Viðskipti
1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 334 ›
Olíufélögin hafi hætt við að elta Costco Bensínverð á Íslandi er það þriðja hæsta á heimsvísu og dísilverð það næsthæsta. Formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda segir fákeppni og skort á aðhaldi stjórnvalda skýra gríðarlega hátt verð. Neytendur 6.1.2025 11:56
Slitu kolefnisbindingarfyrirtækinu Running Tide Hluthafar nýsköpunarfyrirtækisins Running Tide samþykktu að slíta félaginu í síðasta mánuði. Rannsóknartæki félagsins enduðu meðal annars hjá Háskóla Íslands og Hafrannsóknastofnun, að sögn fyrrverandi framkvæmdastjóra. Viðskipti innlent 6.1.2025 11:43
Eigendum fjölgar hjá LOGOS Um áramótin bættust þau Kristófer Jónasson og Maren Albertsdóttir við eigendahóp lögfræðistofunnar Logos. Þau hafa starfað hjá LOGOS um árabil. LOGOS lögmannsstofa sérhæfir sig í þjónustu við íslenskt og alþjóðlegt viðskiptalíf. Hjá LOGOS starfa um 65 manns. Viðskipti innlent 6.1.2025 10:48
Þrír og hálfur milljarður króna fyrir Perluna Eigendur Perlunnar þróunarfélags eru að ganga frá kaupum á Perlunni og tveimur tönkum í Öskjuhlíð af Reykjavíkurborg. Kaupverðið er rúmlega þrír og hálfur milljarður króna. Aðilar eiga eftir að klára samninginn og svo skrifum við undir segir forstjóri þróunarfélagsins. Viðskipti innlent 4.1.2025 07:03
Biden stöðvar japanska yfirtöku á US Steel Joe Biden fráfarandi Bandaríkjaforseti hefur stöðvað kaup japanska fyrirtækisins Nippon Steel á bandaríska fyrirtækinu US Steel. Biden segir að innlent eignarhald á stálframleiðandanum sé gríðarlega mikilvægt þjóðaröryggismál. Viðskipti erlent 3.1.2025 23:25
Blöskrar 14 prósent verðhækkun tryggingarfélags Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins heldur uppteknum hætti á nýju ári og skorar á fyrirtæki og stofnanir að halda aftur af verðlagshækkunum. Hann hefur lagt fram áskorun í sex liðum til stofnana og fyrirtækja þar sem hvatt er til samfélagslegrar ábyrgðar til að stöðva vítahring verðbólgu. Kveikjan að áskoruninni eru umtalsverðar verðlagshækkanir tryggingarfélaga og hækkun fasteignagjalda hjá Akraneskaupstað. Viðskipti innlent 3.1.2025 18:27
Strætómiðinn dýrari Ný gjaldskrá hjá Strætó mun taka gildi tekur gildi þann næstkomandi miðvikudag, þann 8. Janúar. Stakt fargjald mun hækka um tuttugu krónur og fara úr 650 krónum upp í 670 krónur. Neytendur 3.1.2025 14:49
Sorpa undirbýr sig fyrir þjónustufall Sorpa lokaði fyrir áramót Efnismiðlun sinni í endurvinnslustöðinni á Sævarhöfða. Gunnar Dofri Ólafsson samskipta- og þróunarstjóri Sorpu segir lokunina tengda lokun endurvinnslustöðarinnar á Dalvegi síðar á árinu. Það verði að létta á Sævarhöfða samhliða því að stöðinni á Dalvegi verður lokað. Neytendur 3.1.2025 10:30
Ummæli stjórnarmanns Eflingar um sníkjudýr „til skammar“ Framkvæmdastjóri SVEIT segir málflutning stjórnarmanns í Eflingu verkalýðshreyfingunni til skammar. Stjórnarmaðurinn líkti veitingahúsaeigendum og viðskiptavinum veitingahúsa við sníkjudýr. Viðskipti innlent 3.1.2025 09:03
