Borgetti til Bolton

Jared Borgetti er genginn til liðs við Bolton Wanderers frá mexíkóska liðinu Pachuca. Borgetti, sem sló í gegn í Álfukeppninni í sumar er 31 árs og er markahæsti leikmaður mexíkóska landsliðsins frá upphafi ásamt Hugo Sanchez með 35 mörk. Kaupverðið á kappanum er ein milljón pund
Mest lesið
Fleiri fréttir
