Kári: Þetta kallast að svara fyrir sig Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. maí 2009 18:45 Haukamaðurinn Kári Kristjánsson var í miklum ham í leiknum. Mynd/Stefán
Haukarnir unnu öruggan sigur á Val í þriðja úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í N1 deild karla í handbolta. Haukamaðurinn Kári Kristjánsson var í miklum ham í leiknum. „Þeir áttu ekki möguleika í okkur í dag og þetta kallast að svara fyrir sig, það er alveg klárt," sagði Kári Kristjánsson, markahæsti leikmaður Hauka í dag. Kári skoraði 7 mörk úr 7 skotum í leiknum. „Ég passaði mig fullmikið í öðrum leiknum og var alltof rólegur. Ég sá að það þýddi ekkert og ég tók þetta bara alla leið í þessum leik. Ég fékk rautt spjald og skilaði fínum leik," sagði Kári í léttum tón. „Birkir Ívar er að verja hátt upp í 20 bolta á fimmtíu mínútum og við erum að spila fantavörn. Við slökuðum síðan kannski aðeins á síðasta korterið og erum að fá á okkur óþarfa mörk upp úr engu," sagði Kári. „Heilt yfir þá erum við með leikinn alveg gjörsamlega í okkar höndum. Við erum sjö mörkum yfir lungann úr leiknum og þeir áttu bara ekki möguleika í okkur í dag," sagði Kári kátur. „Það er klárlega markmiðið okkar að vinna titilinn á Hlíðarenda á þriðjudaginn. Við fórum illa út úr Vodafone-höllinn síðast en við ætlum að mæta í þessum ham í næsta leik og klára dolluna," sagði Kári.
Olís-deild karla Mest lesið „Manchester er heima“ Enski boltinn „Að besta dómarapar Íslands sitji upp í stúku finnst mér ansi skrýtið“ Handbolti „Verð aldrei trúður“ Fótbolti Uppgjörið: Valur - Haukar 30-28 (1-0) | Engin þynnka í Evrópumeisturunum Handbolti Beckham varar Manchester United við Enski boltinn Sveinn Aron skoraði, lagði upp og klúðraði vítaspyrnu Fótbolti De Bruyne kvaddur með stæl Enski boltinn Rómverjar vilja Nuno sem gæti verið ósáttur í Skírisskógi Enski boltinn Brynjar veður í Viðar og sakar hann um að vera fræðafant Sport Dagskráin í dag: Oddaleikur á Króknum og fleiri úrslitaleikir Sport Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur - Haukar 30-28 (1-0) | Engin þynnka í Evrópumeisturunum „Að besta dómarapar Íslands sitji upp í stúku finnst mér ansi skrýtið“ „Það er kúnst að leggja þetta til hliðar og byrja að fókusa“ Samgleðst vinkonum í Val sem eru vonandi þunnar „Ótrúlegt að við höfum unnið þennan leik“ Ómar Ingi hélt upp á framlengingu á samningi með stórleik Uppgjörið: Fram - Valur 27-26 | Fram einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum Framarar fengu drjúgan tíma til að sóla sig um helgina Dagur bikarmeistari eftir maraþon vítakeppni Sigur hjá Kolstad í fyrsta leik úrslitanna Óðinn markahæstur í fyrsta leik úrslitaeinvígisins Löggan óskaði Hildigunni til hamingju Mögnuð stemmning þegar Valskonur tryggðu sér Evrópubikarinn Sýning hjá Viktori Gísla í stórsigri Wisla Plock „Ég ætla að leyfa stelpunum að njóta í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Porrino 25-24 | Valskonur Evrópumeistarar fyrstar kvennaliða Táraðist vegna ólýsanlegrar gleði „Ég byrjaði bara að gráta, ég réði ekki við neitt“ Arnór stýrði sínum mönnum í undanúrslit „Orðið sem ég nota er forréttindapési“ Elvar í aðalhlutverki þegar Melsungen tók stórt skref í titilslagnum „Ég get ekki beðið“ Stærsti íþróttaviðburður sem fram hafi farið hér á landi Svona var blaðamannafundur Vals fyrir seinni úrslitaleikinn „Í lokin snýst þetta alltaf um okkur sjálfa“ Ótrúlegur Donni kom ekki í veg fyrir tap Aldís Ásta Svíþjóðarmeistari Íslendingar gerðu gæfumuninn í Íslendingaslögum Uppgjörið: Valur - Fram 33-37 | Bláir leiða úrslitaeinvígið EM-riðillinn: Ítalía, Pólland og Ungverjaland Sjá meira