Vigdís frá Play til Nettó Vigdís Guðjohnsen hefur tekið við stöðu markaðsstjóra Nettó. Vigdís hefur samkvæmt tilkynningu sérhæft sig í markaðssetningu samfélagsábyrgðar. Viðskipti innlent 3.1.2025 08:37
Mannauðsmál: „Enn of mikil tilhneiging til að taka ekki á málum“ „AI er að breyta leiknum en erum við tilbúin?“ spyr Ásdís Eir Símonardóttir sem eftir helgi tekur við starfi forstöðumanns mannauðs og menningar hjá Lyfju. Atvinnulíf 3.1.2025 07:00
Næstum allir nýir bílar í Noregi rafmagnsbílar Níu af hverjum tíu bílum sem keyptir voru nýir í Noregi í fyrra voru rafmagnsbílar. Markmið Norðmanna er að selja eingöngu rafmagnsbíla á árinu sem er að hefjast. Formaður sambands rafmagnsbílaeigenda segir Noreg verða fyrsta ríki heimsins til að ná því markmiði að nýskrá eingöngu rafmagnsbíla. Viðskipti erlent 2.1.2025 23:31
Gjafabréf og alls konar flatbökudótarí vinsælar jólagjafir í ár Hinar árlegu janúarútsölur hefjast formlega í dag, en nokkrar verslanir tóku þó forskot á sæluna milli jóla og nýárs. Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir að neytendur ættu að geta gert góð kaup, sérstaklega með kaupum á árstíðabundnum vörum. Viðskipti innlent 2.1.2025 13:10
Innkalla nagstangir sem hundar veikjast af Matvælastofnun vara við Chrisco tyggerulle med kylling & kyllingelever frá Kína sem Lífland flytur inn vegna eituráhrifa hjá hundum eftir neyslu. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við Matvælastofnun. Viðskipti innlent 2.1.2025 11:45
„Þá hugsuðu menn: Fínt, fáum konurnar í þessi störf“ „Þegar ég kom inn á vinnumarkaðinn fyrst hvarflaði það ekki að mörgu fólki um þrítugt að fara að vinna hjá hinu opinbera, það þótti svolítið vera eins og að setjast í „helgan stein,“ segir Baldur Gísli Jónsson yfirmaður mannauðsráðgjafar Intellecta. Atvinnulíf 2.1.2025 07:02
Nýskráning fólksbíla dróst saman um rúm fjörutíu prósent Nýskráning fólksbíla árið 2024 dróst saman um 42% samanborið við árið 2023 samkvæmt Bílgreinasambandinu. Samdrátturinn nær bæði til einstaklinga og fyrirtækja. Viðskipti innlent 1.1.2025 12:09
Kaupsamningar nærri helmingi fleiri en í fyrra Sögulegt ár á fasteignamarkaði vegna Grindavíkuráhrifa er að baki að sögn fasteignasala og kaupsamningar voru nærri helmingi fleiri en í fyrra. Hann spáir allt að tíu prósenta hækkun á fasteignaverði á næsta ári. Viðskipti innlent 30.12.2024 12:21
Verkalýðshreyfingin sé stærsta ógnin við starfsöryggi á veitingastöðum Aðalgeir Ásvaldsson framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingarmarkaði, SVEIT, segir stærstu ógnina við starfsöryggi starfsmanna veitingastaða á Íslandi verkalýðshreyfinguna og kjarasamningana sem gerðir voru fyrir hönd stéttarinnar. Viðskipti innlent 30.12.2024 11:30
Sjónvarpskóngur allur Bandaríski sjónvarpskóngurinn Charles Dolan, stofnandi Home Box Office, sem er betur þekkt undir skammstöfuninni HBO, og Cablevison, er látinn 98 ára að aldri. Viðskipti erlent 29.12.2024 10:20
„Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ „Við erum að missa það frá okkur að leyfa krökkum að vinna. Mér finnst það miður,“ segir Ásta Sigríður Fjeldsted forstjóri Festi. Atvinnulíf 29.12.2024 08:00
Slippurinn allur að sumri loknu Veitingastaðurinn Slippurinn í Vestmannaeyjum mun loka eftir næsta sumar. Frá þessu er greint á samfélagsmiðlum staðarins Viðskipti innlent 28.12.2024 13:28
Kaffispjallið '24: Þar sem jafnvel dýpstu leyndarmálin eru afhjúpuð... Það eru alls kyns uppljóstranir sem koma í ljós í kaffispjallnu á Vísi á laugardögum. Fastur liður í tilverunni og alltaf jafn skemmtilegt. Atvinnulíf 28.12.2024 10:00
Flugeldar Landsbjargar lítið hækkað á milli ára Flugeldasala Landsbjargar hefst á morgun á 100 sölustöðum um land allt. Verð á flugeldum Landsbjargar hefur lítið hækkað á milli ára. Upplýsingafulltrúi segir kökurnar alltaf vinsælar. Neytendur 27.12.2024 11:38
Sektuð fyrir að auglýsa lénið á auglýsingaskilti Neytendastofa hefur sektað Pólóborg ehf. um þrjú hundruð þúsund krónur vegna auglýsinga á nikótínvörum. Auglýsingarnar voru bæði birtar á samfélagsmiðlum og auglýsingaskilti. Neytendur 27.12.2024 10:41
„Langstærsta“ vikan í sögu Ölgerðarinnar Sala hjá Ölgerðinni hefur aldrei verið meiri fyrir jól en í ár. Nýliðin vika var sú stærsta í sögu fyrirtækisins. Viðskipti innlent 23.12.2024 21:59
Eldamennskan og jólaljósin algengasti brunavaldur um hátíðirnar Jólaljósin og matseldin eru ómissandi partur af jólahaldinu og skammdeginu. Það er mikið um að vera í desembermánuði, margt að hugsa um en um leið ný handtök og oft mikið um að vera á skömmum tíma. Þá er líka mikilvægt að huga að örygginu svo jólahaldið fari ekki úr skorðum. Samstarf 23.12.2024 14:48
Nefna fimm veitingastaði að baki „gervikjarasamningi“ Skyndibitakeðjan Subway er á meðal fimm veitingastaða og fyrirtækja sem stéttarfélagið Efling sakar um að standa að baki því sem það kallar „gervikjarasamning“ sem hlunnfari starfsfólk. Fyrirtækin hafi ekki svarað erindum Eflingar. Viðskipti innlent 23.12.2024 13:40
Sektuð fyrir að segjast vera best Neytendastofa hefur sektað eigendur Guide to Europe um sjö hundruð þúsund krónur vegna ósannaðra og villandi fullyrðinga í markaðsefni. Stofnunin hefur einnig bannað Guide to Europe að birta slíkar fullyrðingar. Neytendur 23.12.2024 13:35
Gervigreindin sögð „bjargvættur“ jarðgassiðnaðarins Útlit er fyrir að bruni á jarðgasi stóraukist í Bandaríkjunum á næstu árum vegna óseðjandi þarfar gervigreindartækninnar fyrir raforku. Dæmi eru um að tæknifyrirtæki ætli sér að reisa gasorkuver sérstaklega fyrir gagnaver sín. Viðskipti erlent 23.12.2024 13:18
Raforka til gagnavera snarminnkað Gagnaver notuðu sextíu prósent minni raforku á þessu ári en í fyrra. Landsvirkjun hefur dregið úr sölu til gagnavera vegna þröngrar stöðu í raforkukerfinu en notkunin hefur einnig dregist saman þar sem rafmyntagröftur er á hraðri útleið. Viðskipti innlent 23.12.2024 10:00