Sprengdi hjákonuna í loft upp Óli Tynes skrifar 5. september 2007 10:42 Frá Jinan.
Háttsettur kínverskur embættismaður var tekinn af lífi í dag fyrir að myrða hjákonu sína með bílsprengju. Aðeins liði tveir mánuðir á milli morðsins og aftökunnar. Vitorðsmaður hans var einnig tekinn af lífi og annar dæmdur í lífstíðar fangelsi. Málið hefur vakið mikla hneykslan í Kína þar sem spilling embættismanna hefur mjög verið til umræðu undanfarin misseri. Duan Jíhe var formaður sveitarstjórnarinnar í héraðshöfuðborginni Jinan. Hann kynntist fráskilinni barstúlku að nafni Liu Haiping árið 2000. Duan keypti handa henni hús og útvegaði fjölmörgum ættingjum hennar vinnu. Samkvæmt kínverskum fjölmiðlum þreyttist hann á sífelldum kröfum hennar um meiri peninga og að hann skildi við eiginkonu sína og kvæntist sér. Undir lokin hótaði hún að kæra hann fyrir spillingu. Duan fékk þá tvo vini sína til liðs við sig. Þeir komu fyrir sprengju í bíl hjákonunnar og sprengdu hana í loft upp. Duan var handtekinn viku eftir morðið, níunda júlí síðastliðinn.
Erlent Mest lesið „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Erlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Innlent Skotmennirnir feðgar Erlent Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Erlent Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana Innlent Fleiri fréttir Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Segir Trump að skipta sér ekki af evrópsku lýðræði Stefna á að taka fleiri skip frá Venesúela Evrópa þurfi að vera búin undir aðra stórstyrjöld Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Takmarkar getu ríkjanna til að setja gervigreindinni skorður Sjá meira