Tölfræðin undirstrikar þrjú mikilvæg atriði í leik kvöldsins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. apríl 2010 17:00 Sverrir Þór Sverrisson átti flotta innkomu frá bekknum í síðasta leik. Mynd/Daníel
Þegar tölfræðin úr fyrstu fjórum leikjum Keflavíkur og Snæfells er skoðuð þá kemur í ljós að þrír tölfræðiþættir hafa sýnt mjög mikla fylgni við úrslit leikjanna. Þetta eru stig frá bekknum, baráttan um fráköstin og þriggja stiga körfur. Það virðist nefnilega vera nóg fyrir Keflvíkinga að halda í við Snæfellsliðið í þessum tölfræðiþáttum til þess að liðið fagni sigrum í leikjum. Keflavík og Snæfell spila í kvöld hreinan úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla í körfubolta. Leikurinn hefst klukkan 19.15 í Toyota-höllinni í Keflavík og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Það er mikill munur á framlagi varamanna Keflavíkur í sigur og tapleikjum. Keflavík fékk aðeins samtals 18 stig frá bekknum í tapleikjunum tveimur, 33 stigum færra en Snæfellsliðið. Í sigurleikjum Keflavíkur voru varamenn liðsins hinsvegar aðeins að skora tveimur stigum færra en kollegar sínir hjá Snæfelli. Keflvíkingar skíttöpuðu líka frákastabaráttunni í tapleikjunum tveimur en Snæfellsliðið tók þá 62 prósent frákasta í boði. Keflavíkurliðið tók hinsvegar aðeins sex færri fráköst en Snæfell í sigurleikjunum sínum. Snæfellingar treysta mikið á þriggja stiga körfurnar en liðið setti niður 26 þrista í sigurleikjunum tveimur eða 12 fleiri en Keflavíkurliðið. Í tapleikjum hittu Snæfellingar hinsvegar aðeins úr 18 af 68 þriggja skotum sínum sem er aðeins 26 prósent nýting. Keflavík skoraði aðeins tveimur þristum færra en Snæfell í leikjunum tveimur sem liðið vann.Hvar liggur munurinn í tölfræðinniStig frá bekk Sigrar Keflavíkur: Snæfell +2 (35-33) Sigrar Snæfells: Snæfell +33 (51-18)Frákastabaráttan Sigrar Keflavíkur: Snæfell +6 (80-74) Sigrar Snæfells: Snæfell +29 (74-45)Þriggja stiga körfurnar Sigrar Keflavíkur: Snæfell +2 (18-16) Sigrar Snæfells: Snæfell +12 (26-14)
Dominos-deild karla Mest lesið Sagði bíl Red Bull vera algjörlega óökuhæfan Formúla 1 Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Körfubolti Þrenna á föstudagskvöldi og háskólagráða á laugardegi Íslenski boltinn Senda konurnar í Evrópukeppni en ekki karlana Handbolti Stelpurnar stungu sér til sunds í vatninu Fótbolti Lenti ofan á öðrum bíl í Formúlu 2 Formúla 1 Stelpurnar okkar mættar í paradísina Fótbolti Englendingar Evrópumeistarar eftir framlengdan leik Fótbolti Útskrifuð af sjúkrahúsinu og gæti verið með á EM Fótbolti „Mér finnst þetta vera brandari“ Fótbolti Fleiri fréttir Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Sjá meira