Viðskipti erlent

Kúafretir gætu kostað danska bændur milljónir kr.

Fretir og ropar úr kúm og svínum gætu kostað danska bændur milljónir danskra króna á næstu árum verði tillögur skattanefndar Danmerkur um gjöld fyrir losun á metangasi út í andrúmsloftið að veruleika.

Dagbladet Holsterbro-Struer hefur eftir stórbóndanum Steen Nörgaard á bænum Hogager að fyrirhuguð gjöld gæti kostað hann allt að rúmlega hálfa milljón danskra kr., eða um 10 milljónir kr. á hverju ári.

Samkvæmt hugmyndum skattanefndarinnar er ætlunin að gjöldin fyrir metangasið muni nema um 600 dönskum kr. á hverja kú. Reiknar nefndin með að kúm og svínum muni fækka í landinu við þessi gjöld.

Nörgaard telur að þessi gjöld séu ósanngjörn. „Kýrnar freta og ropa jafnmikið hvort sem slíkt er skattlagt eða ekki," segir bóndinn. „Markmiðið með svona gjöldum er að breyta hegðun eða minnka skaða af til dæmis gasi en dýrin láta sér slíkt í léttu rúmi liggja."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×