Haukar urðu í kvöld Íslandsmeistarar karla í handbolta eftir öruggan sigur á Val á útivelli í fjórða leik liðanna um titilinn.
Haukar unnu þar með einvígið, 3-1. Valsmenn höfðu fyrir kvöldið ekki tapað leik á tímabilinu en þeir þurftu að játa sig sigraða fyrir deildarmeisturum Hauka í kvöld.
Birkir Ívar Guðmundsson átti stórleik í marki Hauka og lagði markvarsla hans og varnarleikur Hauka grunninn að sigrinum í dag.
Leiknum var lýst beint hér á Vísi og má lesa lýsinguna hér að neðan.
Leik lokið: Valur - Haukar 25-33
Það er formsatriði að ljúka þessum leik og Haukar gera það með glæsibrag.
Mörk Vals:
Heimir Örn Árnason 6
Davíð Ólafsson 5
Elvar Friðriksson 4/1
Hjalti Þór Pálmason 4
Arnór Þór Gunnarsson 3/2
Orri Freyr Gíslason 1
Markús Máni Michaelsson 1
Hjalti Gylfason 1
Varin skot:
Ólafur Gíslason 12
Mörk Hauka:
Gunnar Berg Viktorsson 7/4
Andri Stefan 6
Freyr Brynjarsson 5
Sigurbergur Sveinsson 5
Kári Kristján Kristjánsson 4
Elías Már Halldórsson 3
Stefán Rafn Sigurmansson 2
Einar Örn Jónsson 1
Varin skot:
Birkir Ívar Guðmundsson 23
57. mínúta: Valur - Haukar 23-31
Valur tapar boltanum og Haukar skora úr hraðaupphlaupi. Þetta er búið. Haukar eru að verða Íslandsmeistarar.
56. mínúta: Valur - Haukar 23-28
Hjalti Pálmason tapar boltanum í sókn Vals. Elías Már skorar úr hraðaupphlaupi. Þetta virðist búið þó svo að Davíð Ólafsson nái að minnka muninn aftur í fimm mörk fyrir Val.
54. mínúta: Valur - Haukar 21-26
Enn ein sóknin rennur út í sandinn hjá Val. Þeir hafa ekki skorað í sex mínútur. Haukar halda í sókn og geta komist í sex marka forystu.
52. mínúta: Valur - Haukar 21-26
Úrræðaleysi Valsmanna í sóknarleik sínum virðist algert þessar mínúturnar. Þeir komast ekki í gegn og verða að skjóta að utan. Birkir Ívar hefur í litlum vandræðum átt með þessi skot. Elías Már skorar í kjölfarið úr hraðaupphlaupi og eykur muninn í fimm mörk. Tíminn er að hlaupa frá Valsmönnum.
50. mínúta: Valur - Haukar 21-24
Hjalti Pálmason skoraði aftur en Haukar virðast skora tvö mörk fyrir hvert mark sem Valur skorar þessar mínúturnar.
47. mínúta: Valur - Haukar 20-22
Haukar skora tvö í röð en Hjalti Pálmason svarar loksins fyrir Val.
44. mínúta: Valur - Haukar 19-20
Valur í yfirtölu, í sókn og möguleiki á að jafna. Birkir Ívar varði tvö skot í röð og Haukar fullmannaðir í sókn. Það ætlar að reynast erfitt fyrir Valsmenn að jafna þennan leik.
41. mínúta: Valur - Haukar 18-20
Enn hafa Haukar yfirhöndina í leiknum en Valsmenn eru þó aldrei langt undan. Mikið um mistök hjá báðum liðum og leikurinn eilítið tilviljunarkenndur.
37. mínúta: Valur - Haukar 16-19
Valsmenn fengu tækifæri til að jafna metin í stöðunni 16-17 eftir að Ólafur Haukur varði tvívegis vel í marki Valsmanna. En þeir töpuðu enn einum boltanum og Haukar hafa skorað síðustu tvö mörk leiksins.
33. mínúta: Valur - Haukar 15-17
Freyr Brynjarsson skorar fyrsta mark síðari hálfleiks fyrir Hauka. Valsmenn tapa svo boltanum strax aftur.
