
Viðskipti

Skiptastjóranum vikið úr starfi vegna brots á skyldum
Lárusi Sigurði Lárussyni, lögmanni og stjórnarformanni Menntasjóðs námsmanna, hefur verið vikið úr starfi skiptastjóra þrotabús fasteignafélagsins Þórodds ehf vegna brots á starfs- og trúnaðarskyldum.

Covidþreytan í vinnunni og góð ráð
Fjögur einkenni Covidþreytu sem þú mögulega upplifir að sé að hafa áhrif á þig í vinnunni og nokkur góð ráð.

Hvetur ríki til að auka ríkisútgjöld í Covid-kreppunni
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hvatti í dag stærstu hagkerfi heims til þess að auka ríkisútgjöld til þess að vegna upp á móti efnahagssamdrætti vegna kórónuveiruheimsfaraldursins. Dragi ríkin saman seglin nú gæti það valdið enn meiri efnahagslegum hörmungum.

Stjórnendur Icelandair geti verið í golfi til 2022
Mikil áhætta felst í því að fjárfesta í Icelandair þessi misserin og gera má ráð fyrir að lítið verði að gera í flugrekstri til loka árs 2021, að sögn greinanda hjá Jakobsson Capital.

Áfram formaður Neytendasamtakanna
Breki Karlsson verður áfram formaður Neytendasamtakanna næstu tvö árin en hann var einn í kjöri til formanns á aðalfundi.

Fjölgar starfsfólki og hrósar ríkisstjórninni
Nox Medical auglýsir nú eftir fólki til starfa vegna aukinna umsvifa fyrirtækisins. Hagstæðari rekstrarskilyrði í kjölfar breytinga á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki skipta þar sköpum og eru þessar breytingar hvati til vaxtar að sögn forstjóra fyrirtækisins.

Birgir hættir sem forstjóri Íslandspósts
Birgir Jónsson forstjóri Íslandspósts hefur ákveðið að láta af störfum hjá fyrirtækinu.

Landsbankahús Guðjóns Samúelssonar á Selfossi til sölu
Hús Landsbankans við Austurveg 20 á Selfossi hefur verið auglýst til sölu. Húsið var reist á árunum 1949-1953 og sýnilegt öllum sem aka í gegnum bæinn. Á vef bankans segir að það hafi löngum verið talið eitt fallegasta húsið á Suðurlandi.

Bein útsending: Loftum út! – Orkuskipti í fundarherbergjum
Félag kvenna í atvinnulífinu og Orkuveita Reykjavíkur standa fyrir opnum fundi um jafnréttismál sem hefst klukkan 8:30.

Keypti fyrirtækið þremur vikum fyrir bankahrun
Rödd lítilla fyrirtækja er of veik segir Hildur Guðnadóttir meðal annars í viðtali en hún keypti fyrirtækið Satúrnus þremur vikum fyrir bankahrun. Árið 2010 stofnaði hún síðan Ömmu Mús - handavinnuhús.

Sameinast um þróun fjölnota 2ja-hreyfla rafmagnsflugvélar
Ítalski flugvélaframleiðandinn Tecnam og breski hreyflaframleiðandinn Rolls Royce hafa tekið höndum saman um að þróa tveggja hreyfla rafmagnsflugvél. Þau stefna að því að verða fyrst til að koma rafmagnsflugvél af þessari stærð á markað.

Þórður Snær „stökkvi upp á röngum fæti“ með gagnrýni sinni
Þórður Snær segir ekki fara saman hljóð og mynd hvað varðar hegðun sumra þeirra sjávarútvegsfyrirtækja sem hafa ritað undir stefnu um samfélagsábyrgð.

„Skuldavandi getur orðið að skuldafaraldri“
Skuldavandi í kjölfar kórónuveirufaraldursins gæti orðið að skuldafaraldri að sögn hagfræðings.


Mistök og hneyksli varpa skugga á opnun nýs alþjóðaflugvallar í Berlín
Þegar hafa verið gerðar sjö misheppnaðar tilraunir til að taka völlinn í notkun en saga flugvallarins þykir einkennast af ítrekuðum mistökum og klúðri og þykir eitt allsherjar hneyksli.

