Skoðun

Blóðugar hendur

Hægrimenn á Íslandi, hvort heldur í Sjálfstæðisflokki, Framsóknarflokki eða Samfylkingu, hafa löngum legið flatir fyrir bandarískum stjórnvöldum og þjónað þeim jafnt til góðra sem vondra verka. Bandaríkjunum var leyft að hafa hér herstöðvar meðan þeim þóknaðist og logið að þjóðinni að það væri greiði og gustukarverk fyrir Íslendinga, til að tryggja öryggi okkar.

Þegar kanahernum þóknaðist loks að pakka niður og hypja sig fólu dindlarnir í ríkisstjórninni þeim eftir sem áður sjálfdæmi um að gæta öryggis þjóðarinnar. Sjálfsagt felst í því leyfi til að njósna um íslenska borgara, eftirleiðis sem hingað til, með aðstoð íslenskra dindilmenna.

Versta óhæfuverkið hin síðari ár var að styðja innrás Bandaríkjanna og Bretlands í Írak. Það var gert í blóra við íslensku þjóðina og ekki hlustað á ótal viðvaranir. Innrásin var í trássi við alþjóðalög, Sameinuðu þjóðirnar og heilbrigða skynsemi. Allflestir sáu hvílíkt feigðarflan þetta var og efasemdirnar náðu langt inn í hægri klíkurnar. Fljótlega kom t.d. í ljós að hættan sem umheiminum átti að stafa af kjarnavopnum harðstjórans Saddam Hussein var helber lygi, eða í besta falli misskilningur. En Davíð og Halldór fóru sínu fram vel studdir af Morgunblaðinu.

Öryggishagsmunum og heiðri íslensku þjóðarinnar var fórnað.

Nú vilja fæstir þá Lilju kveðið hafa sem innrásin í Írak er. Ríkisstjórnir, þingflokkar og þingmenn víða um heim snúa baki við Bush og Blair eftir því sem óöldin í Írak magnast og minnir æ meir á hörmungarnar í Víetnam fyrir fjórum áratugum. En hvorki Davíð né Halldór viðurkenna mistök sín og er ólíklegt að afsökunarbeiðni þeirra berist úr þessu. Báðir hafa þeir hlotið feit embætti og sitja þar óáreittir meðan hundruð manna týna lífi dag hvern og milljónir þjást fyrir þeirra tilstuðlan. Það má kalla það tilræði við norræna samvinnu að senda Halldór til Kaupmannahafnar með óþvegnar, blóðugar hendur.

Vinsti hreyfingin - grænt framboð er eini flokkurinn sem berst heill fyrir sjálfstæðri, friðsamlegri utanríkisstefnu Íslands og hefur hafnað stuðningi við stríðsrekstur Bandaríkjanna og Bretlands í Írak og Afganistan alla tíð. Nú er það verkefni allra friðelskandi Íslendinga að gera veg VG sem mestan í alþingiskosningunum í vor svo hægt verði að koma íslenskri utanríkisstefnu aftur á réttan kjöl. Eflum VG í vor!

Þorvaldur Örn Árnason er formaður VG á Suðurnesjum.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×