Viðskipti erlent
243 244 245 246 247 248 249 250 251 … 334 ›
Actavis borgar 1,4 milljarða í dómssátt Actavis Group hf. mun borga að minnsta kosti 12 milljónir dollara eða tæpa 1,4 milljarða kr. til að ganga frá samkomulagi um kröfur á hendur félaginu. Viðskipti erlent 7.12.2010 20:31
Raforkuverð í Danmörku nær þrjátíufalt hærra en hér Raforkuverð til danskra heimila muna fara upp í allt að 15 kr. danskar, eða rúmlega 300 kr., á kílówattstundina milli klukkan fimm og sjö síðdegis í dag. Þetta er nær þrjátíufalt það verð sem íslensk heimili borga fyrir raforkuna í dag en verðið hérlendis er 10,6 kr. á kílówattstundina. Viðskipti erlent 7.12.2010 10:58
Gjaldmiðlaórói veldur uppsveiflu á gullverði Mikil uppsveifla hefur verið á gullverðinu undanfarnar vikur og í gærkvöldi fór það upp í tæpa 1.430 dollara fyrir únsuna. Í morgun hafði það aðeins gefið eftir og stóð í 1.423 dollurum á únsuna. Órói á gjaldmiðlamörkuðum veldur þessari uppsveiflu en fjárfestar eru í auknum mæli að missa trúnna á pappírspeninga hvort sem það eru dollarar eða evrur. Viðskipti erlent 7.12.2010 10:12
Schwarzenegger lýsir yfir efnahagslegu neyðarástandi Arnold Schwarzenegger ríkisstjóri Kaliforníu hefur lýst yfir efnahagslegu neyðarástandi í ríkinu. Hann vill að þing Kaliforníu komi saman til aukafundar og ákveði tæplega 10 milljarða dollara, eða um 1.140 milljarða kr. niðurskurð á fjárlögum ríkisins. Viðskipti erlent 7.12.2010 08:36
Google opnar nýja bókaverslun Google opnaði í dag nýja bókaverslun á netinu í samkeppni við Amazon og fleiri aðila á markaðnum. Nýja vefverslunin heitir Google Editions og eru um þrjár milljónir rafrænna bóka í boði í versluninni. Verslunin er jafnstór Amazon og iBookstore sem Apple fyrirtækið heldur úti. Sífellt fleiri lesa bækur á netinu með hjálp tölva, síma og margvíslegs annars refeindabúnaðar. Talið er að vinsældir slíks lesturs muni aukast enn frekar. Viðskipti erlent 6.12.2010 21:44
Wall Street íhugar að sniðganga skattahækkanir Óttinn við að skattar hækki hjá hátekjufólki í Bandaríkjunum á næsta ári hefur leitt til þess að stór fjármálafyrirtæki á Wall Street eru að íhuga að borga bónusa fyrir árið í ár strax fyrir áramótin. Venjan er að þessir bónusar eru greiddir út eftir áramótin. Viðskipti erlent 6.12.2010 14:01
Saudi Arabar fjármagna flesta hryðjuverkamenn Saudi Arabía er það land í heiminum sem veitir fjármagni til flestra íslamskra hryðjuverkahópa eins og Talibana og Laskhar-e-Taiba í Pakistan. Viðskipti erlent 6.12.2010 09:08
Sparaði 600 milljónir með ókeypis tölvuforriti Finnska dómsmálaráðuneytið náði að spara sem svarar til rúmlega 600 milljóna kr. með því að skipta yfir í ókeypis tölvuforrit sem kallast OpenOffice.org og heldur utan um skrifstofuhald. Viðskipti erlent 6.12.2010 08:13
Bandaríkjamenn björguðu Danske Bank frá falli Danske Bank, stærsti banki Danmerkur, hefði fallið haustið 2008 ef ekki hefði komið til umfangsmikil fjárhagsaðstoð frá bandarískum stjórnvöldum. Á fimm dramatískum dögum þetta haust fékk Danske Bank rúmlega 600 milljarða kr. að láni frá bandaríska seðlabankanum. Viðskipti erlent 3.12.2010 09:18
