Sport

Elsti maðurinn til að vinna leik á HM í pílu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Paul Lim frá Singapúr fagnar hér sögulegum sigri sínum í kvöld.
Paul Lim frá Singapúr fagnar hér sögulegum sigri sínum í kvöld. Getty/Andrew Redington

Paul Lim varð í kvöld elsti leikmaðurinn til að vinna leik á heimsmeistaramótinu í pílukasti þegar þessi 71 árs gamli leikmaður vann stórkostlegan sigur á Jeffrey de Graaf.

Með stuðningi hliðhollra áhorfenda í Alexandra Palace vann þessi gamalreyndi leikmaður frá Singapúr 3-1 sigur á Svíunum sem er fæddur í Hollandi.

Hann sló með því met Norður-Írans John MaGowan, sem var 67 ára þegar hann sló Chris Mason út í fyrstu umferð mótsins í desember 2008.

„Bara það að komast hingað er afrek. Ég óska engum að klikka en þegar þeir klikka verður maður að grípa tækifærið,“ sagði Lim við Sky Sports eftir leikinn.

Lim gæti mætt Luke Humphries í annarri umferð, ef heimsmeistarinn frá 2024 kemst í gegnum opnunarleik sinn gegn Ted Evetts síðar í kvöld.

Lim vann Humphries þegar þeir mættust síðast í Ally Pally fyrir fimm árum.

„Hann [Humphries] leggur svo mikla vinnu og tíma í það sem hann er að gera, hann er góður strákur, heiðursmaður og frábær leikmaður,“ bætti Lim við.

„Þannig að ég vona að á góðum degi geti það gerst aftur [ef ég spila við hann] en ég gefst aldrei upp. Hann er góður en það er hægt að vinna hann,“ sagði Lim.

Áhorfendur fögnuðu Lim, sem verður 72 ára í næsta mánuði, gríðarlega þegar hann vann fyrsta settið en De Graaf virtist hafa náð yfirhöndinni eftir að hann jafnaði leikinn.

Hins vegar komst Lim yfir eftir kaotískt þriðja sett þar sem De Graaf gaf eftir á meðan hinn reyndi „Singapore Slinger“ hélt ró sinni í spennandi fjórða setti og tryggði sér sigurinn með 86,52 í meðaltali.

Wayne Mardle, pílusérfræðingur Sky Sports, sagði að Lim hefði getað „nýtt færin sín“ til að tryggja sér „ótrúlegan“ sigur.

„Ef þú hefur löngunina, ástríðuna en umfram allt hæfileikana getur fólk afrekað ótrúlega hluti – og þetta var ótrúlegt,“ sagði Mardle.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×