Gabb í beinni útsendingu Guðjón Helgason skrifar 2. júní 2007 12:30
Umdeildur hollenskur raunveruleikaþáttur þar sem keppt var um nýra úr dauðvona konu reyndist gabb eftir allt saman. Þetta kom fram á lokamínútum þáttarins í hollensku sjónvarpi í gærkvöldi. Þegar þátturinn var kynntur fyrir skömmu var greint frá því að dauðvona kona, Lísa að nafni, ætlaði að gefa úr sér nýra. Hún ætlaði sér að velja milli þriggja sjúklinga sem þurftu á nýju nýra að halda. Lísa sjálf var sögð með heilaæxli og að hún ætti stutt eftir. Þátturinn vakti mikið umtal víða um heim löngu áður en hann fór í loftið og fordæmdu hollensk stjórnvöld athæfið. Það var svo í gærkvöldi sem hann var sýndur og biðu fjölmargir hollendingar spenntir við sjónvarpsskjáinn. Á lokamínútum þáttarins kom í ljós að um gabb var að ræða. Lísa héti í raun Leonie, leikkona við hestaheilsu sem ætlaði ekki að gefa nýra. Þeir sem kepptu um það voru þó raunverulegir sjúklingar sem vissu þó hvernig allt var í pottinn búið og því með í leiksýningunni. Það er framleiðslufyrirtækið Endemol, sem gert hefur marga vinsæla raunveruleikaþætti víða um heim, sem stóð að þættinum í gær. Framleiðendur segja að með uppátækinu hafi þeir viljað vekja athygli því hversu líffæragjöfum í Hollandi hefði fækkað á síðustu árum. Fyrir vikið hefðu biðlistar lengst og hollensk stjórnvöld setið aðgerðarlaus hjá.
Erlent Fréttir Mest lesið Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Innlent Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Innlent Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Innlent Bíll konunnar sást á upptöku Innlent Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Erlent Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Innlent „Versti tíminn, allra versti tíminn“ Innlent Grjóthart nei hjá dúxinum í Yale Innlent Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Innlent Gamall þristur strand vegna skorts á bensíni Innlent Fleiri fréttir Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Sjá meira