Hálfleikur: Valur - Haukar 15-16
Heimir Örn Árnason skoraði síðustu þrjú mörk Vals í leiknum og heimamenn geta því þakkað honum fyrir að vera ekki meira undir í hálfleik. Leikurinn hefur verið nokkur kaflaskiptur en bæði lið hafa sýnt góða kafla og slæma. Markvarslan þarf þó að batna í Valsmarkinu.
Mörk Vals:
Heimir Örn Árnason 4
Davíð Ólafsson 3
Elvar Friðriksson 3/1
Arnór Þór Gunnarsson 2/2
Hjalti Þór Pálmason 2
Hjalti Gylfason 1
Varin skot:
Ólafur Gíslason 5
Mörk Hauka:
Sigurbergur Sveinsson 4
Kári Kristján Kristjánsson 3
Gunnar Berg Viktorsson 3/1
Freyr Brynjarsson 3
Andri Stefan 3
Varin skot:
Birkir Ívar Guðmundsson 11
28. mínúta: Valur - Haukar 12-14
Síðustu fjögur mörk Hauka hafa öll komið úr langskotum. Vörnin hjá Val er hins vegar ekkert alslæm og heimamenn hafa haldið í við gestina. Munurinn á liðunum liggur hins vegar í markvörslunni.
21. mínúta: Valur - Haukar 9-10
Allt annað að sjá til Valsliðsins. Þeir eru fastir fyrir í vörn og yfirvegaðir í sókninni. Munurinn nú orðinn eitt mark.
18. mínúta: Valur - Haukar 7-10
Valsmenn skoruðu bara tvö víti á um tíu mínútna kafla en nú var Hjalti Pálmason að skora úr langskoti og fiskaði um leið Gunnar Berg út af í tvær mínútur. Gæti reynst dýrmætt fyrir heimamenn.
13. mínúta: Valur - Haukar 4-8
Kári Kristján skorar þriðja mark Hauka í röð úr vonlausri stöðu á línunni. Þetta hefði Ólafur átt að verja. Valsmenn taka leikhlé.
12. mínúta: Valur - Haukar 4-7
Vörn Hauka er öflug með þá Arnar, Kára og Gunnar Berg fremsta í flokki og hafa Haukar skorað tvö mörk í röð og eiga kost á því þriðja.
9. mínúta: Valur - Haukar 4-5
Vörn Hauka hefur verið að standa vaktina vel og áttu gestirnir möguleika á að komast þremur mörkum yfir. En í annað skiptið í leiknum klikkaði línusending og Valsmenn skoruðu úr hraðaupphlaupi.
6. mínúta: Valur - Haukar 2-3
Mikill hraði í leiknum og Haukar eru komnir yfir eftir að Gunnar Berg skoraði úr víti. Þá var Arnór Þór Gunnarsson nýbúinn að misnota víti fyrir heimamenn.
1. mínúta: Valur - Haukar 1-1
Haukar byrja með boltann en tapa boltanum í fyrstu sókn sinni. Valsmenn komast í hraðaupphlaup sem Davíð Ólafsson skorar úr. Andri Stefan svarar strax fyrir Hauka.
20.15 Allt til reiðu
Nú er allt klárt hér í Vodafone-höllinni og fer leikurinn senn að hefjast. Það er fín stemning á meðal áhorfenda og stuðningsmenn beggja liða láta vel í sér heyra.
20.12 Ljósin slökkt
Nú er verið að tilkynna liðin til leiks og hefur verið slökkt á ljósunum í húsinu þegar heimamenn eru kynntir til leiks.
20.05 DJ Baldur
Hér er það hinn meiddi leikmaður Vals, Baldur Þorsteinsson, sem sér um tónlistina í húsinu. Aðrir meiðslagikkir - Sigurður Eggertsson og Sigfús Páll Sigfússon - hafa haldið honum félagsskap í plötusnúðabúrinu.
20.00 Velkomin til leiks
Vísir heilsar héðan úr Vodafone-höllinni þar sem stundarfjórðungur er til að leikurinn hefjist. Áhorfendur eru að týnast í sætin sín og allt útlit fyrir hörkuspennandi viðureign í kvöld.