Yfir 1.100 gjaldþrot í Bretlandi á hverjum degi Yfir 1.100 fyrirtæki urðu gjaldþrota á hverjum virkum degi ársins í Bretlandi í fyrra. Samtals urðu 279.000 fyrirtæki gjaldþrota á árinu og er þetta mesti fjöldi gjaldþrota hjá fyrirtækjum síðan breska hagstofan fór að taka saman tölur um gjaldþrot fyrir áratug síðan. Viðskipti erlent 2.12.2010 11:11
Sonur Abramovich vill kaupa FCK liðið í Kaupmannahöfn Ekstra Bladet segir frá því að 17 ára gamall Rússi vilji festa kaup á fótboltaliðinu FCK í Kaupmannahöfn. Unglingurinn heitir Arkady Abramovich og er elsti sonur milljarðamæringsins Roman Abramovich eigenda enska fótboltaliðsins Chelsea. Viðskipti erlent 2.12.2010 07:27
Sala Hyundai jókst um 45 prósent Allir helstu bílaframleiðendur, að Toyota undanskildum, hafa greint frá mikilli söluaukningu nýrra bíla í nýliðnum mánuði. Þróunin er sögð til marks um hægan bata bílaiðnaðarins vestra. Viðskipti erlent 2.12.2010 01:00
Danskur ráðherra fékk 14 milljónir í styrki frá ESB Henrik Höegh landbúnaðarráðherra Danmerkur þáði rúmlega 700.000 danskar kr. eða rúmlega 14 milljónir kr. í landbúnaðarstyrki frá ESB á síðasta ári. Hann hefur einnig sótt um svipaða styrki í ár en hann rekur stórt bú á Lollandi. Viðskipti erlent 1.12.2010 14:45
Spænsk stjórnvöld ætla að selja hlut í El Gordo Spænskum stjórnvöldum er umhugað um að sanna fyrir fjármálamörkuðum að landið sé ekki í sömu stöðu og Írland. Meðal annars eru þau tilbúin til að selja allt að 30% af eignarhlutum sínum í ríkisreknum lottóum, þar á meðal El Gordo, eða Sá Feiti, sem er stærsta lottó í heimi. Viðskipti erlent 1.12.2010 12:43
Starfsmenn BMW staðnir að stórfelldum þjófnaði Átján starfsmenn þýska bílarisans BMW hafa verið staðnir að stórfelldum þjófnaði á ýmsum bílahlutum úr verksmiðju BMW í Þýskalandi. Þjófnaðurinn var kerfisbundinn og hafði staðið yfir árum saman. Viðskipti erlent 1.12.2010 10:40
Verulega dregur úr kortanotkun í Bandaríkjunum Verulega hefur dregið úr notkun greiðslukorta meðal almennings í Bandaríkjunum í ár miðað við árið í fyrra. Í ár eru 78 milljónir Bandaríkjamanna án greiðslukorta en í fyrra var þessi fjöldi 70 milljón manns. Viðskipti erlent 1.12.2010 10:07
Hunter skoðar tilboð Skoski auðkýfingurinn Sir Tom Hunter er sagður íhuga tilboð í bresku skókeðjuna Office upp á 150 milljónir punda, jafnvirði um átján milljarða króna. Hunter keypti verslunina fyrir sjö árum fyrir sextán milljónir punda. Viðskipti erlent 1.12.2010 10:00
Cartier armband selt fyrir 800 milljónir hjá Sotheby´s Cartier armband í líki hlébarða var selt fyrir 4,5 milljónir punda, eða rúmlega 800 milljónir kr., á uppboði hjá Sotheby´s í vikunni. Er þetta mesta verð sem greitt hefur verið fyrir armband í sögunni. Viðskipti erlent 1.12.2010 08:29
Nóbelsverðlaunahafi tekur okurvexti af fátækum Hinn heimsþekkti Nóbelsverðlaunahafi Mohammad Yunus og örlánabanki hans, Grameen Bank, tekur okurvexti af örlánum sínum til fátækra. Vextirnir af lánunum eru 30% og þeir hafa leitt til þess að fjöldi fátækra kvenna er lentur í skuldagildru. Viðskipti erlent 30.11.2010 12:01
Endurreisn opinberra fjármála lýkur á næsta ári Búist er við að endurreisn opinberra fjármála á Norðurlöndum verði lokið á næsta ári, m.a. vegna aðgerða landanna sem miða að því að tryggja stöðugleika og marka sjálfbæra fjármálastefnu til lengri tíma. Viðskipti erlent 30.11.2010 09:19
