
Tónlist

Frumsýnir nýtt myndband: Auður orðinn Luthersson
Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, eða Auður, sendir frá sér stuttmyndband við lagið I Can Always Picture You sem kom út síðastliðinn föstudag og er frumsýnt hér að neðan. Lagið var gefið út samtísmis á ensku og íslensku og kemur út undir listamannsnafninu Luthersson.

Selur tösku og eitt eintak af nýrri plötu á eina milljón
„Útgáfudagur plötunnar er enn leyndó,“ segir tónlistarmaðurinn ISSI hefur að undanförnu unnið hörðum höndum að glænýrri plötu sem ber heitið 21. Fyrr í dag birti hann færslu á Instagram þar sem hann auglýsir tösku og eitt eintak af plötunni til sölu á milljón krónur.

Súrrealískt að djamma með Zöru Larsson
„Ég var á einhverju bleiku skýi, þetta er alveg besta kvöld lífs míns,“ segir plötusnúðurinn Guðbjörg Ýr, jafnan þekkt sem DJ Gugga. Gugga átti heldur betur ævintýralegt kvöld síðastliðinn laugardag á flöskuborði með sænsku stórstjörnunni Zöru Larsson.

Sigur Rós endar túrinn með Elju í Hörpu
Sigur Rós er á leið í tónleikaferðalag með strengjasveit um Norðurlöndin. Ferðalagið mun enda í Eldborg í Hörpu í desember næstkomandi. Sveitin mun þar koma fram ásamt kammersveitinni Elju.

Vampíra vann Músíktilraunir
Hljómsveitin Vampíra stóð uppi sem sigurvegari í Músíktilraunum sem lauk í kvöld að loknum fjórum undankvöldum í Hörpu. Eló hafnaði í öðru sæti og Chögma í því þriðja.

Númer 3 en stefna á toppinn
Ragnar Steinn Þórsson og Oddur Þórisson hafa unnið saman að tónlist undanfarin fimm ár og ákváðu í lok síðasta árs að slá loksins til og gefa út tónlist undir nafninu Númer 3. Þeir hafa gefið út eina smáskífu og eina plötu og eru hvergi nærri hættir.

Patr!k og Laufey meðal handhafa Íslensku tónlistarverðlaunanna
Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í kvöld í Silfurbergi í Hörpu. Fjöldi tónlistarmanna steig á svið og var veislustjórn í höndum mandólínleikarans og Geirfuglsins Freys Eyjólfssonar.

Jói Pé og Króli snúa aftur
Eitt þekktasta tvíeyki landsins í tónlistarmönnunum Jóa Pé og Króla snúa aftur saman. Þeir eru að gefa út plötu næstkomandi föstudag en um er að ræða fyrstu plötu strákanna saman í fjögur ár. Þá boða þeir tónleika í Gamla Bíó og á Sjallanum í næstu viku.

Fer á tónleika um allan heim og hangir með stórstjörnu
Lífskúnstnerinn Heimir Ingi Róbertsson er 20 ára gamall og elskar fátt meira en að ferðast og fara á tónleika. Hann hefur mikinn áhuga á poppkúltúr og hefur nú þegar séð flest af sínu uppáhalds tónlistarfólki á sviði.

All By Myself-söngvarinn Eric Carmen látinn
Bandaríski söngvarinn Eric Carmen er látinn, 74 ára að aldri. Hann var forsprakki sveitarinnar The Raspberries og átti síðar eftir að njóta vinsælda með lögum á borð við All By Myself, Hungry Eyes og Never Gonna Fall In Love Again.

Elíta íslenska rappsins tryllti lýðinn í Iðnó
„Þetta var bara ótrúlegt kvöld og fór alveg vonum framar,“ segir tónlistarmaðurinn og rapparinn Ízleifur. Hann stóð fyrir stöppuðum útgáfutónleikum í Iðnó síðastliðið föstudagskvöld þar sem úrvalslið rappara steig á svið með honum.

„Ég var í mörg ár að fá sjálfa mig til baka“
„Það er baráttukona í mér en það kom mér rosalega á óvart hvað ég var hugrökk í þessu ferli,“ segir tónlistarkonan Jóna Margrét sem hafnaði nýverið öðru sæti í Idolinu. Blaðamaður ræddi við Jónu um tónlistina, taugaáfall í æsku, að byggja sig upp, hafa trú á sér, tileinka sér jákvætt og kraftmikið hugarfar og taka framtíðinni opnum örmum.

Frumsýning: Rándýr í aðalhlutverki í nýju tónlistarmyndbandi
Tónlistarmennirnir Prettyboitjokkó og Daniil gáfu nýverið út lagið Sama um. Þeir voru nú að senda frá sér tónlistarmyndband við lagið sem var tekið upp í Dúbaí og frumsýnt hér að neðan.

Langar að breyta senunni og koma inn með jákvæðnina
„Ég hef aldrei staðið jafn hratt upp til að segja pabba að ég væri kominn í fyrsta sæti,“ segir tónlistarmaðurinn Daníel Dagur Hermannsson, jafnan þekktur sem Danjel. Daníel er sautján ára gamall og stefnir langt í tónlistarbransanum en lagið hans SWAGGED OUT skaust á toppinn á streymisveitunni Spotify í síðustu viku.

