Enn eru 50 þúsund eftir í Írak 20. ágúst 2010 00:30
Allar bardagasveitir bandaríska hersins eru nú farnar frá Írak, rúmum sjö árum eftir að innrásin hófst og Saddam Hussein var steypt af stóli. Enn eru þó 56 þúsund bandarískir hermenn eftir í landinu, en þeir eiga ekki að taka þátt í bardögum heldur takmarkast hlutverk þeirra við að þjálfa írakska hermenn og lögreglumenn. Fyrir ágústlok eiga sex þúsund þessara hermanna í viðbót að yfirgefa landið, standi Barack Obama Bandaríkjaforseti við loforð sitt um að einungis 50 þúsund hermenn verði í landinu eftir ágústlok. Hugmyndin er sú að þeir verði síðan allir farnir frá Írak að ári liðnu, en óvíst er hvort staðið verður við það. Flestir voru bandarísku hermennirnir í Írak um 170 þúsund í lok ársins 2007, en í byrjun 2010 voru þeir tæplega 100 þúsund. Önnur ríki hafa þegar kallað alla hermenn sína heim frá Írak. Átökin í Írak hafa kostað um 4.400 bandaríska hermenn lífið. Óvíst er hve mörg mannslíf stríðið hefur kostað í heild, en lægstu tölur sem nefndar eru hafa verið í kringum 100 þúsund.- gb
Fréttir Mest lesið Skotmennirnir feðgar Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Innlent Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Innlent „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Innlent Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð Innlent Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Innlent Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland taki þátt í drónakaupum Innlent Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli Innlent Rabbíni drepinn í árásinni Erlent Fleiri fréttir Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Segir Trump að skipta sér ekki af evrópsku lýðræði Stefna á að taka fleiri skip frá Venesúela Evrópa þurfi að vera búin undir aðra stórstyrjöld Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Takmarkar getu ríkjanna til að setja gervigreindinni skorður Bandaríkjamenn vilji koma á fríverslunarsvæði í Donbas Sagður tilbúinn að yfirgefa Venesúela með friðhelgi Hóta að koma fram við Belga eins og Ungverja „Arkitektar gervigreindar“ manneskja ársins hjá Time Fallhlífin flæktist í stélið 900 sviptir ökuleyfinu fyrir að hjóla undir áhrifum áfengis Geta fengið sex milljónir í bætur frá danska ríkinu Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Óvinafögnuður Trumps og Pútíns Missti af afhendingunni en er komin heil á húfi til Osló Sjá meira