Fótbolti

Nú kom Hannes inn á og lagði upp jöfnunarmark Sundsvall

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hannes Þ. Sigurðsson.
Hannes Þ. Sigurðsson. Mynd/Getty Images
Hannes Þ. Sigurðsson lagði upp jöfnunarmark Sundsvall í 2-2 jafntefli á móti í Degerfors í sænsku b-deildinni í kvöld. Hannes kom inn á sem varamaður í leiknum alveg eins og þegar hann skoraði tvö mörk í sigri á Väsby United um síðustu helgi.

Tvenna Hannesar um síðustu helgi nægði ekki til að vinna honum sæti í byrjunarliðinu en hann kom inn á völlinn á 62. mínútu. Jöfnunarmarkið kom síðan á 90. mínútu en áður hafi Degerfors komist í 2-1.

Ari Freyr Skúlason spilaði allan leikinn á miðju Sundsvall í leiknum en liðið er nú í 5. sæti deildarinnar.

Gunnar Þór Gunnarsson sat allan leikinn á bekknum hjá IFK Norrköping FK sem vann 3-0 sigur á heimavelli á móti Jönköpings Södra IF. Norrköping er í efsta sæti deildarinnar.

Heiðar Geir Júlíusson kom inn á sem varamaður á lokamínútunni í markalausu jafntefli Ängelholm á heimavelli á móti Ljungskile SK.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×