Pitsa pitsa
Rautt pestó
Mozzarella-ostur
Sérrítómatar
Klettasalat
Parmesanostur
Setjið þrjár teskeiðar af rauðu pestói á pitsubotninn og dreifið vel úr því.
Skerið niður 250 grömm af mozzarella-osti og dreifið á pitsuna. Gott er að kaupa íslenskan mozzarella-ost í dósum, fljótandi í vatni.
Skerið tólf sérrítómata til helminga og raðið þeim jafnt á pitsuna.
Bakið pitsuna í tólf til fimmtán mínútur við 220°C hita.
Dreifið síðan handfylli af klettasalati yfir bökuðu pitsuna og nóg af rifnum parmesanosti.
685 kaloríur, 40 grömm fita, 50 grömm kolvetni.
Pitsa parma
Spínat
Tómat- og kryddsósa
Mozzarella-ostur
Hráskinka (Parma skinka)
Egg
Setjið 250 grömm af spínati á pönnu, bætið smá vatni við og hitið þangað til laufin fölna.
Takið spínatið af pönnunni, síið vatnið frá og kælið spínatið aðeins.
Setjið hálfa krukku af tómat- og kryddsósu á pitsubotninn. Einnig er hægt að nota venjulega pitsusósu.
Skerið 250 grömm af mozzarella-osti og dreifið jafnt yfir pitsuna. Bætið níutíu grömmum af hráskinku og spínati ofan á.
Brjótið síðan eitt hrátt egg á miðja pitsuna og bakið í fimmtán mínútur við 200°C hita.
772 kaloríur, 40 grömm fita, 53 grömm kolvetni.
Hollar og einfaldar pítsur
