
Veiði

Töluvert af laxi í Langá
Á annan tug laxa höfðu gengið laxastigann í Skuggafossi í Langá á Mýrum í fyrradag. Fyrir neðan fossinn má nú sjá þó nokkuð af laxi og útlitið gott fyrir opnun árinnar. Þetta kemur fram á vef Stangaveiðifélags Reykjavíkur (SVFR).

Ytri-Rangá: Níu komnir í gegnum teljarann
Óhætt er að segja að útlitið sé gott fyrir Ytri-Rangá í sumar. Nú þegar eru níu laxar komnir í gegnum laxastigann við Ægissíðufoss og enn eru tvær vikur í opnun. Enginn lax er undir 70 sentímetrum. Fimm fóru í gegn í gær.

Styttist í opnun Elliðaánna: Vorhreinsun á fimmtudaginn
Nú styttist í að veiði hefjist í Elliðaánum, en árnar verða opnaðar miðvikudaginn 20. júní eða í næstu viku. Vegna þessa fer hin árlega vorhreinsun Elliðánna fram á fimmtudaginn, 14. júní.

Stórlaxahelgi í Blöndu
Á sunnudaginn komu vanir menn til veiða og komu þá upp 7 laxar og var meðalvigtin með afbrigðum góð.

Veiði að glæðast í Straumunum
Sex laxar hafa veiðst í Straumunum í Hvítá í Borgarfirði, en veiði hófst á svæðinu þann 5. júní. Þetta kemur fram á vef SVFR.

Gafst upp á bleikjunni og veiddi spúna
Frekar rólegt hefur verið á Þingvöllum undanfarna daga. Veiðin hefur verið fremur dræm reyndar var hún svo döpur á föstudaginn að einn veiðimaður gafst upp og byrjaði að veiða spúna.

Risaurriði veiddist í Varmá
Risaurriði veiddist í Varmá í Hveragerði nýlega. Á vef Stangaveiðifélags Reykjavíkur (SVFR) er sagt frá því að fiskurinn hafi keyrt silungavigt, sem bar 6,5 kíló, í botn.

Helgarviðtal: Veiddi tuttugu punda lax á flæktan Ambassador
Faðir Þorsteins Hafþórssonar, leiðsögumanns á Blönduósi, náði tuttuga punda laxi sonarins inn í úlpuna sem hann var í eftir að háfurinn brotnaði í Laxá í Refasveit.

Bandormssýking í silungi: Óþarfi að hringja á prest!
"Þar sem sýkingarnar eru alfarið bundnar við kviðarhol og innri líffæri, og fara ekki í hold, er í góðu lagi að borða þennan fisk..."

Smálaxaganga hellti sér inn í Stekkinn í Norðurá
smálaxar voru á lofti samkvæmt veiðimönnum. Vart þarf að ítreka fyrir veiðimönnum hversu jákvætt það er að fá inn í árnar göngur af smálaxi svo snemma.


Allt varð vitlaust þegar hlýnaði við Norðurá
"Rétt fyrir klukkan tíu hlýnaði verulega allt í einu. Þá fór einfaldlega allt af stað, og með ólíkindum að fylgjast með náttúrunni. Laxinn helltist einfaldlega inn á Eyrina og laxinn stökk og djöflaðist."

21 lax í Blöndu: "Algjör snilldarbyrjun"
Fjórir laxar veiddust fyrir hádegi í Blöndu í dag og lauk opnunarhollið því veiðinni með því að landa 21 laxi. Stefán Sigurðsson, sölustjóri hjá Lax-Á, er himinlifandi með opnunina.

Eitthvað fyrir alla hjá Veiðiskóla SVAK
Veiðiskóli Stangveiðifélags Akureyrar (SVAK) hefst nú um helgina, en þetta er fjórða árið sem hann er starfræktur.

Kennt að veiða í Elliðaánum - Ástand laxastofnsins er gott
Um næstu helgi geta áhugasamir veiðimenn farið á námskeið og lært að veiða í Elliðaánum. Ástand laxastofnsins í ánum er með miklum ágætum.

Fjórir laxar veiddust í kuldanum í kvöld
Fjórir laxar veiddust á seinni vaktinn í Blöndu í dag og hafa nú veiðst 18 laxar í ánni. Mjög kalt var í veðri og aðstæður því ekki beint ákjósanlegar til veiða.

Formanninn vantar sárlega þrjá laxa
Seinni vaktin í Norðurá í dag var sú rólegasta í opnunarholli stjórnar SVFR. 24 laxar eru komnir á þurrt.

Sex laxar á morgunvaktinni í Norðurá
Þrátt fyrir mikinn klulda og töluvert minna rennsli í Norðurá veiddust sex laxar á morgunvaktinni.

Fjórir komu í land á Blöndu í morgun
Veiði í Blöndu gekk með miklum ágætum í morgun og náðu veiðimenn fjórum löxum á land.

Svona var baráttan við fyrsta lax sumarsins
Barátta Bjarna Júlíussonar, formanns Stangaveiðifélags Reykjavíkur, við fyrsta lax sumarsins var eftirminnileg þeim sem fylgdust með. Myndband af viðureigninni fylgir fréttinni.

Fyrsti dagurinn gaf 26 laxa!
Opnunardagurinn var gjöfull, bæði í Borgarfirðinum og fyrir norðan. Þegar veiðimenn komu í hús eftir veiðar í Blöndu var afraksturinn 10 laxar, sá stærsti 17 pund. Í Norðurá gaf seinni vaktin fimm laxa en ellefu komu á land í morgun.

Ellefu laxar á fyrri vaktinni í Norðurá
Alls veiddust 11 laxar á fyrri vaktinni í Norðurá í dag. Það þarf að fara aftur til ársins 1999 til að finna betri byrjun.

Sex laxar komnir á land í Blöndu
Sex laxar veiddust á fyrri vaktinni í Blöndu í dag. Fiskarnir hafa allir verið mjög vænir eða frá 10 og upp í 17 pund.

Fyrsti laxinn kom í Norðurá
Bjarni Júlíusson, formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur, landaði fyrsta laxi sumarsins í Norðurá klukkan 7.22 í morgun. Þetta var um 10 punda hrygna og tók hún rauða Black Eyed Prawn, sem er eins og rauður Frances með svörtum augum.

Þrír laxar á land í Blöndu í morgun
Tveir nýgengnir laxar og einn hoplax að auki hafa fengist í morgun við opnun svæðis 1 í Blöndu. Þetta kemur fram á agn.is. Hermann Svendsen veiddi fyrsta laxinn.

Eyðir ekki tímanum í aðrar skepnur
"Ég held að það verði nú ekki mikil aflabrögð ef það verða óvanir menn við veiðar þarna," segir Þórarinn Sigþórsson tannlæknir sem í fyrsta skipti í háa herrans tíð er ekki við veiðar við opnun Blöndu í dag.

Tveir stórlaxar í Holunni
Þar horfði hann á tvo stóra laxa sem hann áætlaði á bilinu 14 – 16 pund, en eins og flestir vita þá opnar Blanda í fyrramálið og hefst þá laxveiðitímabilið formlega.

SVFR framlengir við Norðurá
Stjórn SVFR og Veiðifélags Norðurár gengu í gærkvöldi frá nýjum samningi um leigu árinnar, en fyrri samningur hefði að óbreyttu runnið út á næsta ári.


Flott sjóbleikja í Fögruhlíðarósi
Sjóbleikjuveiðin í Fögruhlíðarósi hefur aldrei byrjað eins vel og í ár. Þetta kemur fram á vefsíðu Strengja.