
Aukinn kraftur í jafnréttisumræðu
Frumkvæði Háskólans er lofsvert. Margt bendir til þess að mikilvægustu verkefni næstu ára á jafnréttissviðinu séu meðal annars þau sem tengjast aðstæðum þeirra sem talist geta til jaðarhópa í samfélaginu. Þetta má rökstyðja með vísan til ótal rannsókna. Konur sem standa höllustum fæti eru oftar en ekki þær sem jafnframt tilheyra jaðarhópum í samfélaginu. Staða þeirra er þar með eitt brýnasta verkefnið á jafnréttissviðinu.
Nauðsyn samspils jafnréttis og mannréttinda styðst þó við enn frekari rök. Vandamál og verkefni á hinu breiða sviði mannréttinda eru náskyld jafnréttisbaráttu undangenginna áratuga. Lausnirnar ekki síður. Augljóst er að mannréttindabaráttan á breiðum grunni getur lært margt úr sögu jafnréttisbaráttunnar. Það þarf ekki að koma á óvart heldur undirstrikar að jafnréttisbarátta er mannréttindabarátta. Kjarninn í henni er barátta gegn mismunun.
Jafnréttisnefnd Reykjavíkurborgar hefur staðið fyrir umræðu um dýpkun jafnréttishugtaksins þar sem í forgrunni hefur verið hvort skynsamlegt sé að ábyrgð á stefnumótun í málefnum útlendinga, fatlaðra og samkynhneigðra eigi að bætast við verkefni nefndarinnar. Unnin hefur verið rannsókn á viðhorfum grasrótarsamtaka til spurningarinnar og haldnar tvær ráðstefnur með þátttöku erlendra sérfræðinga. Undirtekir hafa verið jákvæðar.
Umræðan innan Reykjavíkurborgar endurspeglar þá skoðun að árangur jafnréttisbaráttunnar á Íslandi hafi haldist í hendur við að jafnréttismálum hafi verið ætlaður verðugur staður í stjórnkerfinu. Í samanburðinum blasir við hversu munaðarlaus hin breiða mannréttindabarátta er. Enginn dagur er líklega betri til að hefja umræðu um hvort efla eigi Jafnréttisstofu og víkka verksvið hennar ekki síður en jafnréttisnefnda sveitarstjórna. Jafnrétti eru mannréttindi. Gleðilegan 19. júní.
Skoðun

Sjónarspil í Istanbul
Gunnar Pálsson skrifar

Að vilja meira og meira, meira í dag en í gær
Harpa Fönn Sigurjónsdóttir skrifar

Sjálfboðaliðinn er hornsteinninn
Hannes S. Jónsson skrifar

Kallað eftir málefnalegri umræðu um kröfur um íslenskukunnáttu
Eiríkur Rögnvaldsson skrifar

Gangast við mistökum
Júlíus Birgir Jóhannsson skrifar

Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu
Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir skrifar

Ríkisstjórnin ræðst gegn ferðaþjónustu bænda
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar

Að apa eða skapa
Rósa Dögg Ægisdóttir skrifar

Að reyna að „tímasetja“ markaðinn - er það góð strategía?
Baldvin Ingi Sigurðsson skrifar

Lífsnauðsynlegt aðgengi
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Hvers vegna var Úlfar rekinn?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Eru forsætisráðherra og ríkisstjórn hrædd við vilja fólksins; lýðræðið?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Þegar við ætluðum að hitta Farage - Á Ísland að ganga í ESB?
Sveinn Ólafsson skrifar

Sama steypan
Ingólfur Sverrisson skrifar

Ofbeldi gagnvart eldra fólki
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Að taka ekki mark á sjálfum sér
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Betri borg
Alexandra Briem skrifar

Að eiga sæti við borðið
Grímur Grímsson skrifar

Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði
Karl Héðinn Kristjánsson skrifar

Íþróttir eru lykilinn
Willum Þór Þórsson skrifar

Framtíð safna í ferðaþjónustu
Guðrún D. Whitehead skrifar

Munu Ísraelsmenn sprengja bifreið páfa í loft upp?
Einar Baldvin Árnason skrifar

Að skapa framtíð úr fortíð
Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar

Tími til umbóta í byggingareftirliti
Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar

Stærð er ekki mæld í sentimetrum
Sigmar Guðmundsson skrifar

Áður en íslenskan leysist upp
Gamithra Marga skrifar

Lögfræðingurinn sem gleymdi tilgangi laga
Sigríður Svanborgardóttir skrifar

Þétting byggðar – nokkur mistök gjaldfella ekki stefnuna
Samúel Torfi Pétursson skrifar

Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra?
Tómas Ellert Tómasson skrifar

Hverjum þjónar nýsköpunin?
Halldóra Mogensen skrifar