Við fylgdumst með Heru Björk í hádeginu í dag þegar hún tók á móti fjölmiðlum á hótelinu í Osló þar sem hún dvelur ásamt fylgdarliði.
Erlendir fjölmiðlar sýna Heru mikinn áhuga og umboðsmaður hennar, Valgeir Magnússon þekktur sem Valli Sport, passar vel upp á hana en hann er strangur þegar kemur að því að velja hverjir mega nálgast hana og hverjir ekki.
Í myndbandinu má sjá Heru í ham í miðju sjónvarpsviðtali.