Körfubolti

Ársmiðar Thunder seldust upp á fimm dögum

NordicPhotos/GettyImages

Svo virðist sem íbúar Oklahoma City séu spenntir fyrir því að vera komnir með NBA lið í borgina ef marka má ársmiðasölu hjá nýja liðinu á dögunum.

Allir 13,000 ársmiðarnir sem settir voru á sölu hjá Oklahoma City Thunder seldust þannig upp á aðeins fimm dögum.

Eitthvað af ársmiðum er þó enn á lausu hjá félaginu en þeir verða ekki settir á sölu fyrr en í næsta mánuði.

Oklahoma Thunder, sem áður hét Seattle Supersonics, flutti formlega til Oklahoma í sumar og fékk nýtt nafn fyrir nokkrum dögum.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×