Michael Jordan fær einkasýningu í Frægðarhöllinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. ágúst 2009 14:00 Michael Jordan. Mynd/AFP
Frægðarhöll NBA-deildarinnar í körfubolta býr sig núna undir það að taka á móti einum allra besta körfuboltamanni allra tíma - Michael Jordan. Jordan verður tekinn inn í Frægðarhöllina 11. september næstkomandi og að því tilefni fær hann sérstaka einkasýningu í höllinni þar sem finna má allskyns hluti tengdum ferli hans. Jordan-hornið verður sýning á hlutum frá hans ferli í NBA-deildinni sem og frá háskólaferli hans með Norður-Karólínu skólanum. Þar verða einnig hlutir frá því þegar hann lék með Draumaliði Bandaríkjamanna á Ólympíuleikunum í Barcelona og meira að segja hafnarboltahanski frá því að hann prófaði að spila í bandarísku hafnarboltadeildinni. Jordan-hornið verður styrkt af Nike sem hefur verið íþróttamerki Michael Jordan á hans ferli og gaf Nike 250 þúsund dollara til sýningarinnar. Á sýningunni verður hægt að skoða alla sérhönnuðu Nike-skónna sem Jordan lék í á sínum ferli. Það ætti að vera af nógu að taka enda er ferill Michael Jordan afar glæsilegur. Hann vann meðal annars sex meistaratitla með Chicago Bulls og tvö Ólympíugull með bandaríska landsliðinu auk allra einstaklingsafreka sinna. Það verða fleiri kunnir kappar teknir inn í Frægðarhöllina um leið og Michael Jordan en það eru leikmennirnir David Robinson og John Stockton og þjálfararnir Jerry Sloan og C. Vivian Stringer.
NBA Mest lesið Segja Sölva hæðast að Bröndby Fótbolti Segir hetju Evrópumeistaranna ljúga Fótbolti Fékk flugeld í punginn í leik Fótbolti Enska augnablikið: Grætti barnið en var slétt sama Enski boltinn Fékk rautt spjald fyrir að toga í hár mótherja Íslenski boltinn Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti Hafþór Júlíus í öðru sæti eftir fyrri daginn Sport Fá íþróttahæfileikana sína frekar frá móður sinni Sport Stórstjörnur Barcelona sektaðar fyrir brot á lyfjaprófsreglum Fótbolti Stelpurnar Norðurlandameistarar og strákarnir fengu silfur Körfubolti Fleiri fréttir Stelpurnar spila um sjöunda sætið á Eurobasket „Þeir eiga allir skilið að fara í lokahópinn“ Stelpurnar Norðurlandameistarar og strákarnir fengu silfur Þýskaland lagði Slóvena í undirbúningi fyrir Eurobasket Celtics festa þjálfarann í sessi NBA stjarna borin út Litáen of stór biti fyrir íslensku stelpurnar Öruggar með besta árangur Íslands á EM frá upphafi Ákærður fyrir að hnupla treyju LeBron sem seldist seinna á nær hálfan milljarð Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Stórskotasýning Sigtryggs dugði ekki til sigurs Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög KR sækir ungan bakvörð „Sýna að maður eigi það skilið“ Segir að þeim besta í heimi sé skítsama Álftanes bætir Bandaríkjamanni við hópinn „Númer eitt, tvö og þrjú að knúsa þau sem mest“ Callum Lawson aftur til Valsmanna Þrír verða heima meðan landsliðið fer til Ítalíu Skora á KKÍ að sniðganga Ísrael: „Íþróttahreyfingin ekki undanskilin ábyrgð“ Semple til Grindavíkur Sjá meira
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti