi. Þriðji hringur mótsins hefst í dag.

Ólympíumeistarinn byrjar vel á opna breska hjá konunum
Bandaríski kylfingurinn Nelly Korda var ein af þremur kylfingum sem léku best á fyrsta degi á opna breska meistaramótinu í golfi.

Kisner sigraði eftir sex manna bráðabana
Lokakaflinn á Wyndham meistaramótinu var æsispennandi en að lokum var það Bandaríkjamaðurinn Kevin Kisner sem stóð uppi sem sigurvegari.

Wyndham meistaramótið: Henley leiðir enn
Russell Henley er í forystunni á Wyndham meistaramótinu á PGA mótaröðinni í golfi eftir þrjá hringi. Henley hefur leitt mótið svo gott sem frá upphafi en hann hefur leikið frábært golf alla þrjá dagana hingað til.