Benedikt Hermann Hermannsson, Kjartan Sveinsson úr Sigur Rós og eiginkona hans, María Huld úr Amiinu, eru á meðal þeirra sem útskrifast sem tónsmiðir úr Listaháskóla Íslands á næstunni.

Á meðal fleiri útskriftarnema eru Páll Ragnar Pálsson, fyrrum gítarleikari Maus, Hafdís Bjarnadóttir gítarleikari og Hrafnkell Pálmarsson, fyrrum gítarleikari Í svörtum fötum. Auk þess mun söngkonan Guðrún Árný Karlsdóttir útskrifast sem tónlistarkennari.

Hrafnkell segir að námið, sem er þriggja ára langt, hafi verið rosalega skemmtilegt. Segir hann að poppararnir hafi náð vel saman í náminu þó svo að poppið hafi ekki endilega mikið borið á góma á kaffistofunni. „Það sem er mest verið að tala um í þessum skóla er þessi tónlist án landamæra. Þetta er allt af sama meiði hvort sem um er að ræða popp, klassík eða rokk.

Það er bara mismunandi háttur á flutningi og framsetningi og aðferðum,“ segir Hrafnkell, sem stundaði nám í hefðbundnum tónsmíðum þar sem klassík kemur mikið við sögu. „Ég hef góðan grunn í klassík því ég lærði lengi vel á fiðlu, löngu áður en ég fór að spila á gítar. Ég hef verið að vinna mikið af verkefnum tengdum leikhúsi og kvikmyndatónlist. Síðan hef ég unnið töluvert líka í „pródúseringu“. Ég er það heppinn að ég hef getað nýtt mér ýmis tækifæri innan skólans til að prófa hinar ýmsu leiðir,“ segir hann. Segist hann vel geta hugsað sér að starfa við leikhús- eða kvikmyndatónlist í framtíðinni.

Þeir sem ljúka tónsmíðanáminu flytja lokaverkefni sín á næstunni. Benedikt reið á vaðið með tónleikum í Salnum síðastliðið laugardagskvöld ásamt Blásarasveit Reykjavíkur en tónleikar Hrafnkels verða aftur á móti 25. apríl, einnig í Salnum. Þar mun hann flytja tvö klassísk verk eftir sig auk þess sem níu manna kammersveit mun flytja lokaverkið sjálft. Félagi hans úr útskriftarhópnum, Hreiðar Ingi Þorsteinsson, mun einnig flytja lokaverkefni sitt sama kvöld.