Körfubolti

Jón Arnór stigahæstur í tapleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Mynd/Arnþór
Jón Arnór Stefánsson skoraði fimmtán stig fyrir CB Granada sem tapaði fyrir Lagun Aro í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld, 75-68, á heimavelli.

Lagun Aro byrjaði betur og var með yfirhöndina í hálfleik, 34-24. En Jón Arnór og félagar sneru taflinu sér í hag í þriðja leikhluta sem þeir unnu, 27-15.

En það voru gestirnir sem reyndust sterkari á lokasprettinum og unnu sem fyrr segir sjö stiga sigur.

Jón Arnór spilaði í tæpar 33 mínútur í leiknum og nýtti fimm af þrettán skotum sínum utan af velli. Hann gaf þar að auki þrjár stoðsendingar í leiknum.

CB Granada er í erfiðri stöðu í deildinni og í sautjánda og næstneðsta sæti. Liðið hefur unnið þrjá leiki af tólf til þessa á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×