Popplag Ásdísar Ránar komið á netið 3. maí 2010 14:59 Ásdís Rán ætlar sér stóra hluti með þýska fyrirtækinu sem hún segir taka yfir ímynd sína og IceQueen-vörumerkið.
Are you looking at me? Do you like what you see? Oooh, i bet you do, but you can't handle me! Þetta syngur Ásdís Rán Gunnarsdóttir meðal annars í laginu Feel My Body sem var frumflutt í dag. Þetta popplag er það fyrsta sem Ásdís sendir frá sér. Hún tilkynnti nýlega að þýskt fyrirtæki ætlaði að taka yfir ímynd hennar og IceQueen-vörumerkið og eru sigrar í poppinu eflaust hluti af þeim pakka. „Þegar við svo bætum við þeim samböndum sem ég hef komið mér og upp að ógleymdum markaðshæfileikunum, þá er niðurstaðan sú að búið er að samþykkja lagið í spilun víðsvegar um Evrópu á næstu vikum ásamt myndbandi!" skrifaði Ásdís nýlega í pistli og bætti við að hún óski eftir stuðningi íslenskra fyrirtækja við að gera íslenskt myndband við lagið. „Ég hef tækifæri á að bjóða ykkur upp á þessa auglýsingu, ég er með öflugt lið á bak við mig í Evrópu og fyrst þið fjárfestuð í öllum þessum útrásarvíkingum þá getið þið fjárfest í mér án þess að hljóta nokkurn skaða af," skrifaði Ásdís. Ef enginn hérlendis er reiðubúinn til að styrkja myndbandið segir hún aðra tilbúna til þess. „Ef ekki - og enginn er tilbúinn að aðstoða mig á Íslandi þá breytir það litlu fyrir mig því þetta verður strax fjármagnað af erlendum aðilum og myndað erlendis en þá eiga fáir eftir að vita að ég er tengd Íslandi." Snorri Snorrason, sem vann Idol á sínum tíma, stýrði upptökum á laginu Feel My Body. En, eins og Ásdís segir: No more flirting / let's get dirty, hlustið á lagið hér.
Lífið Mest lesið Aron segist hættur í ClubDub Lífið Það allra heitasta í sumarförðuninni Tíska og hönnun „Hann var ekkert eðlilega góður í sleik“ Makamál Tíu af fyndnustu dýralífsmyndunum Lífið Orsakir flösu og áhrifarík meðferð Lífið samstarf Hildur Yeoman lofuð í hástert á Style Bubble Lífið Aron Kristinn og Lára keyptu nýstárlega miðbæjarperlu Lífið Hvar eru þau nú? Lífið Vilja stimpla sig inn með stæl Lífið Fjórum íslenskum útgáfum fagnað í tónlistarveislu í Iðnó Lífið Fleiri fréttir Heitustu rapparar landsins í eina sæng Sigur Rós í Handmaids Tale Einn heitasti plötusnúður í heimi á leið til landsins Nauðsynlegt að gera upp fortíðina Frumflutti „Hver er sá besti“ í Fíladelfíu árið 1985 Kærleiksbomba frá GusGus Nýtt lag frá VÆB-bræðrum: „Bíðið bara, það verður epic!“ „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Sjá meira