Handbolti
122 123 124 125 126 127 128 129 130 … 334 ›
Öruggt hjá Fram á Akureyri Fram gerði góða ferð til Akureyrar í Olís deild kvenna og vann ellefu marka sigur á KA/Þór, lokatölur 24-35. Handbolti 12.11.2022 16:36
Umfjöllun: ÍBV - Grótta 34-31 | Rúnar dró vagninn gegn Seltyrningum Eyjamenn tóku á móti Gróttu í níundu umferð Olís deildar karla en Eyjamenn höfðu fyrir leik tapað tveimur deildarleikjum í röð og unnu síðast í deildinni fyrir meira en mánuði síðan. Leikurinn í dag var leikinn af krafti og endaði með þriggja marka sigri ÍBV, 34-31. Handbolti 12.11.2022 15:45
Umfjöllun: ÍBV - Selfoss 32-27 | Eyjakonur unnu síðast í Eyjum í september ÍBV tók á móti Selfossi í sjöttu umferð Olís deild kvenna en heimaskonur unnu síðast deildarleik í Vestmanneyjum 17. september síðastliðinn. Eyjakonur höfðu betur og unnu fimm marka sigur, 32-27. Handbolti 12.11.2022 15:30
Álaborg marði Ribe-Esbjerg án Arons Íslendingaliðin Álaborg og Ribe-Esbjerg mættust í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Heimamenn voru án Arons Pálmarsson en það kom ekki að sök þar sem þeir unnu eins marks sigur, 29-28. Handbolti 12.11.2022 15:15
Hörður kvartar til EHF vegna framkomu lettneska sambandsins Lið Harðar í Olís deild karla hefur fengið nóg af framkomu lettneska handknattleikssambandsins í sinn garð. Hefur Hörður lagt inn formlega kvörtun til Handknattleikssambands Evrópu, EHF. Frá þessu var greint á Facebook síðu Hattar. Handbolti 12.11.2022 09:46
Flautumark tryggði Rúmeníu sigur Rúmenía vann Spán með minnsta mun í milliriðli Evrópumóts kvenna í handbolta. Sigurmarkið kom í þann mund sem lokaflautið gall. Fyrr í dag vann Þýskaland sannfærðan sigur á Hollandi. Handbolti 11.11.2022 21:30
Slóvenía vann stórsigur og Danir kreistu fram sigur gegn Ungverjum Keppni í milliriðlum Evópumóts kvenna í handbolta hófst í kvöld með tveimur leikjum. Slóvenía vann öruggan átta marka sigur gegn Króötum, 26-18, og Danir þurftu að hafa fyrir hlutunum gegn Ungverjum, en unnu að lokum nauman tveggja marka sigur, 29-27. Handbolti 10.11.2022 21:10
Viggó fór á kostum í fyrsta leik Rúnars | Gummersbach hafði betur í Íslendingaslag Nýliðar Gummersbach, undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar og með þá Elliða Snæ Vignisson og Hákon Daða Styrmisson innanborðs, unnu virkilega sterkan tveggja marka sigur er liðið tók á móti Teiti Erni Einarssyni og félögum hans í Flensburg í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 31-29. Þá fór Viggó Kristjánsson á kostum er Leipzig vann nauman eins marks sigur gegn Wetzlar í fyrsta leik liðsins undir stjórn Rúnars Sigtryggssonar. Handbolti 10.11.2022 19:53
Óðinn fór á kostum í stórsigri meistaranna Óðinn Þór Ríkharðsson gerði sér lítið fyrir og skoraði 13 mörk fyrir svissnesku meistaranna í Kadetten er liðið vann afar öruggan 14 marka sigur gegn RTV Basel í kvöld, 36-22. Handbolti 10.11.2022 19:40
Orðlaus yfir mögnuðum tilþrifum Benedikts Valsmenn urðu á dögunum fyrsta íslenska liðið í sögunni til að vinna tvo Evrópuleiki í röð þegar liðið vann þriggja marka sigur gegn Benidorm á útivelli. Áður hafði liðið unnið fjögurra marka sigur gegn ungverska liðinu Ferencváros og leikmenn Vals eru farnir að vekja athygli fyrir utan landsteinana. Handbolti 10.11.2022 17:46
Fagnaði marki mótherjanna á EM Enn á ný komu upp stórundarlegar aðstæður á stórmóti í handbolta þegar Spánn og Þýskaland spiluðu í lokaleik sínum í riðlinum á HM kvenna í handbolta í gær. Handbolti 10.11.2022 16:30
Njósnamál komið upp á EM kvenna í handbolta Evrópumót kvenna í handbolta er í fullum gangi en það er mikið hitamál komið upp á milli tveggja þjóða úr gömlu Júgóslavíu. Handbolti 10.11.2022 09:31
Elvar allt í öllu þegar Esbjerg-þríeykið lagði landsliðsþjálfarann Áhugaverður leikur var í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld þar sem Ribe-Esbjerg og Fredericia Håndboldklub mættust. Þrír Íslendingar spila með fyrrnefnda liðinu og einn með því síðarnefnda sem og Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari Íslands, er þjálfari Fredericia. Handbolti 9.11.2022 23:01
Stórleikur Gísla Þorgeirs dugði ekki til Þýskalandsmeistararnir í Magdeburg náðu aðeins jafntefli á heimavelli gegn Rhein Neckar Löwen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Þá vann Melsungen góðan sex marka sigur á Göppingen á útivelli. Handbolti 9.11.2022 21:45
