Körfubolti

KEA Skyrmótið haldið í 9. sinn um helgina

Körfuknattleiksdeild Breiðabliks verður með KEA skyr mótið í 9. sinn dagana 27. og 28. janúar næstkomandi í Smáranum. Mótið er haldið fyrir alla iðkendur félaga sem eru 11 ára og yngri. Um er að ræða eitt af stærstu unglingamótum sem haldin eru á Íslandi í körfuknattleik. Alls eru um 90 lið skráð í mótið að þessu sinni sem er metþátttaka.

Gleðin er ríkjandi í mótinu og eru stigin ekki talin heldur er markmiðið að börnin komi saman og skemmti sér í 3 - 4 tíma við að leika körfuknattleik. Allir þátttakendur eru sigurvegarar og allir fá verðlaunapening.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×