Ljósmyndasamkeppni frá Hróarskeldu 7. nóvember 2006 16:00
Í tilefni þess að miðasala er að hefjast hefur verið efnt til ljósmyndasamkeppni en sigurvegarinn verður tilkynntur sama dag og miðasalan hefst. Hátíðin verður haldin dagana 5.-8. júlí á næsta ári en aðstandendur hátíðarinnar hafa ákveðið að færa hátíðina um eina viku en venjan hefur verið hingað til. Upphitunin hefst 1. júlí, á sunnudeginum fyrir hátíðina. Hróarskelda er stærsta tónlistarhátíð Norður-Evrópu og var fyrst til þess að kynna 4+4 hugtakið en það samanstendur af fjórum dögum til þess að hita upp fyrir fjóra daga af magnaðri tónlistdagskrá. Á www.roskilde-festival.is má finna ýmsar upplýsingar um hátíðina á íslensku, skoða myndir, skoða hljómsveitalista frá upphafi, spjallborð (opnar aftur 1. desember). Einnig er hægt að skrá sig og vini sína á póstlista heimasíðunnar og þeir sem það gera fá fyrstir fréttir af tilkynningum frá Danmörku á íslensku. Á síðastliðinni hátíð var 1,7% seldra miða seldir á hér á landi en í heildina voru á milli 1300-1400 miðar seldir. Ætla má að margir Íslendingar kaupi miða sína í Danmörku en engin leið er að vita hversu margir það gera. Með því að kaupa miðann hér á landi gefur það aðstandendum hátíðarinnar betri yfirsýn yfir hversu margir Íslendingar sækja hátíðina. Fyrir Hróarskeldu 2006 var sett sölumet á miðum hér á landi og vonast er til að við gerum enn betur á næsta ári. Fyrir hátíðina í ár varð uppselt tveimur vikum fyrir upphaf hátíðarinnar og má ætla að svipað gerist á næsta ári. Hátíðin áætlar að segja frá fyrstu hljómsveitum nú strax í desember og svo á hverjum miðvikudegi fram að hátíðinni. Besta ljósmyndin á Roskilde 2006 Roskilde-festival.is efnir til ljósmyndasamkeppni þar sem hátíðargestir geta tekið þátt og átt möguleika á því að vinna tvo miða á Hróarskeldu 2007. Keppnin er einföld í sjálfu sér og snýst hún um hver á flottustu ljósmyndina sem lýsir stemmingunni á Hróarskeldu hvað best. Myndin má vera frá hvaða Hróarskelduhátíð sem er, ekkert endilega síðast liðinni hátíð. Framlög til keppninnar skal senda á stafrænu sniði á roskilde@roskilde-festival.is með fyrirsögninni "Ljósmyndasamkeppni" ásamt nafni og tölvupóstfangi keppanda. Myndin má vera löguð til í ljósmyndaforritum eins og s.s. Photoshop. Hver keppandi má senda inn fleiri en eina mynd. Samskonar keppni var haldin nýlega á opinberu síðu hátíðarinnar http://www.roskilde-festival.dk en þar er hægt að sjá ljósmyndina sem sigraði keppnina ásamt öðrum úrslitamyndum. Smellið hér til að skoða. Roskilde-festival.is áskilur sér þann rétt að birta innsendar myndir á heimasíðunni. Skilafrestur á myndum er til 24. nóvember. Úrslitin verða svo tilkynnt á www.roskilde-festival.is 1. desember n.k. Aðgöngumiði á hátíðina tryggir tjaldstæði í viku, frá sunnudeginum 1. júlí kl. 08.00 og aðgang að öllum tónleikum hátíðarinnar meðan hún stendur yfir.
Lífið Menning Mest lesið Mun aldrei líta á ástina sem sjálfsagða Makamál Anna Guðný fann ástina í faðmi kraflyftingamanns Lífið Michael Madsen er látinn Lífið Kvenorkan tók yfir á Garðatorgi Lífið Sigraðist á krabba og komst að óléttu samdægurs Lífið Björt og Fannar selja einbýlishús fyrir 90 milljónir Lífið Hvar er Mollý Tik Tok skinka í dag? Lífið Eitt glæsilegasta hrossabú landsins falt fyrir tæpan einn og hálfan milljarð Lífið Vann glæsilegan vinning í sumarbókaleik Bylgjunnar og Vísis Lífið samstarf Girnileg pizza úr smiðju BBQ kóngsins Lífið samstarf Fleiri fréttir „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Ástardúett Stuðmanna í nýjum búning Trúlofuðu sig á sama stað og þau byrjuðu saman Frumflutti nýtt lag á FM957: „Þetta er bara winning lag“ Cave vildi ekki taka þátt í „kjánalegri langloku“ Morrissey gegn „vók“ Tónlistarhátíðinni Lóu aflýst Eltir draumana og þarf að færa fórnir Brian Wilson látinn „Ég var ekki að búast við því að gráta svona“ Keyrði frá Sauðárkróki í Garðabæ fyrir einn gítartíma Heldur sér við efnið og burt frá efnunum Þykja skuggalega lík Fleetwood Mac „Okkur var ekkert cancelað, nema hann bara gerði það sjálfur“ Heitustu rapparar landsins í eina sæng Sjá meira