Hrafn: Lögðum mikla áherslu á það að keyra upp hraðann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. mars 2011 23:46
Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, gat verið mjög ánægður með sitt lið eftir frábæran 18 stiga sigur á Keflavík í Toyota-höllinni í kvöld. KR-liðið hefur þar með unnið fjóra fyrstu leiki sína í úrslitakeppninni og getur sópað út öðru Reykjanesbæjarliðinu í röð með sigri í þriðja leiknum á föstudagskvöldið. „Þetta var einstaklega mikilvægur sigur og ég hefði sætt mig við það að spila illa og fara hér út með eins stigs sigur. Þetta var alvöru leikur, útileikur á móti frábæru liði og það eru svona leikir sem við þurfum að taka ef við ætlum okkur að gera eitthvað," sagði Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, eftir leikinn. „Við lögðum mikla áherslu á það í byrjun að keyra upp hraðann og vörnin fékk að gjalda svolítið fyrir það í fyrsta leikhlutanum. Við vorum ánægðir með að ná leiknum í þetta tempó en það var leiðinlegt að missa niður vörnina í byrjun þriðja leikhluta. Fyrir byrjun annars leikhluta og í gegnum leikinn, fyrir utan þennan sex mínútna kafla í þriðja leikhluta þá var ég mjög ánægður með varnarleikinn," sagði Hrafn, „Við erum ekki búnir að gera neitt ennþá og erum ekki búnir að klára þettaþ. Við erum að spila við lið sem hefur komið til baka áður. Þeir hafa áður verið 2-0 undir og allir búnir að afskrifa þá. Þeir þekkja það að vera með bakið upp að veggnum og koma til baka. Ég býst við erfiðari leik á föstudaginn en í kvöld," sagði Hrafn en það má sjá allt viðtalið með því að smella hér fyrir ofan.
Dominos-deild karla Mest lesið Brenndi á sér höndina áður en hann kýldi í borðið Sport Hefur aldrei séð svona ofbeldi: „Þetta var allt of mikið“ Sport Moyes ældi alla leiðina til Eyja Enski boltinn Mbappé vann PSG og fær níu milljarða Fótbolti Romano segir fólki að fylgjast með Alberti í janúar Fótbolti Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Enski boltinn Gestgjafar HM bjóða Íslandi heim í leik Fótbolti Sjáðu flottasta mark í heimi árið 2025 Fótbolti Á hækjum á milli leikja og þoldi sífellt verri sársauka Handbolti Segir að Salah muni sjá eftir því að fara í janúar Enski boltinn Fleiri fréttir Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sara Rún með sigurkörfuna í ótrúlegri endurkomu Keflavíkur Kjartan Atli lætur af störfum Körfuboltakvöld í áfalli yfir vörn Álftaness: „Bara kjánalegt að horfa á þetta“ Curry sneri aftur með miklum látum Uppgjörið:Njarðvík - Þór Þorlákshöfn 92-93| Stigin til Þorlákshafnar eftir háspennu Álftanes - Tindastóll 78-137 | Metin slegin í stórsigri Stólanna „Get ekki verið fúll út í mína menn“ Fyrsti sigurinn í rúman mánuð: „Sýndum í dag að við erum með gott lið“ Uppgjörið: KR - ÍR 102-96 | Langþráður KR-sigur ÍA - Stjarnan 85-115 | Meistararnir búnir að finna gírinn Sjá meira