Tónlist

Mótetta og Morthens

Bætir við sig Rósa Jóhannsdóttir sópransöngkona er einnig liðtækur fiðluleikari.
Bætir við sig Rósa Jóhannsdóttir sópransöngkona er einnig liðtækur fiðluleikari.

Nú er tími tónleikanna og þá einkum þeirra sem kenndir eru við burtfararpróf. Í dag heldur Rósa Jóhannesdóttir einsöngstónleika í Áskirkju ásamt Kristni Erni Kristinssyni píanóleikara. Rósa lýkur um þessar mundir burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík.

Rósa er sópransöngkona en hún er einnig menntaður fiðluleikari. Hún hóf nám við Tónskóla Sigurveins og hélt síðan í framhaldsnám til Þýskalands og hefur einnig starfað sem fiðlukennari. Hún segist vonast til þess að geta sameinað sönginn og fiðluna og sinnt þeim jöfnum höndum.

Efnisskrá tónleikanna er afar fjölbreytt, auk mótettu Mozarts „Exultate jubilate“ flytur Rósa ljóðasöngva eftir Jórunni Viðar, Jón Þórarinsson, Grieg, Brahms og Schumann auk aría eftir Puccini og Donizetti. Einnig flytur Rósa dægurlag sem Haukur Morthens gerði víðfrægt á árum áður.

Með Rósu og Kristni leika einnig hljómlistarmennirnir Ari Agnarsson, Eyjólfur B. Alfreðsson, Hjörleifur Valsson, Kári Þormar og Victoria Tarevskaia.

Tónleikarnir hefjast kl. 17 í dag og er aðgangur að þeim ókeypis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×