Frakkland hirti toppsætið | Spánn í milliriðil Frakkland og Holland mættust í leik um fyrsta sæti C-riðils á Evrópumóti kvenna í handbolta í kvöld. Franska liðið fór með sigur af hólmi og fer því með fjögur stig í milliriðla. Spánn lagði Þýskaland í D-riðli og tryggði sér þar með sæti í milliriðli. Handbolti 9.11.2022 21:31
Svartfjallaland áfram með fullt hús stiga Svartfjallaland flaug inn í milliriðil á EM kvenna í handbolta eftir þriggja marka sigur á Póllandi, 26-23. Svartfellingar hafa unnið alla þrjá leiki sína og eru til alls líklegar. Handbolti 9.11.2022 19:15
Ætlaði alls ekki að verða þjálfari en er nú tekinn við uppeldisfélaginu Þótt Haukar hafi áður leitað til Ásgeirs Arnar Hallgrímssonar segir hann að nú hafi hann ekki getað sagt nei við uppeldisfélagið. Handbolti 9.11.2022 14:06
Ásgeir Örn tekur við Haukum Ásgeir Örn Hallgrímsson hefur verið ráðinn þjálfari Hauka í Olís-deild karla til 2025. Hann tekur við liðinu af Rúnari Sigtryggssyni. Handbolti 9.11.2022 11:51
„Fyrir þremur árum var þetta efnilegasti leikmaður á Íslandi en núna spilar hann ekki handbolta“ Arnar Daði Arnarsson og Theodór Ingi Pálmason eru undrandi á meðferðinni sem Tryggvi Garðar Jónsson fær hjá Val. Handbolti 9.11.2022 10:31
Noregur í milliriðil með fullt hús stiga | Danir misstu af toppsætinu þrátt fyrir sigur gegn Svíum Keppni í A- og B-riðli Evrópumóts kvenna í handknattleik er nú lokið, en fjórir leikir fóru fram í kvöld. Norsku stelpurnar hans Þóris Hergeirssonar unnu öruggan tíu marka sigur gegn Ungverjum í A-riðli, 32-22, og á sama tíma unnu Danir tveggja marka sigur gegn Svíum, 25-23, en þurfa að sætta sig við annað sæti riðilsins. Handbolti 8.11.2022 21:00
Aron og félagar enn taplausir á toppnum Aron Pálmarsson og félagar hans í liði Álaborgar unnu sterkan þriggja marka sigur er liðið heimsótti Holstebro í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 23-26. Handbolti 8.11.2022 19:46
Ásgeir Örn líklegastur til að taka við Haukum Rúnar Sigtryggsson sem þjálfað hefur Hauka í Olís-deild karla í handbolta er hættur og hefur samið við Leipzig sem leikur í þýsku úrvalsdeildinni. Ásgeir Örn Hallgrímsson þykir líklegasti arftaki Rúnars hjá Hafnarfjarðarliðinu. Handbolti 8.11.2022 19:30
Rúnar óvænt tekinn við Leipzig Handknattleiksþjálfarinn Rúnar Sigtryggsson er hættur hjá Haukum og tekinn við þýska liðinu Leipzig. Handbolti 8.11.2022 15:36
Fyrrverandi leikmaður Anorthosis hissa á því að þeir hafi rústað Haukum Fyrrverandi leikmaður Anorthosis á Kýpur var undrandi á því hversu auðveldlega liðið vann Hauka í Evrópubikarnum í handbolta karla. Haukar féllu úr leik fyrir Anorthosis eftir tólf marka samanlagt tap, 62-50. Handbolti 8.11.2022 15:01
Stubbarnir í Kaplakrika Hvolpasveit Vals var aðal barnaefnið í Olís-deild karla á síðasta tímabili. Nú er nýtt efni á dagskránni; Stubbarnir í Kaplakrika. Handbolti 8.11.2022 12:01
Michal Tonar mætir með strákana sína til Eyja ÍBV mætir Tékklandsmeisturum Dukla Prag í 32-liða úrslitum Evrópubikars karla í handbolta. Dregið var í morgun. Handbolti 8.11.2022 11:06
„Eru að hugsa um sjálfa sig eða einhverja tölfræði eða blablablablabla“ Arnar Daði Arnarsson hélt mikla eldræðu um lið Stjörnunnar í Seinni bylgjunni í gær. Stjörnumenn unnu ÍR-inga, 33-28, á sunnudagskvöldið. Sigurinn var þó tæpari en í stefndi í hálfleik. Handbolti 8.11.2022 11:01
Snorri Steinn: Vantar ekki dagana hjá okkur til þess að létta á álaginu Valur vann í kvöld fimm marka sannfærandi sigur á Selfyssingum. Lokatölur 38-33 í Origo höllinni. Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, var að vonum sáttur með frammistöðu sinna manna í kvöld. Handbolti 7.11.2022 23:00
Frakkland, Holland og Svartfjallaland með fullt hús stiga Öllum fjórum leikjum dagsins á EM kvenna í handbolta er nú lokið. Frakkland, Holland og Svartfjallaland eru öll með tvo sigra að loknum tveimur leikjum. Þá er Pólland komið á blað eftir nauman sigur á Spáni. Handbolti 7.11.2022 21:30
Umfjöllun: Valur - Selfoss 38-33 | Fagmannleg frammistaða hjá meisturunum Valur mætti Selfyssingum að Hlíðarenda í kvöld í 8. umferð Olís-deildarinnar. Lauk leiknum með þægilegum sigri heimamanna í Val. Lokatölur 38-33 í leik sem Valur leiddi frá upphafi til enda. Handbolti 7.11.2022 21:00