Spænskir bankar glíma við 13.000 milljarða vandamál Spænskir bankar þurfa að endurfjármagna lán upp á 85 milljarða evra eða um 13.000 milljarða kr. á næsta ári. Það gæti reynst þeim erfitt þar sem margir telja að Spánn muni þurfa neyðaraðstoð eins og Írland. Viðskipti erlent 30.11.2010 08:22
Evran veikist seinnipart dagsins Evran hefur veikst gagnvart dollar seinnipart dagsins eftir að hafa byrjað daginn nokkuð vel. Viðskipti erlent 29.11.2010 14:20
Rifjasteikurkreppa fyrir jólin framundan í Noregi Almenningur í Noregi hefur mokað í sig rifjasteik sem aldrei fyrr í nóvembermánuði. Þessi mikla neysla hefur leitt til þess að rifjasteikurkreppa er framundan í landinu en rifjasteik er ein af hefðbundnum jólamáltíðum Norðmanna. Viðskipti erlent 29.11.2010 12:26
Eignir Landic Property gætu endað á nauðungaruppboði Fasteignir sem metnar eru á einn milljarð danskra króna eða rúmlega 20 milljörðum kr. og eru í eigu þrotabús Landic Property í Danmörku gætu lent á nauðungaruppboði. Fari svo munu þær hrapa í verði. Viðskipti erlent 29.11.2010 11:05
Evran stöðug eftir neyðarhjálp til Írlands Evran hefur verið stöðug á gjaldeyrismörkuðum í morgun í kjölfar þess að tilkynnt var um að samið hefði verið um 85 milljarða evra neyðaraðstoð til Írlands. Viðskipti erlent 29.11.2010 10:00
Kevin Stanford þarf að greiða 450 milljónir vegna Ghost Tískukóngurinn Kevin Stanford neyðist til að nota 2,5 milljónir punda, eða um 450 milljónir kr., af persónulegum auðæfum sínum til að borga fyrir helming af láni frá VBS. Lánið var notað til að koma á fót tískuverslununum Ghost á laggirnir fyrir nokkrum árum en Ghost varð síðar gjaldþrota. Viðskipti erlent 29.11.2010 09:29
Bretar, Svíar og Danir lána Írum beint Bretar hafa samþykkt að lána Írum 3,2 milljarða punda, eða hátt í 600 milljarða kr. með tvíhliða lánasamningum. Svíar og Danir hafa ákveðið að lána Írum en þessi lán eru til hliðar við neyðaraðstoð ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). Viðskipti erlent 29.11.2010 08:25
Neftóbaksdós er talin 70 milljóna virði hjá Christie´s Neftóbaksdós sem boðin verður upp hjá Christie´s í London á morgun er metin á rúmlega 70 milljónir kr. En þetta er ekki venjulega neftóbaksdós. Hún er smíðuð af Peter Carl Fabergé, skartgripasmiði Rússlandskeisaranna Alexander III og Nikulásar II. Viðskipti erlent 28.11.2010 10:56
ESB segir að ekki standi til að lána Portúgal Jose Manuel Barroso forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins hefur blásið á sögur þess efnis að Portúgalar séu næsti í röðinni til þess að þyggja fjárhagsaðstoð frá sambandinu. Ríkisstjórn Portúgals hefur tekið í svipaðan streng og sagt sögurnar uppspuna. Portúgalir samþykktu fjárlög sín fyrir árið 2011 þar sem tekið verður á skuldavandanum. Írar hafa farið fram á aðstoð frá ESB vegna skuldavanda og telja margir að Portúgalir séu síst betur staddir. Viðskipti erlent 26.11.2010 16:42
Pólverjar bora eftir olíu á Suður Jótlandi Sérfræðingar frá pólska olíufélaginu PGNiG ætla að bora eftir olíu á Suður Jótlandi. Fyrsta tilraunaholan verður boruð við bæinn Kiding sem liggur á milli Aabenraa og Sönderborgar. Viðskipti erlent 26.11.2010 10:02