Renault Formúlu 1 liðið frumsýndi nýtt ökutæki sitt í Valencia í dag og kynnti til sögunnar tvo nýja ökumenn. Pólverjann Robert Kubica og Rússann Vitaly Petrov. Petrov er fyrsti Rússinn sem keppir í Fornúlu 1.
"Upphaf keppnistímabils er alltaf þrungið eftirvæntingu og þetta á sérstakelga við um 2010 tímabilið", sagði Eric Boullier sem er nýr framkvæmdarstjóri Renault liðsins.
"Við erum með nýtt skipulag hjá liðinu, nýja ökumenn og í nýjum litum. Það er margt sem er vert að vera spenntur yfir og tilhlökkun fyrir nýja tímabilinu."
"Það er aldrei auðvelt að setja sér markmið, en það er metnaður í gangi og við viljum komast í fremstu röð. Það mun ekki gerast á einni nóttu og við tökum eitt skref í einu."
"Nýji R30 bíllinn ætti að verða samkeppnisfær, sterkur og áreiðanlegur og við hönnuðum hann á framsækinn hátt. Við höfum ekki gleymt hvernig á að vinna í Formúlu 1", sagði Bouillierl.
Petrov er spenntur fyrir tækifærinu sem hann fær með Renault.
"Ég hlakka mjög til að keyra á götubrautum og í blautum. Ég byrjaði ferill minn í rallakstri og ísakstri og kann því vel við mig á hálu undirlagi. Ég vann mitt fyrsta GP2 mót í Valencia, þegar ég hóf keppni á þurrdekkjum á rakri brautinni. Ég á þó eftir að sjá hvernig Formúlu 1 bíll virkar í bleytu", sagði Petrov.