Bandarísk þriggja stiga skytta í kvennalið KR Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. september 2009 13:00 Jenny (Pfeiffer) Finora átti farsælan háskólaferil með Kentucky. Mynd/Heimasíða Alabama Huntsville
Kvennalið KR hefur styrkt sig með erlendum leikmanni fyrir tímabilið en Jenny Finora, áður Jenny Pfeiffer, er komin til landsins til að spila með liðinu auk þess að þjálfa yngstu kvennaflokka félagsins. Jenny (Pfeiffer) Finora átti farsælan háskólaferil með Kentucky-skólanum á árunum 2002 til 2007. Hún er meðal annars besta vítaskyttan í sögu skólans og aðeins tveir leikmenn í sögu Kentucky-skólans hafa náð því að skora fleiri þriggja stiga körfur en hún. Jenny var með 10,1 stig á 22,9 mínútum að meðaltali í 96 leikjum með Kentucky-skólanum á árunum 2002 til 2007 en hún hitti þar úr 34,7 prósent þriggja stiga skota sinna og 86,1 prósent vítanna. Pfeiffer skoraði alls 162 þriggja stiga körfur í þessum 96 leikjum og hún hitti úr 247 af 287 vítum sínum. Jenny hefur reyndar ekki spilað í tvö ár og er því að taka skóna fram að nýju með KR-liðinu. Hún lék sinn fyrsta leik um helgina þegar KR fór í Stykkishólm og spilaði æfingaleik við Snæfell. KR vann leikinn 80-66 og Jenny skoraði 11 stig og 8 stoðsendingar í leiknum. Nýju leikmenn KR-liðsins voru stigahæstir í leiknum því auk Jenny þá skoraði Unnur Tara Jónsdóttir 16 stig og landsliðsfyrirliðinn Signý Hermannsdóttir var með 13 stig. Jenny hefur meistarapróf í íþróttastjórnun og var aðstoðarþjálfari hjá Alabama Huntsville-skólanum á síðasta vetri. Hún mun líka þjálfa hjá KR eins og eiginmaður hennar, Victor Finora. Jenny þjálfar minnibolta kvenna, 7. flokk kvenna og 8. flokks kvenna. Eiginmaður hennar, Victor, þjálfar 10. flokk, 11. flokk og drengjaflokk.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Fyrirliði Bandaríkjanna ver gjammandi stuðningsmennina Golf „Hvernig stendur á því að hann er enn í starfi?“ Enski boltinn Í beinni: Vestri - ÍBV | Vestramenn í vandræðum Íslenski boltinn Sagði áhorfanda að naglhalda kjafti Golf Nik hættir með Breiðablik og tekur við Kristianstad Íslenski boltinn Slot varpaði sökinni á Frimpong Enski boltinn Aðeins sá sjötti til að skora tvö sjálfmörk í einum leik Fótbolti Sveinn Aron skoraði beint úr aukaspyrnu Fótbolti Evrópa með afgerandi forystu fyrir lokadaginn Golf Sjáðu allt það helsta úr enska boltanum í gær Enski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 83-86 | Njarðvík meistari meistaranna eftir kaflaskiptan leik Tindastóli og Njarðvík spáð toppnum í vetur Svona var kynningarfundurinn fyrir Bónus-deildirnar í vetur Yfirlýsing KKÍ: Hvorki vilja né geta tjáð sig um mál Davíðs Helenu nóg boðið: „Ætlum við í alvöru að leyfa þessu að gerast?“ Formaður dómaranefndar KKÍ tjáir sig ekki Um þögnina varðandi dómaramál KKÍ: „Þurfum að komast til botns í þessu“ Áfall fyrir Houston Forráðamenn KKÍ neita að tjá sig um dómaramálin Fannst skilaboðin frá dómaranefnd galin Mynd af ellefu ára leikmanni Real vekur athygli Davíð hættur: „Dreginn á asnaeyrunum“ Skömmuðust sín fyrir tap gegn Fjallinu: „Hann var ekki svona stór þá“ Anthony Davis byrjaður að æfa á ný Ólöf Helga tekur við stjórninni: „Orðnar mjög spenntar fyrir fyrsta þætti“ NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Tryggvi varði flest skot á EM og tók næstflest fráköst Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn Grikkir stálheppnir að landa bronsinu Tyrkir pökkuðu Giannis og Grikkjum saman á leið í úrslit „Að spila á Íslandi er frábært tækifæri fyrir mig“ Þjóðverjar í úrslit EM í fyrsta sinn í tuttugu ár Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Annar fyrrverandi leikmaður Sacramento Kings til Álftaness Telur ólíklegt að Kawhi eða Clippers verði refsað Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Álftanes mætir stórliði Benfica Finnar afgreiddu Georgíu með stæl Grikkland í undanúrslit á EM Sjá meira