Körfubolti

Njarðvík lagði Þór

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Njarðvíkingar eru komnir áfram í bikarnum.
Njarðvíkingar eru komnir áfram í bikarnum.
Njarðvíkingar tryggðu sér í kvöld sæti í fjórðungsúrslitum Subway-bikarkeppni karla með því að vinna Þór á heimavelli, 94-75.

Jafnræði var með liðunum framan af en staðan í hálfleik var jöfn, 46-46. Undir lok þriðja leikhluta fór að draga í sundur með liðunum og Njarðvíkingar gengu á lagið í þeim fjórða sem þeir unnu með 26 stigum gegn fjórtán.

Friðrik Stefánsson átti stórleik og skoraði 20 stig auk þess sem hann tók sextán fráköst. Magnús Þór Gunnarsson og Hjörtur Hrafn Einarsson skoruðu einnig 20 stig fyrir Njarðvík.

Guðmundur Jónsson var stigahæstur Þórsara með 26 stig. Cedric isom skoraði sextán og Óðinn Ásgeirsson ellefu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×