Þessi eru tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2024
Tilnefningar til íslensku tónlistarverðlaunanna voru tilkynntar í kvöld og fjölbreyttur hópur tónlistarfólks er tilnefndur í ár. Verðlaunin verða veitt í Hörpu 12. mars næstkomandi.

Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna
Tilkynnt verður um það hverjir verða tilnefndir til Íslensku tónlistarverðlaunanna í ár klukkan fimm í dag.

GKR gefur út nýja plötu: „Ég er ekki eins og ég var þegar ég var yngri“
Rapparinn GKR gaf út sína fyrstu plötu í sex ár á föstudaginn í síðustu viku. Hann vill að fólk túlki á eigin hátt um hvað platan er og það hafa tekið langan tíma að byggja upp sjálfsöryggið og viljann til þess að koma sér aftur á sjónarsviðið.

Skrifaði undir draumasamninginn og hlakkar til að spila erlendis
„Mér líður best þegar að ég er að spila og það er flæði, þar sem ég er ekki að hugsa of mikið. Það fékk að njóta sín á þessari plötu,“ segir tónlistarmaðurinn Mikael Máni, sem var að skrifa undir plötusamning við útgáfufyrirtækið Act í Þýskandi.

Mikil líkindi með lögum Heru og Demi Lovato
Ekki væri neitt Eurovision án þess að fram komi ásakanir um lagastuld. Nú er lagið Við förum hærra sem Hera Björk syngur í skotlínunni.

Young Karin með endurkomu inn í íslenskt tónlistarlíf
Tónlistarkonurnar Young Karin og Fríd voru að senda frá sér lagið NOT INTO ME. Þetta er fyrsta samstarfsverkefnið sem Fríd vinnur að og sömuleiðis fyrsta lagið sem Karin sendir frá sér í rúm fjögur ár. Blaðamaður tók púlsinn á tvíeykinu.

Íslendingar „eigi að skammast sín“ fái hann ekki stig í Eurovision
Isaak Guderian bar í gær sigur úr býtum í Söngvakeppni Þýskalands og mun því keppa fyrir hönd landsins í Eurovision í Malmö í Svíþjóð. Isaak er hálf-íslenskur en móðir hans er íslensk.

Langaði að ramma inn örvæntinguna
Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á tónlistarmyndbandi við ástsæla lagið Hvers vegna varst’ekki kyrr, hér í ábreiðu Sölku Valsdóttur, neonme, fyrir kvikmyndina Natatorium.

Úlfur Úlfur endurgerði senu úr tónlistarmyndbandi Queen
„Við höfum gert nokkur helvíti góð myndbönd með Magga Leifs en þetta er okkar besta verk hingað til, ekki spurning,“ segir Arnar Freyr Frostason annar af forsprökkum hljómsveitarinnar Úlfur Úlfur.

Ferskur andblær í hlustunarpartýi Ízleifs
Beðið er eftir fyrstu plötu tónlistarmannsins Ízleifs með eftirvæntingu. Ízleifur, sem er bæði pródúsent og rappari, hélt hlustunarpartý fyrir vini og vandamenn í Þjóðleikhúsinu í vikunni.

Ást sem kom á hárréttum tíma
„Þetta er fyrsta lagið sem ég gef út sem fjallar ekki um erfiðar tilfinningar og því þykir mér extra vænt um það,“ segir tónlistarkonan Þórunn Salka sem var að senda frá sér lagið Sumar í febrúar. Hún frumsýnir hér tónlistarmyndband við lagið á degi ástarinnar, Valentínusardeginum.

Myndaveisla: Öllu til tjaldað í lokaþætti Idolsins
Idol stemningin náði algjöru hámarki síðastliðið föstudagskvöld þegar sigurvegari seríunnar var krýndur. Glamúrinn gaf ekkert eftir og þau Anna Fanney, Jóna Margrét og Björgvin sungu sitt síðasta, í bili.

„Var núll að búast við því að ég myndi vinna“
„Ég var 100% bara að bíða eftir því að nafnið hennar Jónu yrði kallað upp,“ segir nýkrýndi Idol sigurvegarinn Anna Fanney í samtali við Brennsluna á FM957 í morgun. Hún segist ótrúlega þakklát fyrir sigurinn og hlakkar til að demba sér í stúdíóið.

Kammermúsíkkúbburinn í kröggum
Meðan kvikmyndin Fullt hús gengur fyrir ... fullu húsi, en þar er fjallað um kammersveit sem sér sæng sína uppreidda vegna þess að borgin hættir að styrkja hana, er Kammermúsíkklúbburinn í nákvæmlega þeirri sömu stöðu.

„Hef algjörlega minn eigin stíl og tek engan til fyrirmyndar“
„Ég er einungis original en fæst ekki við hermi-tónlist,“ segir tónlistarmaðurinn Hjörtur Geirsson sem er nú að endurútgefa plötuna sína The Flow frá árinu 2007.

Nærmynd af Idol þríeykinu: „Við erum öll búin að sigra“
Spennan magnast í Idolinu og eftir standa þrír. Næstkomandi föstudagskvöld nær spennustigið svo hámarki þegar lokaþáttur Idolsins verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 og í ljós kemur hver stendur uppi sem sigurvegari. Anna Fanney, Björgvin Þór og Jóna Margrét keppast um sigurinn en Lífið á Vísi fékk að kynnast þeim örlítið nánar.