Umhleypingasamur nóvember 3. desember 2004 00:01
Nóvember var nokkuð umhleypingasamur á landinu og hitasveiflur miklar, að því er fram kemur í stuttu tíðarfarsyfirliti Veðurstofunnar. Hiti var yfir meðallagi, þrátt fyrir að mikið kuldakast hafi gert 15. til 20. dags mánaðarins. Meðalhiti í Reykjavík mældist 2,2 stig, en það er sagt 1,1 stigi ofan meðallags. "Frost í Reykjavík fór í 15,1 stig aðfaranótt 19. og hefur svo mikið frost ekki mælst þar síðan í janúar 1981 og hitinn er sá lægsti í Reykjavík í nóvember frá 1893, en þá mældist frostið 17,4 stig," segir í tilkynningu Veðurstofunnar. "Á Akureyri var meðalhiti í nóvember 0,0 stig og er það 0,4 stigum ofan meðallags. Frost fór mest í 15 stig á Akureyri. Í Akurnesi var meðalhitinn 1,9 stig, en -3,7 á Hveravöllum." Úrkoma í Reykjavík mældist 113 millimetrar, rúmlega helmingi yfir meðallagi, en á Akureyri mældist úrkoma 62 millimetrar, 15 af hundraði umfram meðallag. Að sögn Veðurstofunnar telst haustið (október og nóvember) hafa verið nokkuð umhleypingasamt, þótt tíð hafi verið fremur hagstæð. "Hiti var í rétt rúmu meðallagi, úrkoma nokkuð yfir meðallagi, en sólskinsstundir ekki fjarri meðallagi."
Fréttir Innlent Veður Mest lesið Skotmennirnir feðgar Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Innlent Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Innlent Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Erlent „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Innlent Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð Innlent Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Innlent Ekkert ákveðið varðandi framboð: „Ég er í tveimur flokkum“ Innlent Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland taki þátt í drónakaupum Innlent Fleiri fréttir Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Handtekinn með stóran hníf Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland taki þátt í drónakaupum Ekkert ákveðið varðandi framboð: „Ég er í tveimur flokkum“ Hálka þegar bíll valt í Biskupstungum Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli 270 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Ástandið á bráðamóttökunni sýni viðkæmni kerfisins Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Hryðjuverkaárás í Ástralíu og ástand í heilbrigðiskerfinu Sanna segir frá nýju framboði Dyraverðir handteknir vegna líkamsárásar Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Eldur í íbúð við Snorrabraut Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafnað Píratar vilja ganga til viðræðna um sameiginlegt framboð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Bæjarskrifstofur fluttar: „Þetta húsnæði er barn síns tíma“ Sjá meira