Innlent

Sagan endurtekur sig

Sagan frá vorinu 1995, virðist nú vera að endurtaka sig með afar keimlíkum hætti. Þá skipti Davíð Oddsson Alþýðuflokki út fyrir Framsóknarflokk eftir nokkurra daga viðræður.

Í þingkosningunum þann 8. apríl 1995 náðu þáverandi stjórnarflokkar, Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur, eins manns meirihluta, og raunar nákvæmlega sömu þingmannatölu og núverandi stjórnarflokkar hafa eftir kosningarnar nú. Sjálfstæðisflokkur fékk þá 25 þingmenn, eins og nú, og Alþýðuflokkur sjö þingmenn, eins og Framsóknarflokkur nú, en Alþýðuflokkurinn tapaði þremur þingsætum þá.

Þeir Davíð Oddsson og Jón Baldvin Hannibalsson fengu engu að síður báðir umboð þingflokka sinna og hófu þeir viðræður um endurnýjun stjórnarsamstarfsins í dymbilviku eftir kosningarnar 1995. Fyrstu dagana benti allt til þess að þeir Davíð og Jón Baldvin myndu endurnýja samstarf sitt og eindreginn vilji virtist vera innan þingflokkanna til að halda samstarfi flokkanna áfram.

Páskar voru hins vegar að nálgast og því gáfust aðeins þrír virkir dagar til viðræðna. Viðræðuhlé var gert yfir páskana en á meðan gerðist það hins vegar að þeir Davíð og Halldór Ásgrímsson fóru að ræða saman á laun og strax eftir páska varð ljóst að þeir ætluðu sér að mynda ríkisstjórn.

Á fyrsta virka degi eftir páska tilkynnti Halldór Ásgrímsson þáverandi forseta Íslands, Vigdísi Finnbogadóttur, að Framsóknarflokkurinn hygðist fara í viðræður við Sjálfstæðisflokk og daginn eftir boðaði Vigdís forseti Davíð Oddsson forsætisráðherra á sinn fund og afhenti honum nýtt umboð til myndunar ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, sem síðan hefur ríkt í alls tólf ár.

Atburðarrásin í dag og undanfarna daga sýnir að sagan fyrir tólf árum virðist ætla að endurtaka sig nema að nú eru það ekki um páska sem örlögin ráðast heldur á uppstigningardegi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×