Skoðun

Kvótinn og krónan

Aðalhöfundur kvótans hefur varið verk sín í kvótamálum með, að útgerðin hafi þá verið á hausnum. Rétta hafi þurft hana við fjárhagslega og það hafi verið gert með kvótanum, sem útgerðarmenn fengu að gjöf. Þaðan nafnið gjafakvóti.

Þetta gekk sæmilega fyrst og dældi peningum inn í þjóðfélagið, þar sem margir seldu gjafakvótann og fóru svo í bili til Spánar til að hvíla sig eftir að hafa setið í útgerðarskuldasúpu í 20-30 ár. Þetta var nú meiri munurinn. Sitja í sólinni með senjorítu sér við hlið, oft nótt sem dag.

Kvótakerfið er að hruni komið. Veitt hefur verið meira en þorskurinn og loðnan þolir. Allt gæt hrunið einn dag. Enginn fiskur eftir til að veðsetja lengur, bæði veiddan og óveiddan í fisklausum kvóta. Þá lána erlendir bankar okkur ekki lengur nein stórlán, þar sem þorskurinn og kvótinn hefur verið veðið fyrir erlendu lánunum. Ef þessi stórlán stoppa fellur krónan jafnvel í frjálsu falli og kvótakerfið með. Kvótakerfið er veðsett bönkunum, sem taka það upp í skuld, ef lítið veiðist. Krónan okkar fellur og verður lítils virði. Er núna jafnvel á brúninni með að falla eftir því sem erlendir banka gera sér betur og betur grein fyrir hættu á algjöru hruni á þorskastofni okkar. Núverandi samdráttur í þorskveiðum dugar skammt til að rétta þorskinn við. Meiri loðnu og sandsíli o. fl. vantar sem æti fyrir þorskinn. Víða er ekkert æti. Við eigum að leita til Seðlabanka Evrópu með stórt evrulán til að hafa á hendinni, ef kreppir að með lán úr öðrum áttum. Einnig eigum við að letia til Kínverja með lán. Þeir eiga mikið laust fé til að lána t.d. okkur Íslendingum.

Stofna þarf stórna, ríkan og fémikinn sjóð, sem höfundur hefur kallað Kvótasjóðurinn ohf eða opinbert hlutafélag. Hann gæti keypt skuldugar útgerðir með manni og mús. Tæki við eignum, skuldum og kvóta. Togurum yrði lagt en kvótinn færi til þorpa úti á landi sem leigukvóti. Allur fiskur unnin í landi og seldur út sem unnin og dýr vara. Auka tekjur okkar í gjaldeyri sem mest þó draga þurfi úr veiðum. Hætta að landa erlendis og selja gámafisk. Björgum krónunni frá falli. Frítt fall krónunnar færi með allt.

Höfundur er hæstaréttarlögmaður.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×