Jordan skaut föstum skotum að Jerry Krause í þakkaræðunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. september 2009 20:00 Michael Jordan var hrærður á föstudagskvöldið. Mynd/AFP
Michael Jordan var tekinn inn í Frægðarhöll bandaríska körfuboltans á föstudagskvöldið og hélt við það tækifæri mikla ræðu þar sem að hann fór yfir ferill sinn og það fólk sem hefur haft mest áhrif á sig. Jordan stóðst þó ekki mátið og skaut föstum skotum að Jerry Krause, fyrrum framkvæmdastjóra Chicago Bulls, en það fer víst ekkert betur á með þeim í dag en á árunum áður þegar upp úr sauð á milli þeirra. Krause lét hafa það eftir sér einu sinni að það væru félög sem vinna titla en ekki leikmennirnir. Hann hefur reyndar neitað því að hafa sagt þetta en þetta eru engu að síður líklega frægustu ummæli hans. Þau fóru líka illa í Jordan sem talaði um þau í ræðu sinni á föstudagskvöldið. „Jerry er ekki hér enda veit ég ekki hver ætti að bjóða honum. Ekki bauð ég honum," byrjaði Jordan og bætti síðan við: „Hann er mikill keppnismaður og ég var mikill keppnismaður. Hann sagði að það væru félög sem vinna titla. Ég sá þó ekkert félag spila með flensu og 39 stiga hita í Utah og ég sá ekkert félag spila með tognaðan ökkla," sagði Jordan og það eru örugglega flestir sem eru sammála honum.
NBA Mest lesið Svakaleg slagsmál í æfingarleik á Spáni Fótbolti „Ekki sáttir við að Íslendingur kæmi að kenna þeim“ Fótbolti Dagný kveður West Ham með tárin í augunum Enski boltinn Stúkan: Getur KR fallið úr deildinni? Íslenski boltinn Blikarnir hoppuðu út í á Fótbolti Framari týndi boltanum í miðjum leik og Rikki G var alveg gáttaður Íslenski boltinn Trump réði sjálfan sig í stórt starf á Ólympíuleikunum Sport Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu Körfubolti „Ég hef aldrei séð Stjörnuna spila svona“ Íslenski boltinn Ákærður fyrir að hnupla treyju LeBron sem seldist seinna á nær hálfan milljarð Körfubolti Fleiri fréttir Ákærður fyrir að hnupla treyju LeBron sem seldist seinna á nær hálfan milljarð Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Stórskotasýning Sigtryggs dugði ekki til sigurs Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög KR sækir ungan bakvörð „Sýna að maður eigi það skilið“ Segir að þeim besta í heimi sé skítsama Álftanes bætir Bandaríkjamanni við hópinn „Númer eitt, tvö og þrjú að knúsa þau sem mest“ Callum Lawson aftur til Valsmanna Þrír verða heima meðan landsliðið fer til Ítalíu Skora á KKÍ að sniðganga Ísrael: „Íþróttahreyfingin ekki undanskilin ábyrgð“ Semple til Grindavíkur NBA stjarna sökuð um að stela tugum milljóna frá spilavítum Gamall Stjörnumaður kemur aftur til Íslands og semur við Álftanes Kynlífsleikfangi hent inn á völlinn í miðjum leik „Erum að einblína á það sem er að gerast á vellinum“ Í þrjátíu mánaða fangelsi fyrir að hrella Caitlin Clark Bað hennar í íþróttahúsinu þar sem allt byrjaði Mario fer ekki á EM – fimm dottnir úr hópi Íslands Gjörbreyttur Luka hefur tekið á því í ræktinni Sjá meira