Handbolti

Líkurnar á að Ísland komist í átta liða úrslit aukist um 66 prósent
Í tilefni þess að íslenska karlalandsliðið í handbolta hefur leik í milliriðli á HM í dag var Háskólinn í Reykjavík með sérstaka HR stofu. Gestir hennar voru Patrekur Jóhannesson og Arnar Pétursson auk þess sem Dr. Peter O'Donoghue kynnti uppfært spálíkan sitt.

Sjáðu stemninguna hjá stórum hópi Íslendinga í Zagreb
Fjöldi Íslendinga er saman kominn í Zagreb í Króatíu til að fylgjast með íslenska karlalandsliðinu í handbolta á heimsmeistaramótinu.

Orri Freyr er Orri óstöðvandi
Sögupersónan vinsæla, Orri óstöðvandi, er nefnd í höfuðið á Orra Frey Þorkelssyni, landsliðsmanni í handbolta. Bjarni Fritzson, höfundur bókanna um Orra óstöðvandi, ljóstraði þessu upp í Pallborðinu.

Svona var Pallborðið: Handboltaæði runnið á þjóðina
Stefán Árni Pálsson hitaði upp fyrir leik Íslands og Egyptalands og keppni í milliriðlum á heimsmeistaramótinu í handbolta karla, ásamt þeim Ásgeiri Erni Hallgrímssyni og Bjarna Fritzsyni, í Pallborðinu.

„Þetta er miklu skemmtilegra“
Viggó Kristjánsson var markahæstur í íslenska landsliðinu í sigri liðsins á Slóveníu í fyrrakvöld. Hann nýtur sín vel og hlakkar til leiksins við Egyptaland í kvöld.

„Ég er ekkert viss um að við náum aftur þessari geðveiki“
Íslenska handboltalandsliðið hefur unnið fyrstu þrjá leiki sína á heimsmeistaramótinu en í kvöld reynir á liðið á móti öðru liði með fullt hús.

Gætið ykkar: Dodo-skortur en Egypski Omar ætlar að vinna HM
Ísland á fyrir höndum afar erfiðan leik gegn Egyptalandi á HM í handbolta í kvöld. Egyptar hafa síðustu ár verið með langsterkasta liðið utan Evrópu og átt fast sæti í hópi átta efstu á HM, og þangað stefna þeir líkt og Íslendingar.

Þjóðverjar í sárum eftir „Herning helvítið“
Strákarnir hans Alfreðs Gíslasonar í þýska handboltalandsliðinu voru teknir í bakaríið þegar þeir mættu Danmörku í milliriðli á HM í gærkvöldi. Þjóðverjar töpuðu leiknum, 40-30, og þýskir fjölmiðlar voru ekki með hýrri há eftir leikinn.

HM í dag: Meiðsli í miðjum þætti og heyrnartólin lentu upp í sveit
Það er leikdagur á HM í Zagreb og ýmislegt sem þurfti að fara yfir í HM í dag.

Mögulega leikþáttur hjá Egyptum
„Það versta sem við gerum er að staldra við þennan leik og fara að hrósa okkur of mikið,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta, og á þar við sigur Íslands á Slóveníu í fyrrakvöld. Öll einbeiting er á Egyptum sem strákarnir mæta í kvöld.

„Það er einhver ára yfir liðinu“
Aron Pálmarsson missti af fyrsta leik Íslands á HM vegna meiðsla og í fyrstu átti hann ekkert að spila fyrr en í milliriðlinum. Sem betur fer náði hann heilsu fyrr og hefur verið frábær.

„Alltaf óþolandi að klikka“
Orri Freyr Þorkelsson hefur slegið í gegn með íslenska landsliðinu á HM. Nýtt færin sín vel og er að slá eign sinni á vinstri hornamannsstöðunni.

Danir ekki í vandræðum með Þjóðverja
Ef marka má úrslit leiks Danmerkur og Þýskalands á HM karla í handbolta þá eru allar líkur á að Danir verji titilinn enn á ný.

„Ég spurði mömmu nú ekki hvað fór þeim á milli“
Gísli Þorgeir Kristjánsson kveðst ekki vita hvað fór á milli móður hans Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, og Hassan Moustafa, forseta Alþjóðahandknattleikssambandsins, á leik Íslands og Slóveníu í gær. Gísli gat þó notið dagsins með fjölskyldunni í Zagreb.

Holland marði Katar
Holland hóf veru sína í milliriðli heimsmeistaramóts karla í handbolta á naumum eins marks sigri á Katar. Þá vann Ítalía góðan sjö marka sigur á Tékklandi.

