Frjálslyndir tóku ekki þátt 15. nóvember 2006 06:30
Til að koma í veg fyrir myndun félagslega einsleitra borgarhverfa á Reykjavíkurborg að tryggja að hlutfall leiguíbúða á nýbyggingarsvæðum verði minnst 20 prósent og hlutfall félagslegra íbúða ekki hærra en 10 prósent. Borgin á að auka íslenskukennslu í grunnskólum og hvetja innflytjendur til að sækja um störf hjá borginni. Einnig á að reka annað Alþjóðahús í austurhluta borgarinnar. Þessar tillögur úr nýrri framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda kynntu Samfylking og Vinstri græn á blaðamannafundi í gær. Framkvæmdaáætlunin hefur verið í vinnslu síðan í september en þriðji flokkurinn í minnihlutanum, Frjálslyndi flokkurinn, tók ekki þátt í gerð hennar. Þau Dagur B. Eggertsson og Svandís Svavarsdóttir sátu fyrir svörum eftir fundinn. Spurður um fjarveru Frjálslyndra svaraði Dagur að gert hefði verið ráð fyrir þátttöku þeirra en flokkurinn hefði ekki haft tíma til að taka þátt í starfinu. Svandís áréttaði að framkvæmdaáætlunin væri í beinu framhaldi af vinnu fyrrverandi meirihlutans og að tímasetning fundarins væri því ekki bein viðbrögð við umræðu síðustu daga. Þau sögðust bæði vænta góðra viðbragða frá Frjálslyndum á fimmtudag þegar áætlunin verður lögð fyrir borgarráð.
Innlent Mest lesið Tveir fluttir á slysadeild eftir slys við Hvalfjarðargöng Innlent Hyggst gera tilraun með lögregludróna í héraði Innlent Telur áform ráðherra vanhugsuð Innlent Vill mikilvæga herstöð aftur og hótar Afgönum öllu illu Erlent Hver verður formaður Pírata?: „Ekki séns“ Innlent Einhverjar breytingar þurfi að eiga sér stað innan Framsóknar Innlent Sameining sveitarfélaganna hafi lítil áhrif á daglegt líf íbúa Innlent Austurríki hvetur ríki til að draga sig ekki úr Eurovison Erlent Þorgerður Katrín endurkjörin Innlent Kanada, Bretland og Ástralía viðurkenna Palestínu Erlent Fleiri fréttir Kviknað í íbúð í Breiðholti Sjálfstæði Palestínu, minningarathöfn um Kirk og tré ársins Segir það slæma hugmynd að útfæra áminningarskyldu fyrir allan vinnumarkaðinn Tveir fluttir á slysadeild eftir slys við Hvalfjarðargöng Hver verður formaður Pírata?: „Ekki séns“ „Dreifbýlið hefur alltaf haft áhyggjur af því að fjármagnið sogist til þéttbýlisins“ Þorgerður Katrín endurkjörin Frítt í Strætó á Bíllausa deginum á morgun Hefur farið 100 sinnu á fjall á Fljótshlíðarafrétti Viðreisn verður áfram bara Viðreisn Einhverjar breytingar þurfi að eiga sér stað innan Framsóknar Sjálfstæð Palestína, væringar í Framsókn og fækkun um eitt sveitarfélag Sameining sveitarfélaganna hafi lítil áhrif á daglegt líf íbúa Staða Framsóknarflokksins, afnám áminningarskyldu og Evrópumálin í Sprengisandi Telur áform ráðherra vanhugsuð Líkamsárás í Hafnarfirði og maður með sveðju í Kópavogi Hyggst gera tilraun með lögregludróna í héraði Skorradalshreppur og Borgarbyggð sameinast Efast um að olíuleit beri árangur Plokkarar verðlaunaðar á Selfossi Píratar taka upp formannsembætti Ýkt umræða um olíufund, netárás á flugvelli og bakgarðshlaup í beinni Nýjar framkvæmdir beina fólki að umdeildum gatnamótum Netárásin gæti haft áhrif á ferðir Icelandair Ráðherra til í umræðu um sumarfrí barna „Ísland á heima í hjarta Evrópu“ Allt að gerast í Rangárþingi hvað varðar lífsgæði íbúa Sniðgangan friðsæl leið til að mótmæla og sýna samstöðu „Skiljanlegt að mörgum blöskri að vita að hann gangi laus“ Fordæmalaust kynferðisbrotamál og viðbragð NATO við brölti Rússa Sjá meira