Heildarvirði krónubréfaútgáfu orðið 240 milljarðar 26. júlí 2006 14:00 MYND/GVA
Heildarvirði erlendra krónubréfaútgáfu er orðið um 240 milljarðar króna frá því hún hófst fyrir tæpu ári. Þingmaður Samfylkingarinnar varar við óvissunni sem þessu fylgir. Um 60 milljarðar króna eru á gjalddaga frá ágústmánuði til næstu áramóta. Kristján L. Möller, þingmaður Samfylkingarinnar, lagði fram fyrirspurn á Alþingi í vor um útgefin skuldabréf í íslenskum krónum, eða svokölluð krónubréf, frá því í í ágúst í fyrra þegar útgáfan hófst til 10. apríl á þessu ári. Í svari þáverandi forsætisráðherra, Halldórs Ásgrímssonar, kom meðal annars fram að heildarnafnverð bréfanna væri 226 komma sex milljarðar króna og útgefendurnir væru fyrst og fremst evrópskar fjármálastofnanir. Þýski landbúnaðarsjóðurinn er stórtækastur í þessum efnum en með krónubréfaútgáfu hans í gær, upp á 9 milljarða króna, er heildarnefnverð bréfa hans orðið rúmlega 60 milljarðar króna. Næst stærsti útgefandinn er Fjárfestingabanki Evrópu með bréf upp á röska fjörutíu milljarða króna, en þar á eftir kemur Rabo-bank í Hollandi, austurríska ríkið og Deutsche bank. Heildarupphæðin nemur nú um 240 milljörðum króna. Kristján telur þetta varhugavert því ekkert sé vitað á þessari stundu hvort þetta sé til góðs eða ills. Og Kristján bendir á að háar upphæðir eru á gjalddaga á allra næstu mánuðum. Um 60 milljarða króna er nefnilega um að ræða frá ágústmánuði til næstu áramóta.
Fréttir Innlent Mest lesið Segist vita hver vó Geirfinn Innlent Vita ekki hvað fór úrskeiðis Innlent Airbus-þota Icelandair flaug í fyrsta sinn í dag Innlent Ógildu lögin gætu bakað ríkinu skaðabótaskyldu Innlent Miðflokksmenn séu mestu vælukjóarnir Innlent Fern ný jarðgöng undirbúin meðan Fjarðarheiðin bíður Innlent Ungar danskar konur taldar hafa látist af metanóleitrun Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Lykildagar fram undan: „Það er mjög erfitt ástand á heimilinu“ Innlent Hinsegin fólk í Bandaríkjunum horfir til Íslands Innlent Fleiri fréttir Airbus-þota Icelandair flaug í fyrsta sinn í dag Segist vita hver vó Geirfinn Miðflokksmenn séu mestu vælukjóarnir Ógildu lögin gætu bakað ríkinu skaðabótaskyldu Fern ný jarðgöng undirbúin meðan Fjarðarheiðin bíður Vita ekki hvað fór úrskeiðis Lykildagar fram undan: „Það er mjög erfitt ástand á heimilinu“ Hinsegin fólk í Bandaríkjunum horfir til Íslands „Klassískt dæmi“ um sérhagsmunagæslu Framsóknar og Sjálfstæðisflokks Sérhagsmunagæsla, lykildagar og bókaormar í beinni Málglaðasti þingmaðurinn talaði í þrjá og hálfan sólarhring Bein útsending: Kosningafundur Flugmálafélags Íslands Eftirlitið skipar afurðastöðvum að stöðva aðgerðir tafarlaust Ólíklegt að gjósi í nóvember Óheppilegt að setja Jón í ráðuneytið Sautján mál urðu að lögum og tvær þingsályktanir samþykktar Auka öryggið á Bland.is vegna svikahrappa Minnisblað þvert á niðurstöðu dómsins Ekið á sex kindur viku eftir að ekið var á sjö Kosningafundur um jafnréttismál Lögfræðingar Alþingis vöruðu við breytingum á búvörulögum Lögfræðingar þingsins lögðu til að nýtt frumvarp yrði lagt fram Mál hjúkrunarfræðingsins tekið fyrir á ný í dag Fjölmennt á samstöðufundi foreldra leikskólabarna á Sauðárkróki Sexfalda greiðslur í fyrstu tæknifrjóvgun og tæknisæðing telur Unglingar í alvarlegum vanda fá nýtt húsnæði Sjálfstæðisflokkurinn hafi misnotað aðstöðu sína í aðdraganda kosninga Borgarlínuvagnar þeir einu sem fái að aka Fríkirkju- og Skothúsveg Leiðindafæri á Austurlandi og víða þungfært Ný brú á Þjórsá talin kosta um fimmtung af verði Ölfusárbrúar Sjá meira