Umdeilt hversu handlaginn forstjórinn er heima fyrir
Árni Stefánsson forstjóri Húsasmiðjunnar er gestur kaffispjallsins þessa helgina. Hann segir umdeilanlegt hversu handlaginn hann er heima fyrir en viðurkennir að vera mikill tækjakarl sem reddar sér með gúggli.

Ríkisstjórnin kynnir frekari efnahagsaðgerðir til sögunnar
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að grípa til frekari efnahagsaðgerða vegna kórónuveirufaraldursins.

IKEA lokar vegna hertra aðgerða
Munu einbeita sér að netverslun. Framkvæmdastjórinn vonast til að geta opnað aftur eftir tvær vikur.

Samherji hyggst áfrýja dómnum
Seðlabankinn var í dag sýknaður af 316 milljóna króna kröfu Samherja vegna Samherjamálsins svokallaða.

Helga og Sveinn til Orkídeu
Sveinn Aðalsteinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri nýsköpunarverkefnisins Orkídeu.

Seðlabankinn sýknaður af kröfu Samherja en Þorsteinn Már fær 2,5 milljónir
Seðlabankinn þarf að greiða Þorsteini Má Baldvinssyni, forstjóra Samherja, 2,5 milljónir í skaðabætur vegna Samherjamálsins svokallaða. Seðlabankinn var hins vegar sýknaður af 316 milljóna króna kröfu Samherja vegna málsins.

Vöruþróun með þarfir barnsins í huga
Ítalska fyrirtækið Chicco sérhæfir sig í vörum með margþætt notagildi fyrir börn og byggir á áratuga reynslu. Allar vörurnar er þróaðar í samvinnu við fagaðila

Walmart fjarlægir skotvopn og skotfæri úr hillum
Bandaríska verslunarkeðjan Walmart hefur fjarlægt öll skotvopn og skotfæri úr hillum þúsunda verslana um öll Bandaríkin þar sem stjórnendur hafa áhyggjur af hugsanlegum óróa og mótmælum í landinu í náinni framtíð.

Góð ráð fyrir þá sem eru ekki „uppáhalds“ hjá yfirmanninum
Rannsóknir hafa sýnt að stjórnendur halda oft upp á sumt starfsfólk meira en annað þótt fæstir myndu viðurkenna það ef málin væru rædd. Það getur verið sárt að upplifa annað fólk sem „uppáhalds" hjá yfirmanni.

Landsbankinn aldrei lánað jafnmikið til heimila
Hagnaður Landsbankans á þriðja ársfjórðungi 2020 nam 4 milljörðum króna, eftir skatta, samanborið við 3,2 milljarða króna hagnað á sama tímabili árið áður.

Tuttugu og sex sagt upp í Bláa lóninu
Bláa lónið hefur sagt upp 26 starfsmönnum. Lónið verður lokað í nóvember og aðeins opið um helgar í desember

Milljón á mánuði lágmark en 1,3 milljónir ef maki kemur með
Ríkisstjórnin hefur hrint af stað markaðsátaki og ætlar að heimila tekjuháum einstaklingum utan Evrópska efnahagssvæðisins að stunda vinnu sína hjá erlendum fyrirtækjum hér á landi í fjarvinnu í allt að sex mánuði.

Umdeilda KSÍ auglýsingin verðlaunuð
Auglýsingastofan Brandenburg hefur verið verðlaunuð fyrir nýja ásýnd íslensku landsliðanna í knattspyrnu. Stofan vann verkefnið fyrir KSÍ og vakti auglýsingin mikil viðbrögð síðastliðið sumar þar sem griðungur, gammur, dreki og bergrisi, landvættirnar fjórar, voru í forgrunni.

Baader kaupir Skagann 3X
Baader hefur gengið frá samningum um kaup á meirihluta í Skaganum 3X. Þetta kemur fram í tilkynningu. Viðskiptin eru háð venjubundnum fyrirvörum um samþykki opinberra aðila. Ráðgert er að þeim fyrirvörum verði aflétt í ársbyrjun 2021.

Ætla að byrja að rukka fyrir rafhleðsluna í miðbænum
Innan tíðar hefst gjaldtaka á rafhleðslustöðvum sem reknar eru af Reykjavíkurborg.