Kostir sjóflutninga
Einu sinni lenti ég í því að þurfa að ausa heilmiklu vatni úr gúmmíbáti og eina tiltæka áhaldið var snjóskófla, grunn og breið. Þetta tókst en krafðist mikillar orku og fyrirhafnar og sóaði dýrmætum tíma. Samlíkingin á vel við um örlög strandflutninga við eyjuna Ísland þar sem hringvegurinn einn er um 1.400 km langur og byggðin aðallega dreifð með ströndum. Í áratugi voru lagðir miklir fjármunir í hafnargerð og vörumóttöku. Rök einstakra flutningsfyrirtækja um að það væri bæði "fljótlegra og ódýrara" að færa um 1.500-2.000 tonn af vörum í daglega flutninga á meginleiðum með 150 stórum flutningabílum gengu svo nánast af sjóflutningum dauðum, um leið og vegir skánuðu og ökutækin komu til. Mér og líklega fjölda fólks er fyrirmunað að skilja hvernig ábyrg samgöngu- og flutningsstefna samrýmist þessu ráðslagi. Ábyrgðin nær til fjármuna almennings, mengunarmála, vegamála, slysavarna og almennrar skynsemi, svo eitthvað sé nefnt. Ekki bara til einfaldra efnahagsreikninga í bókhaldi fáeinna fyrirtækja. Þarf að telja upp gallana við ótæpilega þungaflutninga á veikburða vegakerfi í samanburði við sjóflutninga með 2-3 skipum?
Nokkur dæmi:
- hreinn flutningskostnaður pr. tonn miðað við kostnað við lestun, flutning, og losun; t.d. launakostnað nokkur hundruð manna (sem gætu mannað mörg skip og hafnir)
- mengun frá 150 x 400 hestafla vélum (60.000 hestöfl sem duga í býsna mörg skip)
- vegaslit, vegaskemmdir og auknar kröfur um mun dýrari vegi
- samfélagskostnaður vegna mun fleiri óhappa og slysa
- óhagræði vegna tepptra eða hállra vega á veturna
- tap á rekstri flestra hafna
- hærra vöruverð til neytenda
Kostirnir eru styttri flutningstími sem getur vissulega skipt máli en á móti kemur að engin þörf er á að leggja vegaflutninga af heldur forgangsraða vörum. Í meirihluta tilvika skiptir ekki máli þó að vara berist 24-48 klst. síðar en ella. Telji menn sparnað annan kost er væntanlega aðeins um að ræða túlkaðar tölur sem verða til við að leggja gömlu skipi eða reikna dæmið einungis með einni eða afar fáum forsendum.
Ekki ætla ég mér þá framsýni að segja til um hvernig hægt er að endurskipuleggja flutningssamgöngur í landinu. Hitt er alveg víst að hvergi í nágrannalöndum búast menn við öðru en að flutningabílaæðið sem gengið hefur yfir iðnríkin sé að hjaðna. Lestir, skip, orkusparnaður, mengunarvarnir, heildarhagkvæmni og samfélagsábyrgð eru lykilorð þar sem menn reyna nú að móta nýja og betri stefnu. Og vetnisvæðing mun gera skip hagkvæmari flutningstæki en vörubíla. Smáskammtavitleysan, orkufylleríið, yfirfullir vegir og mengun eru undir smásjá í Evrópu og Bandaríkjunum og það væri hallærislegt ef Íslendingar yrðu enn einu sinni 20-30 árum á eftir nágrönnunum. Reyndar eru allt of miklir vöruflutningar í lofti líka angi af óábyrgri flutningastefnu en það er efni í aðra grein.
Skoðun
Opið bréf til ráðherranna Hönnu Katrínar og Ingu Sæland - blóðmeramálið
Árni Stefán Árnason skrifar

Vinnubrögð Carbfix eru ámælisverð
Ólafur Sigurðsson skrifar

Öllum til hagsbóta að bæta hag nýrra Íslendinga
Marta Wieczorek skrifar

Raunveruleg úrræði óskast takk!
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

(Ó)merkilegir íbúar
Örn Smárason skrifar

Vangaveltur um ábyrgð og laun
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Gervigreind í daglegu lífi: 15 dæmi
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Til hvers að læra iðnnám?
Jakob Þór Möller skrifar

Komir þú á Grænlands grund
Gunnar Pálsson skrifar

Ólöglegir ópíóðar: Skaðaminnkandi þjónusta bráðnauðsynleg
Ósk Sigurðardóttir skrifar

Hlustum á náttúruna
Svandís Svavarsdóttir skrifar

Skattheimta sem markmið í sjálfu sér
Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar

Tæknin hjálpar lesblindum
Guðmundur S. Johnsen skrifar

Tryggja þarf aðkomu sjómanna að fiskveiðiráðgjöfinni
Sigurjón Þórðarson skrifar

Opið bréf til Friðriks Þórs
Steven Meyers,Guðrún Elsa Bragadóttir,Ása Helga Hjörleifsdóttir,Brúsi Ólason,Erlendur Sveinsson,Heather Millard skrifar

Skjólveggur af körlum og ungum mönnum
Ólafur Elínarson skrifar

Menntamál eru ekki afgangsstærð
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

‘Vók’ er djók
Alexandra Briem skrifar

Er friður tálsýn eða verkefni?
Inga Daníelsdóttir skrifar

Kattahald
Jökull Jörgensen skrifar

Framtíðin er rafmögnuð
Jóhanna Hlín Auðunsdóttir skrifar

Ekki biðja um undanþágur heldur krefjast réttar samkvæmt EES-samningnum
Erna Bjarnadóttir skrifar

Þjóðarmorðið í blokkinni
Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar

Breiðholtið er frábært! Gerum betur í umfjöllun og orðræðu
Kristín Dögg Kristinsdóttir skrifar

Ég hataði rafíþróttir!
Þorvaldur Daníelsson skrifar

Því miður hefur lítið breyst
Áslaug Hulda Jónsdóttir skrifar

Versta sem Ísland gæti gert
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Eru græn svæði í útrýmingarhættu í Reykjavík?
Sigrún Ásta Einarsdóttir skrifar

Efla á forvarnir og setja börn í öndvegi með 5,7 milljarða niðurskurði
Grímur Atlason skrifar

„...ég lærði líka að nota gagnrýna hugsun“
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir skrifar