Innbrot á Tangarhöfða 8. apríl 2007 18:47
Bíræfnir þjófar stálu rándýru nýju bifhjóli á verkstæði á Tangarhöfða í Reykjavík um helgina og settu það inní sendiferðabíl fyrir utan verkstæðið og námu bæði hjól og bíl á brott. Eigandinn segir tjónið nema um tveimur og hálfri milljón króna en sem betur fer sé hann tryggður fyrir tjóninu. Hvorki bíllinn né bifhjólið hafa komið í leitirnar. Guðleifur Kristinsson eigandi verkstæðisins Vélasport á Tangarhöfða uppgötvaði að brotist hefði verið inn í verkstæðið í aðfaranótt föstudags.. Þegar hann kom til vinnu í gærmorgun var bílskúrshurðin opin upp á gátt og sendibíllinn og bifhjólið horfið. Guðleifur starfar við ýmiss konar viðgerðir og setur saman bifhjól sem hann flytur inn erlendis frá. Hann segir að innbrotsþjófarnir hljóti að hafa verið tveir eða fleiri því talsverð vinna hafi verið að koma bifhjólinu og bílnum út. Hann segir líklegt að innbrotsþjófarnir hafi tekið sér rúma klukkustund í verkið. Guðleifur segir andvirði bílsins og bifhjólsins vera hátt á þriðju milljón króna fyrir utan tjónið sem innbrotsþjófarnir ollu á húsnæðinu. Hann segir heppnina hafa verið með sér í þetta skiptið. Hann var nýbúinn að tryggja innbúið þó ekkert öryggiskerfi hafi verið til staðar. Guðleifur hefur komið sér upp svefndýnu á miðju verkstæðinu og hyggst sofa þar yfir páskana þangað til öryggiskerfi verður sett upp.
Innlent Mest lesið Tók hnífinn með af því að honum fannst hann „töff“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Þórður Snær mun ekki taka þingsæti Innlent Rússar segja til hvers annars líkt og á tímum Stalíns Erlent Segir fund ráðherra og lögreglustjóra til marks um spillingu Innlent Taldi vegið að æru sinni innan hundaræktarsamfélagsins Innlent Ný geðdeildarbygging utan Hringbrautarlóðar Innlent Milljónir ekki komið til Íslands þótt þær gætu það Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Næstu mánuðir skipta sköpum Erlent Neitar að segja ef sér þrátt fyrir hávær áköll Erlent Fleiri fréttir Þórður Snær mun ekki taka þingsæti Ráðherra hafnar gagnrýni og óvissa um tónleika á Hvalasafninu Samningur undirritaður um augnlækningar á Austurlandi Þingmaður Pírata vill í kærunefnd útlendingamála Segir fund ráðherra og lögreglustjóra til marks um spillingu Ný geðdeildarbygging utan Hringbrautarlóðar Milljónir ekki komið til Íslands þótt þær gætu það Tók hnífinn með af því að honum fannst hann „töff“ Taldi vegið að æru sinni innan hundaræktarsamfélagsins Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Kolefnisgjald hækkað en um minna en til stóð „Ég er ekkert búin að læra“ Hófu frumkvæðisathugun á aðkomu Jóns í ráðuneytinu Rýnt í kannanir og tendrun jólatrés í Hafnarfirði Alma verði heilbrigðisráðherra í stjórn Kristrúnar Rjúfa tólf vikna múrinn við rannsókn í Neskaupstað Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Húsfélag sektaði íbúa um 10 þúsund vegna of lélegra sameignarþrifa Hér eru „þessar elskur“ Hærra kolefnisgjald og minna til nýja Landspítalans vegna frestunar kílómetragjalds Fjárlögin áfram rædd í dag og styttist í þinglok Bein útsending: Frambjóðendur tala við nemendur Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Færa til fjármuni til þess að bæta aðstöðu á bráðamóttöku Brenna líkin á nóttunni Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Rannsaka hópárás á tvo einstaklinga Sjá meira