NBA í nótt: Lakers vann San Antonio Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. janúar 2009 09:26 Andrew Bynum átti góðan leik fyrir Lakers í nótt. Nordic Photos / Getty Images
Tvö bestu liðin í vestrinu í NBA-deildinni mættust í nótt og fór LA Lakers þar með sigur af hólmi gegn San Antonio Spurs, 99-85. Sigur Lakers var nokkuð öruggur enda munar talsverðu á árangri liðanna á tímabilinu til þessa. Lakers er með besta sigurhlutfallið í deildinni allri (81,4%) en San Antonio er talsvert á eftir (67,4%). Kobe Bryant var með 22 stig en hann fékk að hvíla allan fjórða leikhlutann. Trevor Ariza var með sautján stig Pau Gasol með sextán. Gasol var reyndar eini byrjunarliðsmaðurinn hjá Lakers sem kom við sögu í fjórða leikhluta. Þetta var fjórði sigur Lakers í röð og sá fjórtándi af síðustu sautján hjá liðinu. Boston vann Dallas, 124-100, þar sem Ray Allen skoraði 23 stig, þar af 20 í fyrri hálfleik er Boston náði mest 27 stiga forystu. Eddie House setti niður sjö þrista í leiknum fyrir Boston. Phoenix vann Atlanta, 104-99. Amare Stoudemire skoraði 23 stig og Shaquille O'Neal nítján og ellefu fráköst. Steve Nash var með fjórtán stig og þrettán stoðsendingar en það voru hann og Stoudemire sem kláruðu leikinn fyrir Phoenix í nótt. Toronto vann Sacramento, 113-97. Chris Bosh var með 31 stig, Andrea Bargnani 24. Þetta var fimmta tap Sacramento í röð. Houston vann Detroit, 108-105. Ron Artest var með 24 stig í leiknum og setti niður þrjú víti á síðustu fjórtán sekúndum leiksins. Minnesota vann Chicago, 109-108, í framlengdum leik þar sem Al Jefferson skoraði 39 stig. Þetta var níundi sigur Minnesota í ellefu síðustu leikjum liðsins. Indiana vann Charlotte, 98-93. Danny Granger var með 27 stig og þeir TJ Ford og Mike Dunleavy þrettán stig hvor. Denver vann Utah, 117-97. Nene var með 28 stig fyrir Denver. Golden State vann LA Clippers, 107-92, þar sem Corey Maggette skoraði 20 stig fyrir Golden State gegn sínu gamla félagi.
NBA Mest lesið Þóra grætur í koddann ef Þorsteinn verður áfram með liðið Fótbolti Segir dóttur sína hafa gert mistök með því að velja íslenska landsliðið Fótbolti Mátti ekki kaupa íbúð Babe Ruth Sport „Þetta snýst ekki bara um Sveindísi og Karólínu“ Fótbolti Hneig niður tvisvar á risamóti í golfi Golf Dagskráin í dag: Golf og aftur golf Sport Viðurkenndi sök og má ekki keppa í CrossFit í fjögur ár Sport Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Wenger á allt annarri skoðun en Klopp Fótbolti Fleiri fréttir Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Sjá meira