Neytendur

Verð­munur getur verið allt að 28 prósent

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Prís rekur eina verslun sem staðsett er á Smáratorgi.
Prís rekur eina verslun sem staðsett er á Smáratorgi. Vísir/Vilhelm

Verslunin Prís í Kópavogi hefur verið ódýrust í samanburði verðlagseftirlits ASÍ frá opnunardegi verslunarinnar í ágúst í fyrra og verið vel undir verði annarra verslana allan þann tíma. Sem stendur er Prís um 6% ódýrara en Bónus og Krónan að meðaltali og 10% ódýrara en Nettó. Sælgæti frá Nóa Siríus heldur áfram að hækka í verði og áhugavert er að sjá lækkun á vöruverði hjá Krónunni við komu Prís á markaðinn.

Þetta kemur fram í samantekt verðlagseftirlitsins .

Ýmsar vörur mátti finna í nýjasta samanburði verðlagseftirlitsins sem eru umtalsvert ódýrari í Prís en í Bónus.

Þar ber að nefna:

  • Merrild kaffi (899kr í Prís, 1159kr í Bónus)
  • KEA kaffi- og vanilluskyr 500gr (459kr í Prís, 583kr í Bónus) 
  • SS beikon í sneiðum (430kr í Prís, 529kr í Bónus)

„Verðmunur á einstökum vörum getur verið allt að 22-28% milli verslana svo innkaupakarfan getur verið mun ódýrari ef vel hittir á,“ segir í tilkynningu ASÍ.

Verðmunur milli Prís og Krónunnar getur orðið allt að 58% á einstökum vörum en má þar nefna Ömmu flatkökur sem kosta 275 krónur í Krónunni borið saman við 174 krónur í Prís.

Opnun Prís hafði áhrif á vöruverð víða

Við opnun Prís voru mörg dæmi um verðbreytingar hjá helstu samkeppnisaðilum strax á fyrstu dögum. Eins og sjá má á grafinu hefur þó lítið breyst í stóru myndinni undanfarna mánuði. Þó hafði opnun Prís ein eftirtektarverð áhrif. Í Krónunni lækkuðu verð á þeim vörum sem ekki fundust í Bónus þegar Prís mætti til leiks.

Eftirlitsmenn ASÍ telja þessar breytingar vera vísbendingu um að annað hvort hafi Krónan haft aðeins hærri verð á þeim vörum sem Krónan og Bónus voru ekki í samkeppni um, eða þá að Krónan hafi frekar treyst sér til að keppa við Prís en við Bónus í ágúst í fyrra.

Dæmi um slíkar vörur má sjá á grafinu að neðan.

Á grafinu að neðan má sjá verðsamanburð á fjölmörgum vörum.

Hægir á verðhækkunum dagvöru í júlí og ágúst

Verðlag á matvöru hækkaði um 0,1% milli júní og júlí og verðathuganir fyrripart ágúst benda til þess að verðlag á dagvöru hafi að mestu staðið í stað milli júlí og ágúst. Er um nokkurn viðsnúning að ræða frá tímabilinu febrúar til júní þegar meðalhækkunin nam 0,6%.

Verðlag í dagvöru hækkaði um 0,3% ef aðeins eru skoðaðar matar- og drykkjarvörur. Vörur frá Nóa Síríus hækkuðu enn, til dæmis hækkaði 240gr poki af Nóa kroppi um 13% í Bónus milli júní og júlí. Nóa súkkulaðiperlur hækkuðu um 17% í Hagkaup, hvítir og konsúm súkkulaðidropar hækkuðu um 12% í Krónunni og um 13% í Nettó, segir í samantekt ASÍ.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×