Sveinn meiddist á æfingu landsliðsins
Óhapp varð á æfingu íslenska landsliðsins í Zagreb nú síðdegis.

Nær því að mæta Íslandi eftir magnað langskot í lokin
Filip Kuzmanovski tryggði Norður-Makedóníu stig gegn Austurríki í dag með mögnuðu langskoti á síðustu stundu, í 29-29 jafntefli á HM í handbolta. Sviss vann stórsigur á Túnis.

Svarar Óla Stef: „Er alveg sammála honum“
Landsliðsmaðurinn Viggó Kristjánsson kippir sér ekki mikið upp við það að Ólafur Stefánsson hristi hausinn yfir nýlegum skiptum hans til Erlangen í Þýskalandi.

Grjóthörð Díana spilaði ristarbrotin
Díana Dögg Magnúsdóttir, landsliðskona í handbolta, verður frá keppni næstu vikurnar eftir að hafa ristarbrotnað í leik með HSG Blomberg-Lippe í Evrópudeildinni. Hún spilaði seinni hálfleikinn ristarbrotin.

Aldrei í sögunni skorað eins fá mörk og gegn Viktori
Þrátt fyrir að hafa spilað á ellefu heimsmeistaramótum þá hefur handboltalandslið Slóveníu aldrei skorað eins fá mörk og í gær, gegn Viktori Gísla Hallgrímssyni og íslenska varnarmúrnum.

Viktor óskar eftir hárgreiðslumanni í Zagreb
Viktor Gísli Hallgrímsson, hetja gærkvöldsins hjá íslenska karlalandsliðinu í handbolta, leitar hárgreiðslumanns í króatísku höfuðborginni.

„Mér fannst Aron snúa algjörlega okkar sóknarleik við“
Varnarleikurinn og markvarslan fékk mikla athygli eftir sigurinn á Slóvenum í gærkvöldi en í Besta sætinu var einnig rætt um sóknarleik íslenska liðsins og innkomu fyrirliðans Arons Pálmarssonar um miðjan fyrri hálfleik.

Hræddist Alfreð en þarf að horfast í augu við hann í kvöld
Magnus Landin, einn af stjörnuleikmönnum danska landsliðsins í handbolta, segist lengi vel hafa hræðst Alfreð Gíslason, núverandi landsliðsþjálfara Þýskalands. Danmörk og Þýskaland mætast í milliriðlum HM í handbolta í kvöld.

„Þú þarft að vera dálítið leiðinlegur“
Íslendingar elska hona svokölluðu íslensku geðveiki hjá landsliðunum okkar en það þýðir líka að strákarnir okkar eru ekki að stefna á nein vinsældarverðlaun. Þeir bíta frá sér og láta vel finna fyrir sér í vörninni.

HM í dag: Forseti IHF sagður hafa beðið Þorgerði Katrínu um að afhenda verðlaunin
Það var loksins hægt að tala almennilega í handbolta í HM í dag enda var Ísland loksins að spila alvöru leik á mótinu.

Haukar og Valur sluppu við að mætast
Nú er orðið ljóst hverjir mótherjar Vals og Hauka verða í 8-liða úrslitum EHF-keppni kvenna í handbolta. Þau drógust ekki saman og ef íslensku liðin komast áfram þá mætast þau ekki heldur í undanúrslitunum.

„Hann á eftir að verða betri, áttiði ykkur á því“
Einar Jónsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson mættu til Stefáns Árna Pálssonar í Besta sætið og fóru yfir magnaðan sigur Íslands á Slóveníu á HM í handbolta.

Íslenskt stuðningsfólk varar við svindli í höllinni
Ísland vann frábæran 23-18 sigur á Slóveníu á HM karla í handbolta í gærkvöld en kvöldið gekk þó ekki áfallalaust fyrir sig hjá öllum Íslendingum í íþróttahöllinni í Zagreb.

Stærsta blað Slóveníu: Sársaukafull kennslustund
Stærsta blað Slóveníu segir að slóvensku leikmennirnir hafi fallið á fyrsta stóra prófinu sínu á heimsmeistaramótinu í handbolta.

Myndasyrpa frá mögnuðum varnarsigri á Slóveníu
Ísland vann magnaðan sigur á Slóveníu í lokaleik sínum í riðlakeppni HM karla í handbolta. Vörnin lagði grunninn að sigrinum sem þýðir að strákarnir okkar fara með fullt hús stiga í milliriðil.